Morgunblaðið - 25.10.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
Islenskur hundur
sýnir yfirburði
Vinnur til margra verðlauna á hundasýningu í Sviss
TÍK AF íslensku kyni, Vaka frá
Hvammi(927/85), vann til verð-
launa og vakti gífurlega athygli
á hundasýningu í borginni Wint-
hertur í Sviss fyrir skömmu.
Auk fyrstu verðlauna fyrir hunda
af íslensku kyni fékk Vaka sviss-
nesk og alþjóðleg fegurðarverðlaun
og hreinræktunarvottorð hennar
fékk umsögnina „framúrskarandi"
í keppni í opnum flokki.
Loks sýndi Vaka yfirburði yfi
keppinauta sína í keppni björgunar
hunda við leit £ið fólki sem grafís
hefur í snjóflóðum. í tímariti, sen
Félag eigenda íslenskra hesta
Sviss gefur út, segir að aðrir kepp
endur, flestir SchAfer og Labrado.
hundar, hafi ætt út og suður um
leitarsvæðið og auk þess átt erfítt
með, vegna þyngdar sinnar, að
komast áfram í djúpum snjónum
en Vaka hafi hins vegar verið fljót
að finna hvar „sá nauðstaddi" lá
grafínn.
Guðrún Guðjohnsen formaður
Hundarætunarfélags íslands tjáði
Morgunblaðinu að árangur Vöku
væri sérlega ánægjulegur en þó
ekki óvæntur. Vaka væri af úrvals-
kyni og hefðu ýmsir frændur
hennar gert garðinn frægan erlend-
is, í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi
og Sviss. Vaka er undan Úu frá
Keldnaholti (83/79) og Játvarði
(18/82). Hún á systkini og frændur
víða um land. Vaka var flutt til
Sviss sem ungur hvolpur en eigandi
hennar, Ada Maissen, er tengda-
móðir Péturs Behrens listmálara
sem mörgum er kunnur. Pétur er
eigandi Uu, móður Vöku.
Guðrún sagði að þefvísi Vöku
kæmi ekki á óvart. Til væru skráð-
ar sögur um það að íslenskir hundar
hafi bjargað fé og fólki úr ýmsum
háska og taldi hún það dæmi um
að verið væri að sækja vatn yfír
lækinn að flestir björgunarhundar
hérlendis væru af innfluttu kyni.
Sagði Guðrún það leiðinlegt að ís-
lendingar þyrftu að láta útlendinga
uppgötva fyrir sig hvílíkur kosta-
gripur íslenski hundurinn væri.
Dagursafnað-
arhjálpar í
Reykjavíkur-
prófastsdæmi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá dómprófastinum
í Reykjavík:
„Reykjavíkurprófastsdæmi barst
stórkostleg gjöf úr Stofnendasjóði
EUiheimilisins Grundar til að efla
og styrkja safnaðarhjálp innan
prófastsdæmisins, hvort heldur ei
á vegum safnaðanna sjálfra, kven-
félaga þeirra eða annarra samtaka
Fyrstu árin bætast vextimir vic
höfuðstólinn, en síðan verður þein
úthlutað eftir reglum stofnskrárinn-
ar.
Einu kvaðimar, sem lagðar ert
á þá, sem æskja styrks úr sjóðnum.
er að þeir hafí árlega sérstakan dag
til eflingar sjóðnum, en hver söfnuð-
ur heldur því fé, sem berst, skv.
frekari reglum um safnaðarhjálp.
Forstjóri Elliheimilisins Gmndar,
Gísli Sigurbjömsson, hefur með
þessu gert það mögulegt að efla
slíka starfsemi og auka hana með
skipulegum hætti, og er það ríku-
legt þakkarefni.
Stjóm sjóðsins hefur ákveðið að
beina því til safnaða og presta að
gera sunnudaginn 25. október að
sérstökum degi safnaðarhjálparinn-
ar með því að fjalla um erindi hans
og styrkja hann til frekari dáða.
Er ekki síst skorað á kvenfélögin
og aðra þá aðila, sem hafa innt af
hendi svo ríkulega þjónustu að taka
höndum saman vegna þessa mál-
efnis."
Viðskipta-
samningur
við Kínverja
undirritaður
Viðskiptasamningur milli ís
lands og Alþýðulýðveldisins Kiní
var undirritaður i Peking 17. októ
ber sl. í samningnum er gert rác
fyrir að stjórnvöld geri viðeigandi
ráðstafanir til eflingar áfram-
haldandi og stöðugri þróui
viðskipta landanna, auk þess aé
sköpuð verði eins hagstæð skilyrði
fyrir þá þróun og hægt er, segir
í fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Samkvæmt samningnum verður
skipuð sameiginleg nefnd, sem fjallar
um viðskipti landanna.
Samningin undirrituðu Pétur
Thorsteinsson, sendiherra, og frú
Zhu Yulan, aðstoðarráðherra i
kínverska utanríkisviðskiptaráðu-
neytinu. Hann tók gildi við undirrit-
un.
I skíðaferðum vetrarins stefnum við á gamlar og
grónarskíðaslóðirsem eru íslensku skíðafólki að
góðu kunnar um leið og við bryddum upp á ferskum
nýjungum sem vert er að veita verulega athygli.
Við höldum þó fast í nokkra gamla siði og leitum að
vanda enn betri valkosta í gistingu, treystum
einungis á færustu fararstjórana og leggjum meiri
áherslu en nokkru sinni fyrr á val bestu
skíðasvæðanna. í ár skíðum við enn hærra!
mtHOGíMMMmmim
- Einungis fyrsta fiokks skíðasvæði
Aðal skíðastaðirnir í ár, Sölden og Saalbach/Hinterglemm,
hafa fyrir löngu skipað sér sess á meðal allra bestu
skíðalanda Evrópu. Fjölbreyttir möguleikar í gistingu, vel
staðsett hótel og vandaðir gististaðir ásamt fyrsta flokks
skíðaaðstöðu og fullkomnum aðbúnaði til leikja og hvíldar eru
dýrmæt trygging fyrir hnökralausri ferð.
SKÍÐIÍmSÍKU
Nú liggur leiðin á skíði í Coloradofylki í Bandaríkjunum, þar
sem aðstaðan í hrikalegri náttúrufegurð Klettafjallanna gefur
bestu skíðasvæðum Mið-Evrópu ekkert eftir.
DKAUMAVIKA ÍSAtlBllKG
Enn ein nýbreytnin er sérstakt tilboð Samvinnuferða-Landsýnar á
skíða- og listaferð til Salzburg. Þú skíðar á mörgum nafntoguðustu
skíðasvæðum Austurríkis á milli þess sem þú stundar listina að lifa
í háborg tónlistar og menningar!
Dæmi um verð:
Jólaferð til Sölden
I9.des.-2.jan.
Verð frá kr.
3S.S40,-
miöaö viö gistingu með morgunverði i tveggja manna
herbergi á Haus Meier. Innifaliö í veröi er akstur til og frá
f lugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur
kr. 9.000 fyrir böm yngri en tólf ára.
Brottför:
19. des.-2 vikur.
13.feb.-2 vikur.
27. feb. - 2 vikur.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu við Hagatorg • 91-622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-21400