Morgunblaðið - 24.10.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
41
Umsjón: Andrés Magnusson
'67 til '87
Plasticland er ein þeasara
bandarísku hijómsveita sem
erfitt er að skilgreina eða átta
sig á.
Tónlistin sem hljómsveitin
leikur minnir mikið á þá tónlist
sem Pink Floyd lék á þeim árum
þegar Syd Barret var þar
fremstur meðal jafningja. Þó
má finna í nýstárlegri hugmynd-
ir sem fléttaðar eru saman við
hið gamla og gœða þannig tón-
listina lífi. Plasticiand hefur
nýlega sent frá sér sína aðra
plötu, plötuna Salon, sem er
með einkar „sýkadelísku" um-
slagi. Af myndum á umslaginu
má síðan sjá að sveitarmenn
reyna sitt til að vera sem mest
í anda sinna fyrirmynda frá því
Eitt sinn hippi
ávallt hippi
um 1965 til 1970.
Eins og áður sagði er erfitt
að skilgreina tónlistina og
henda reiður á þeim áhrifum
sem það birtast, en hún er þó
alltaf skemmtileg og áhuga-
verð. Gaman verður að heyra
á næstu plötu sveitarinnar
hvort nútfmi eða fortíð ná yfir-
höndinni. Hvort sem er þá má
búast við góðri útkomu sé mið
tekið af þessari plötu.
Árni Matthíasson
Allt of
góðir!
Hendrix stendur fyrir sínu
Fyrir skömmu kom út leysidiskur
með áður óútgefnum tónleikum
gítarsnillingsins Jiml Hendrix.
Hendrlx lést langt fyrir aldur fram
og er tvímælalaust einn af mestu
snillingum rokksins. Hendrix
skildi þó ekki margar plötur eftir
sig, en óprúttnir karlar hafa löng-
um stundað þá Iðju að gefa út
sjóræningjaplötur. Þær eru þó
sjaldnast vandaðar og hljóm-
burður oft fyrír neðan allar hellur.
Fyrrnefndur leysidlskur flokkast
þó ekki þarna með — sfður en
svo. Hann er gefinn út með leyfi
rátthafa og hljómburðurinn er
ótrúlega góður.
Hér er um hljómleikaplötu að
ræða og fór upptakan fram f Wint-
erland f San Francisco árið 1968.
Á þessum tíma var Hendrix í topp-
formi og fór batnandi meö degi
hverjum og er snilli hans á þessum
tónleikum engu Ifk.
Það sem sker þessa plötu þó
sérstaklega úr eru hljómgæðin.
Upphafiegu tökurnar voru nefni-
lega hljóðblandaðar upp á nýtt og
það gert með stafrænum hætti.
Allt suð og óþarfa hljóð var fjar-
lægt, en eftir situr ómengaður
Hendrix.
Diskurinn hefst á kurri í hljóm-
leikagestum, en undir leika Procul
Harum „A Whiter Shade of Pale“
af segulbandi. Þessi stutti kafli
áður en tónleikarnir sjálfir hefjast
gefa línuna vel. Maður beinlínis
finnur gamla hippaandann rjúka
út úr hátölurunum.
Foringinn byrjar á aö taka „Fire"
og að því loknu er kýlt á „Manic
Depression". Því næst er tekist á
viö gamla Cream-lagið „Sunshine
of Your Love" og ferst það yndis-
lega úr hendi sem allt annað. Alls
leikur gamli maðurinn ellefu lög
og áður en yfir lýkur tekur hann
„HeyJoe", „Purple Haze" og „Wild
Thing" í einum rykk.
Þessi plata er eins og besta
tímavél. Sem gamall Hendrix-
aðdáandi féll ég vitaskuld í stafi,
en án svo jákvæðra fordóma held
ég samt að þessi leysidiskur teljist
með tíu bestu plötum, sem óg hef
heyrt. Stór orð, en Hendrix stend-
ur fyllilega að baki þeim.
Því miður verða þessir tónleikar
víst aðeins gefnir út á leysidiski,
en ef lesendur eiga ekki leysispil-
ara fyrir er hér komin ástæða til
þess að fjárfesta í slíku tæki.
Hendrix lifir.
★ ★ V2
9,5-foringjar
Gallinn viö þessa plötu
„Rock’n’Roir er sá að Motor-
heed er orðin alltof góðl
Motorhead hefur alltaf verið á
mörkum þess að teljast pönk-
og þungarokkshljómsveit. Aðal
hljómsveitarinnar er kraftur og
keyrsla og í raun má helst rekja
brotajárnsrokkið fThrash) til
þeirra. Og það var galdurinn
við sveitina. Taumlaus keyrsla
þar sungið var um dauða, of-
beldi og blóð. Hugljúft.
„Rock’n’Roll" er alltof vönd-
uð. Það er mikið lagt í laga-
smíðar, hljóðfæraleikur er mun
agaðri en áður og tónlistin er
útsett (Motorhead prófaði það
í fyrsta sinn á síðustu plötu
sinni „Orgasmatron").
Vitaskuld er hér ekki um
neina fágstefnu að ræða, en
maður býst einhvernveginn við
einhverju ruddafengnara frá
Motorhead. Platan er ágæt, en
hún stenst engan samanburö
við fyrri plötur, síst „Orgas-
matron", sem henni stendur
þó næst.
★ ★ ★ ★ ★
Landinn ætti að vera farínn að
þekkja T.S.O.L. að góðu einu og
nýjasta plata þeirra, „Hlt and
Run“ er til frekarí staðfestingar
á því. Þessir karíar fá 9,6 f ein-
kunn frá undirrftuðum og hún er
ekki oft gefin. 10 er að sjálfsögðu
ekki til umræðu nema á fimm ára
frestl.
