Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
• • __________
Oryggisrokk í Tónabæ
Dagnrinn í dag hefur verið helgaður islenskri tónlist og hlotið
nafnið íslenski ténlistardagnrinn. Þá er rokktónlist ekki nnHanakilin
þó oftar en ekki sé hún eitt af óhreinu bömunum hennar Evu.
í tilefni dagsins verða haldnir
tónleikar í dag í Tónabæ sem bera
yfirskriftina Rokkað til örygggis,
enda eru tónleikamir skipulagðir í
samvinnu við JC-samtökin og eiga
að vera þáttur í átaki þeirra fyrir
auknu umferðaröryggi. Á tónleik-
unum koma fram fjórtán hljóm-
sveitir og söngvarar, í bland
þekktar sveitir og minni spámenn.
Pram koma Valgeir Guðjónsson,
Hörður Torfason, Bjartmar Guð-
laugsson, Stuðkompaníið, Gildran,
Bjami Tryggva og hljómsveit,
Óþekkt andlit, Rauðir fletir, Da da,
Blátt áfram, Tíbet tabú, Bláa
bflskúrsbandið, E-X og Súellen.
Bjami Tryggva, Bjartmar og
Rauðir fletir kynna líklegast vænt-
anlegar plötur, sem út koma næstu
daga, en Gildran, Hörður Torfa,
Stuðkompaníið, Da da og Súellen
hafa eldri plötuefni í farteskinu.
Hinar sveitimar má kalla bflskúrs-
hljómsveitir og í bflskúrshljómsveit-
unum liggur vaxtarbroddurinn. Þær
leggja og fyrir sig ólíka tónlist; E-X
leikur tilgerðarlausa rokktónlist
sem er þó ekki hreint rokk. Bláa
bflskúrsbandið leikur rafmagnað
blúsrokk sem mikið er sótt til Jimi
Hendrix, Óþekkt andlit leikur
íslenskt rokk án aukaefna, Blátt
áfram leikur það sem kallað hefur
verið gáfumannarokk og svo mætti
áfram telja. Kannski hefði það ver-
ið meira f ætt við daginn að fleiri
bflskúrshljómsveitir væru viðraðar,
en ekki verður um það fengist, það
er þó gott að fá þær sem í boði
em. Hvað hinar sveitimar og söngv-
arana varðar, þá er það víst að
þeir hafa margt gott gert og em
enn að. Rauðir fletir hafa mikið
komið fram í sumar og síðastiiðinn
vetur og eins og áður sagði þá er
væntanleg plata frá þeim á næst-
unni. Gildran hefur einnig mikið
spilað í vor og sumar í kjöifar plötu-
útgáfu í vor, eftir að hafa farið allt
að því huldu höfði Iengi. Stuð-
kompaníið hefur notið mikillar hylli
eftir að sveitin sigraði í músíktil-
raunum Tónabæjar og Bylgjunnar
snemma á árinu. Da da gaf út sína
fyrstu plötu í síðasta mánuði og
hefur nokkuð spilað sfðan. Súellen
E-X
Ljjósmynd
/BS
Blátt
áfram
Óþekkt andlit
Morgunblaðið/Sverrir
Bláa bílskúrsbandið
Ljósmynd/BS
NIPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUM A LAGER:
kúplingar,kveikjuhluti;bremsuhluti,
STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA PJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
0
AMERISKAN BIL.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
gaf út plötu í sumar og flestir ættu
að kannast við lagið Símon er las-
inn sem náði hátt á vinsældalistum.
Bjami Tryggva hefur ekki sent frá
sér plötu lengi og einnig er langt
síðan hann hefur komið fram með
hljómsveit með sér, en hann hefur
verið að vinna að plötu líkt og Rauð-
ir fletir. Annar sem hefur verið
innilokaður í hljóðveri er Bjartmar
Guðlaugsson, en hann kemur fram
einn með gítarinn og flytur efni af
plötunni væntanlegu f bland við
eldra efni. Hörður Torfason er kom-
inn inn í vinsældalistadansinn með
nýjustu plötu sinni Hugflæði, sem
menn hafa kallað bestu fslensku
trúbadúrplötuna. Hörður kemur
enda fram sem trúbadúr og syngur
nýtt og gamalt í bland.
Eins og áður sagði verða tónleik-
amir í Tónabæ, en áður hafði verið
auglýst að þeir yrðu f Reiðhöllinni
í Víðidal. Erfiðlega gekk þó að fá
leyfi fyrir meira en fimm tíma tón-
leikum í Reiðhöllinni, sem hefði
gefíð hverri hljómsveit heldur lítinn
tíma á sviðinu. Tónabær er opnaður
kl. 14.00 en ekki er hægt að gera
ráð fyrir að tónleikamir hefjist fyrr
en á flórða tímanum. Þeir standa
sfðan til 23.30.
Ekki var búið að ákveða niður-
röðun hljómsveita þegar þessi grein
fór í vinnslu, en Ijóst má þó vera
að hinar frægari sveitir spila á eft-
ir hinum ófrægari. Trúbadúramir,
Bjartmar, Hörður og Valgeir leika
aftur á móti um sexleytið og þá í
beinni útsendingu allra útvarps-
stöðva samtímis.