Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987 4 Jafnrétti - grund- vaUarmannrétdndi Getum við öll verið sammála? Veður var með eindæmum gott alla helgina og veríð úti við meira en ella. M.a. faríð í blak. í baksýn er skálinn í Vindáshlið. Vindáshlíð Kristilegt stúdentamót Samfélagsefling var mikil á mótinu. eftirJón Bjarna Þorsteinsson Hvarvetna, sem íslendingar eru saman komnir, berst talið fyrr eða síðar að launum. Menn bregðast mjög misjafnlega vel við þessu umræðuefni, sumir ijúka upp og telja því þjóðfélagi allt til synda, sem hefur svo lág laun, tala um hækkun launa, styrkjahækkanir, ívilnanir og margt fleira. Aðrir reka augun mest í stjóm- fyrirkomulagið, ríkisstjómina, sem þeir telja úrelta, gagnslausa, mínir pólitíkusar myndu gjörbæta ástand- ið, breytt stjóm. Enn aðrir sjá, eða jafnvel ofmeta, kosti hins mikla bóknáms, og telja tilhugun þess að laun þar skuli vera sem best. í stuttu máli: Mjög mismunandi sjónarmið em ríkjandi, eins og eðli- legt er í stómm og sundurleitum hóp, en um eitt atriði tel ég að al- gjört samkomulag eigi að vera unnt að sameinast um, þ.e. að allir ís- lendingar eigi rétt á sömu gmnd- vallar mannréttindum. Fatlaðir og ófatlaðir. Enginn kýs það að fæðast fatlaður ef val væri um annað. Grundvallarmannréttindi: Hver em svo þessi mannréttindi? Riflum upp orð sögð á skammdegis- vöku fatlaðra í desember 1986. Síðan fylgdu heildarsamtök fatl- aðra baráttunni eftir með kosninga- vöku fatlaðra 1987. Fatlaðir hafa ekki tryggingu fyrir því að hafa húsaskjól. Það vantar tryggingu fyrir mannsæm- andi lífeyri hjá þeim. Þeir hafa ekki heldur tryggingu fyrir atvinnu. Það vantar tryggingu fyrir að- stöðu til endurhæfíngar. Það vantar tryggingu fyrir menntun á móts við ófatlaða. Margt hefur þó áunnist í þessum efíium á síðustu ámm. Gleðitíðindi hafa átt sér stað á síðasta fjárlaga- fmmvarpi. Enn skortir þó á að undirtalin gmndvallarmannréttindi hafí feng- ist viðurkennd í fjárlagaferð fyrir þá sem fatlaðir em. Undirritaður hvetur þingrnenn og þá er áhuga hafa á málefnum fatlaðra að mæta og kynna sér þessi mál. Um þessa helgi verður haldið landsþing „Þroskahjálpar" á Hótel Sögu, nýbyggingu. Þar verður m.a. sameiginlegur fundur „Þroskahjálpar" og „Or- yrkjabandalags íslands". Undirrit- aður hvetur þingmenn og þá er áhuga hafa á málefnum fatlaðra að mæta og kynna sér þessi mál. Við munum taka eftir því hverjir mæta. Stefnumörkun fatlaðra mun m.a. gmndvallast á þessu og hópurinn telur að hérlendis skorti jafnrétti, þ.e.a.s. að allir menn hafí sama rétt. Vilji er allt sem þarf. Samein- umst nú. Höfundur er formaður Þroska- hj&lparAReykjanesi ogheilsu- gæsiulæknir í Hafnarfirði. Málfreyjur funda á ísafirði FYRSTI fundur 1. ráðs mál- freyja á íslandi verður haldinn í sal Menntaskólans á ísafirði laugardaginn 24. október. Gestgjafí fundarins er málfreyju- deildin Sunna á ísafirði. Skráning hefst kl. 12.00 á há- degi. Á fundinum verður Jóna S. Óladóttir frá málfreyjudeildinni Ýr í Reylgavík með kynningu á AP-kerfínu. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á starfí málfreyja. Borgarfirði. HIÐ árlega haustmót Krístilegs stúdentafélags var haldið í Vind- áshlíð helgina 17.-18. október. Óvenju margir komu að þessu sinni á mótið eða rétt tæplega 70 manns. Yfirskrift mótsins var „Frá myrkrí til ljóss“. Ræðumenn voru þeir Hjalti Hugason kenn- arí, sem fjallaði um „Lif í myrkri", og Guðni Gunnarsson skólaprestur ræddi um efnið „í ljósaskiptunum“ og Stína Gísla- dóttir guðfræðingur var með efnið „Líf í ljósi“. Á laugardags- kvöldið var „Colombiukvöld- vaka“ í umsjón starfsmanna Krístilegu skólahreyfingarínnar og messa á sunnudeginum í um- sjón Guðna skólaprests. Kristilegt stúdentafélag er ætlað þeim, sem eru komnir undir tvítugs- aldurinn og þar yfír. Starfar félagið á meðal háskólastúdenta og annarra nema að loknum framhaldsskóla. Að auki eru vitaskuld aðrir, sem ekki eru endilega í námi eða hafa lokið námi. Fyrir utan framantaldan skólaprest hefur félagið starfsmann á skrifstofunni á Freyjugötu 27, sem annast margháttuð störf fyrir Stúd- entafélagið ásamt störfum fyrir Kristileg skólasamtök. Fundir hjá Stúdentafélaginu eru haldnir á Freyjugötu 27 á föstu- dagskvöldum, þar sem tekin eru fyrir mörg grundvallaratriði krist- innar trúar og þau rædd. Verður á næstunni hresst upp á kunnáttuna í fermingarfræðslunni, þar sem næstu fundir flalla um Trúaijátn- inguna. Eru allir alltaf velkomnir á þessa föstudagsfundi hjá félaginu. Stúdentafélagið er aðili að Kristi- legu skólahreyfíngunni, sem fjár- magnar starfsmenn hennar með fíjálsum framlögum, samskotum og annarri fjáröflun. Er í gangi happ- drætti núna til þess að efla fjárhag Skólahreyfingarinnar. 1.000 miðar eru gefnir út á 1.000 krónur hver og ein bifreið í boði. Veltur á, hvem- ig til tekst með happdrættið, hvort gerlegt verður að halda þessum tveimur starfsmönnum eða segja öðrum upp, þar sem ekki eru digrir sjóðir til að greiða þeim laun. Um þessar mundir eru samfélags- hópar/heimahópar/Biblíuleshópar að fara af stað. Eru 6—8 manns í hveijum hópi yfírleitt og þar komið saman, lesið, rætt saman og beðið. Núverandi stjóm skipa Björg Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðinemi, formaður, Ásta Þorbjömsdóttir tölv- unarfræðingur, Anders Josepsson guðfræðingur, Astrid Magnúsdóttir bókasafnsfræðinemi, Ingibjörg Baldursdóttir sjúkraþjálfunamemi og Björg Ólafsdóttir viðskiptafræði- nemi, gjaldkeri utan stjómar. - PÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.