T.S.O.L., sem mun standa fyrir
True Sounds of Liberty, hefur ver-
ið „vænd" um það að vera eins-
konar afrit af Doors. Gott ef satt
er segi ég. Það er að vísu rétt,
söngvarinn Joe Wood stælir Jim
Morrison, en það er líka meðvitað
og honum ferst það vel úr barka.
Það er góður kraftur í T.S.O.L.
svo sumum finnst jaðra við þunga-
rokk, en óg vil nú frekar kenna það
viö heiðarlegt rokk og ról. Það er
frekar erfitt að flokka sveitina, en
hún er popphljómsveit með járn-
klæðningu og vænum skammti af
sýruleifum frá blómaskeiöi hippa.
Þó svo hipparnir hafi visnað og
fallið blómstrar T.S.O.L.
Að vísu er rétt að T.S.O.L. er
mun þyngri nú en á fyrri plötum
sínum — ekki síst í útliti, en eins
og sjá má af plötuumslaginu eru
kapparnir býsna leðraðir. Ástæðu
þess er e.t.v. ekki langt að leita.
Sá sem tók myndir af þeim og-
stjórnaði útlitsmálum fyrir þessa
plötu er nefnilega sá hinn sami og
hefur haft þau mál til meðferðar
hjá Mötley Criie.
Eftirtektarverðast við þessa
plötu er það aö þare er ekki að
finna eht uppfyllingarlag. Ekki eittl
öll standa fyllilega fyrir sínu —
mismikiö eins og gengur.
Bestu lögin myndi ég telja „It’s
Too Late", „The Name Is Love",
„Hit and Run", „Not Alone Any-
more" og „Sixteen". Langur listi,
en hér er einfaldlega um afbragðs-
tónlist að ræða.
Platan er kjörgripur og mennirn-
ir upp á 9,5.
Steve Bohren
til íslands
Það er ekki á hverjum degl sem
suðurríkjarokkara rekur á fjörur
íslendinga, en hór á landi er nú
staddur bandarískl blúsrokkarinn
Spencer Bohren, sem hefur sitt
tónlistaruppeldi f rá New Orleans.
Þar og víöar í suðurríkjunum
hefur hann og starfað og þá með
ekki ómerkari mönnum en blúsur-
unum Albert Collins, Albert King,
Clarence Gatemouth Brown, John
Lee Hooker, Mighty Joe Young,
Muddy Waters ofl. Einnig hefur
hann starfaö með zydecokóngin-
um Clifton Chenier, Rockin’
Dopsee, Professor Longhair og
Dr. John svo aðeins sé tæpt á
meðleikurum hans.
Spencer kemur hingað til lands
úr tónleikaferð til Skandinaviu hvar
hann hefur verið kærkominn gest-
ur síðustu þrenn sumur eða svo.
Hér á landi heldur Spencer fimm
tónleika, þá fyrstu í kvöld í
Abracadabra, sfðan tónleika í ýms-
um skólum á höfuðborgarsvæðinu
og lokatónleikar hans í þessari (s-
landsför verða í Evrópu næstkom-
andi fimmtudagskvöld.
Spencer kemur einn fram með
gítarinn á sunnudagskvöld og
næstu kvöld þar á eftir, en hann
er snjall gítarleikari og söngvari
góður. Á fimmtudagskvöld mun
hann aftur á móti leika með nokkr-
um af fremstu tónlistarmönnum
hérlendum.
Tónlistin sem Spencer leikur er
blúsað suðurríkjarokk og oftar en
ekki hreinn blús, sem má gerst
heyra á plötu sem hann sendi ný-
lega frá sér, en á þeirri plötu semur
hann mest sjálfur og hefur náð að
gera plötu sem er nútímleg suð-
urríkjarokkplata um leið og hann
byggir á blúshefðinni.
Árni Matthíasson
Nr. Flytjandi—titill venjul. verð afslverð
1. Bruce Springsteen - Tunnel of love 799 719
2. MichaelJackson-BAD 799 719
3. Hörður Torfason — Hugflæöi 899 809
4. Jefhro Tull — Crest for a knave 799 719
5. Pet shop boys—Acctually 799 719
6. The Smiths - Strangways, here we come 799 719
7. Hooters-Onewayhome 799 719
8. Bee Gees-ESP 799 719
9. Mick Jagger—Primitiv cool 799 719
10. TerenceTrent D’Arby- Introucing 799 719
11. Cock Robin - Afther here through midland 799 719
12. Guðjón G. Guðmundsson - Gaui 899 809
13. TheCars-DoortoDoor 799 719
14. Mike Oldfield — Islands 799 719
15. Depenche Mode - Music for the masses 799 719
16. Communards—Reds 799 719
17. ABC-Alphabetcity 799 719
18. Tom Waits—Franks wilde years 799 719
19. DeaconBlue-Raintown 799 719
20. Billy Joel - Kohuept 799 719
Þú gerir ekki betri kaup.
Tllboðvikunnar:
Kim Larsen
MIDTOM NATTEN
Platan sem margir
hafa beðið eftir er
: komin, og á til-
boðsverði í eina
— .^«rð"»99r viku-
Póstkröfuþjónusta.
Rauðarárstíg 16
s. 11620 og 28316
Símsvari opinn
allan sólarhringinn.
Sími28316.
Góð þjónusta.
stsborhF
Austurstræti, Glæsibæ, Rauðarárstig, Strandgötu og Hagkaup, Kringl-
unni. Póstkröfu8Ími 11620 og 28316 (simsvarí).