Morgunblaðið - 25.10.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
45
Panda Björn
Jæja, hér kemur gæludýr október-
mánaðar, eins og ég lofaði. Þetta
er panda bangsi, og hann er um
40 sentímetra hár. Það er sérlega
gaman að sauma þennan bangsa,
og ekki svo erfitt ef farið er ná-
kvæmlega eftir númerunum á
sniðunum.
Panda bangsinn er tvílitur, eins
og sjá má á myndinni, og saumað-
ur úr loðefni (plussi). í hann fara
um 35 sm. af ljósa litnum og 25
sm. af þeim dökka - og svo auðvit-
að uppfyllingarefni, plast nef og
augu. Eins og ég hef áður bent á
fæst mikið úrval af þessum litlu
fylgihlutum f Saumasporinu f
Kópavogi, og eins í Litum og föndri
við Skólavörðustíg. Ég sá lfka mik-
ið úrval af allskonar plussefni í
Vogue við Skólavörðustíg.
(mynd nr. 2)
Úr ljósa litnum:
Nr. 106: Búkur, 2 stk.
Nr. 107: Bak, 2 stk.
Nr. 108: Fram og afturhluti höf-
uðs, 2 stk.
Nr. 109: Trýnið, sett á brot -
snfðið 1 stk.
Úr dökka litnum:
Nr. 110: Ytri handleggur, 2 stk.
Nr. 111: Innri handleggur, 2 stk.
Nr. 112: Ytri fótleggur, 2 stk.
Nr. 113: Innri fótleggur, 2 stk.
Nr. 114: Sóli, 2 stk.
Nr. 115: Eyru, 4 stk.
Nr. 116: Augnstykki, 2 stk.
Nr. 117: Rófa, 2 stk.
Öll snið klippt með 1 sm. saum-
fari, og gætið þess að láta snúa
rétt í plussefninu.
Panda bangsinn er saumaður
saman á eftirfarandi hátt:
Sniðin eru lögð saman rétt móti
réttu, köntunum tyllt saman með
títuprjónum (þvert á efnið), hárinu
ýtt vendilega innundir, og mér
finnst bezt að sauma með þéttu
sig-sag spori.
Höfuð: Eyrun saumast saman
rétt mót réttu, þeim snúið við og
þau þrædd á efri afturhluta höfuðs
milli þverstrika (saumur 10).
Höfuðstykkin lögð saman rétt
mót réttu þannig að fremra höfuð-
stykki liggi á þvf aftara, og stykkin
saumuð saman (saumur 11), eyrun
tekin með. Frá réttunni saumast
augnlappinn á fremra höfuðstykki
f höndunum (saumur 12-13). Sfðan
leggjast hinir tveir helmingar höf-
uðsins á hvorn annan, og þið
saumið fremri og aftari miðsaum.
Á trýninu saumast fyrst saman
miðsaumamir, sfðan þversaumam-
ir. Trýnisstykkið saumað á rúnnaða
kantinn á fremra höfuðstykki,
höfðinu snúið við og augun saumuð
í.
Handleggir: Saumið innri og
ytri handleggssstykkin saman rétt
mót réttu, og snúið þeim síðan við.
Fótleggir: Innri og ytri fót-
stykkin saumuð saman rétt mót
réttu. Sólamir saumaðir á og fót-
leggjastykkjunum snúið við.
Saumið saman miðsauminn á
maga og baki. Saumið hliða, axla
og rass sauma.
Handleggir og fótleggir saumað-
ir við þar sem númerin segja til
um. Búknum snúið við og hann og
höfuðið fyllt með troði. Hálskantur-
inn rykktur þar til hann mælist um
30 sm. Höfuðið saumað á í höndun-
um með sterkum þræði. Saumið
saman rófuna, snúið henni við og
troðið f hana. Hún svo saumuð á
f höndunum.
Um 5 sm. frá nefinu þræðið þið
með nál og enda allt f kringum
trýnið þar til tota myndast að fram-
an, festið svo endann vel. Að lokum
er svo nefið límt eða saumað á
samanber mynd.
Að vanda geta þeir sem áhuga
hafa fengið send snið af Panda
Bimi í réttri stærð með því að
skrifa til Dyngjunnar. Utanáskrift-
in er
Dyngjan,
Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Góða skemmtun,
Jórunn.
Slátrað allt
árið á Höfn
Höfn, Homafirði.
HAUSTSLÁTRUN hjá Kaupfé-
lagi Austur-Skaftfellinga er nú
að mestu lokið. Slátrun á vegum
félagsins fer fram á þremur stöð-
um: Á Höfn, Djúpavogi og í
Oræfum.
Á Höfn var slátrað 21.418 dilk-
um, alls 298.721 kg, 1.267 full-
orðnu 27.149 kg. Meðalvigt
innlagðra dilka 13,70 kg.
í Öræfum voru dilkar 5.127 sem
voru 77.432 kg, fullorðnu 402 sem
voru 9.082 kg. Meðalvigt innlagðra
dilka 14,83 kg.
Á Djúpavogi voru dilkar 9.060
sem vógu 133.022 kg, fullorðnir
844 sem vógu 20.148 kg. Meðalvigt
innlagðra dilka 14,35 kg.
Inn í tölu frá Höfn em 633 dilk-
ar sem slátrað var í sumar. í
sláturhúsinu á Höfn fer annars
fram slátmn allt árið. Fram til loka
september hafði verið slátrað 438
svínum, 23.229 kg og 440 nautgrip-
um sem vógu 61.160 kg. Slátrað
er að jafnaði um 50 gripum af
hvorri tegund á mánuði.
Einhverju lítilræði er óslátrað á
Höfn en í hinum húsunum er slátr-
un lokið. Sláturhússtjóri KASK er
Einar Karlsson.
- JGG
Sókn mótmæl-
ir söluskatti
á matvæli
FUNDUR stjómar og trúnaðar-
ráðs starfsmannafélagsins
Sóknar, haldinn 19. október,
sendir frá sér svohljóðandi álykt-
un:
„Stjóm og trúnaðarráð Starfs-
mannafélagsins Sóknar mótmælir
harðlega fyrirhuguðum söluskatti á
matvæli. Slík kjaraskerðing bitnar
harðast á þeim er síst skyldi.
Þá átelur stjóm og trúnaðarráð
Stafsmannafélagsins Sóknar ríkis-
stjómina og borgarstjóm Reykja-
víkur harðlega fyrir hækkun þá á
opinberri þjónustu er dunið hefur
yfir undanfarið. Opinber þjónusta
hefur hækkað langt umfram þær
kjarabætur er fengust fram 1. októ-
ber sl.
Sijóm og trúnaðarráð Starfs-
mannafélagsins Sóknar lýsir undmn
sinni á aðgerðum þessum á hendur
alþýðu landsins á þessu síðasta mess-
eri gildandi kjarasamnings, og bendir
á að fólk með laun á bilinu 29.975
til 36.686 hefur ekki greiðsluþol til
að bera slíkar álögur.
WordPerfect
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun
ritvinnslukerfisins WordPerfect.
FORRITIÐ ER Á ÍSLENSKU OG MEÐ
ÍSLENSKU ORÐASAFNI.
Dagskrá:
★ Helstu grundvallaratriði í DOS
★ Byrjendaatriöi í WordPerfect
★ Helstu skipanir við textavinnslu
★ Verslunarbréf og töflusetning
★ Dreifibréf
★ Gagnavinnsla
★ íslenska orðasafnið og notkun þess
★ Umræður og fyrirspurnir
Tími: 27.-29. okt. kl. 13-17
Innifalin í námskeiðsgjaldinu er nýja WordPerfect bókin.
VR og BSRB styðja sína félaga tií þátttöku á námskeiðinu.
Inniritun í símum 687590 og 686790
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
Leiðbeinandi:
Manhías Magnússon,
rithöfundur
benger
klORHEIM
TILBOÐSVIKA
Mánudag 26. og þriðjudag 27. okt.:
- allt á tilboðsslánni á 3000 kr.
Miðvikudag 28. og fimmtudag 29. okt.:
-alltátilboðsslánniá 2000 kr.
Föstudag 30. og laugardag 31. okt.:
-alltátilboðsslánni á 10OO kr.
Allt góðar vörur
Hverfisgötu 105, s. 23444.
TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA