Morgunblaðið - 25.10.1987, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 25.10.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987 HUGVEKJA Fyrirgefning eftir sr. Halldór Gunnarsson I 19. sd. e. Trin. Mt. 9; 1.—8. Fyrir allmörgum árum heyrði ég af vöruflutningabfl- stjóra utan af landi, sem varð fyrir því mikla óhappi að keyra yfir lítið bam í Reykjavík. Hann keyrði bflinn hægt um umferðargötu að morgni um haust. Gatan var hál. Allt í einu kemur bolti úr húsasundi og lítið bam þjótandi á eftir og beint út á götuna í veg fyrir fullhlaðinn vömflutninga- bflinn. Það skipti engum togum þótt hann sæi bamið koma í veg fyrir bflinn og stigi strax á bremsumar, bfllinn rann áfram og bamið fór fyrir hjólin. Við getum áreiðanlega ímyndað okkur ótta og angist mannsins þegar hann fór út úr bflnum í von um að bamið hefði bjargast með einhveijum hætti. En svo var ekki. Honum mætti örvingluð móðir yfír dánu bami sem leit til hans með augnaráði sem hann gleymdi ekki. Tíminn leið. Yfir- heyrslur, jarðarför, dómur. En þó var enn þyngri tími eftir. Að vakna upp af martröð aftur og aftur og sjá allt fyrir sér og þó sérstaklega auglit móð- urinnar, ásökun hennar og sorg. Bflstjórinn hætti að keyra vömbfl og í mörg ár á eftir ók hann ekki bfl í Reykjavík. A hveijum degi verða slys með einum eða öðmm hætti, sem breyta lífi viðkomandi. Ekkert verður eins og áður. Og við hvert slys þurfa aðilar að mætast sem ef til vill aldrei hafa sést áður og biðja fyrir- gefningar og fyrirgefa. Hvort tveggja er alltaf erfítt og oft mistekst það og stundum er jafnvel ekki eftir fyrirgefningu leitað. Getur ekki verið að sam- viskubit eða dómur í slíku tilfelli búi um sig þannig að maðurinn verði aldrei samur aftur? í guðspjalli þessa dags er sagt frá því að menn færðu lamaðan mann til Jesú. Og hann sagði við hann: „Vertu hughraustur bamið mitt, synd- ir þínar em fyrirgefnar." Og þegar fræðimennimir hneyksl- uðust sagði Jesús: „Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar em fyrirgefnar, eða segja: Statt upp og gakk?“ Frásagan ber með sér að syndavitund mannsins lamaði hann. Eitthvað í fortíðinni hélt honum í böndum. liklegast er að sú heimspeki sem þá var uppi og er enn, að allt lúti lög- máli orsaka og afleiðinga, væri ástæðan. Þjáning, slys eða böl væri afleiðing syndar í þessu lífí eða fyrri tilvemm og því bæri mönnum að taka út refsinguna, liggja lamaður eða taka mótlæti með þjáningu á annan hátt. Þessu mótmælti Jesús með boðskap sínum og gjörðum. Slysið er ekki afleiðing eða fyrirfram ákveðið, heldur er slys alltaf slys, eitt örstutt rangt andartak og umhverfíð lýtur lögmáli slyssins. Okkar er hveiju sinni að takast á við þær kringumstæð- ur sem upp koma og reyna að lifa stundina með jákvæðum huga. Séum við í þeim aðstæð- um sem guðspjallið greinir frá er okkur nauðsynlegt að horf- ast í augu við það sem skeð hefur og ef sektarkenndin kvelur okkur þá verðum við að leita fyrirgefningar. Forsenda þess er auðmýkt og eftirsjá og knýjandi þörf á að leita sátta, brúa bil og reyna að bæta fyrir. Miklu efiðara er að fyrirgefa. Til þess að geta það, verðum við fyrst að geta sett okkur í aðstæður þess sem biður fyrirgefningar og fært þá fóm að gleyma eig- in sársauka, særindum, sorg og þjáningu. Síðan að spyija: Hvað hefði ég gert, hefði þetta getað hent mig og hvemig hefði ég þá bmgðist við ef ég hefði mætt sama viðmóti og ég sýndi? „Allt sem þér því viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra." Bflstjórinn sem ég sagði frá f upphafí þessarar hugvekju lifði sársauka þess sem henti og reyndi að gleyma þessari átakanlegu stund. En hún var mótuð í undirvitund hans og kom fram við hinar ólíklegustu aðstæður í draumi og í vöku. Hann fékk engin viðbrögð í jákvæða átt þegar hann leitaði fyrirgefningar og treysti sér ekki til þess að reyna oftar en einu sinni. Það þarf að reyna oftar og ekki megum við gleyma að Drottinn, Jesús Kristur, heyrir bænir okkar, veitir fyrirgefn- ingu, bænheyrir og blessar. Hann stendur við dyr hugsun- arinnar og bænarinnar sem tengir tíma og rúm við hann og segin Syndir þínar em fyr- irgefnar, statt upp og gakk. Hann er sá sem einn getur gjört alla hluti nýja, gefíð þá auðmýkt sem þarf, gefíð þann þrótt sem gefur þor, gefið löngunina að bæta fyrir og gefíð endumýjunina. UFANDi PENINCAMARKAÐUR í KRINCIUNNI ^ULDABBÉFAMABKAPUR EURO-KBEDirKORTAPJÓNUS» líf- oa hblsutmee"T*tFAVIBsK,rTl hAbmal "Olskvldun Lína G. Atladóttir Margrét Hinriksdóttir Hjá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni erlifandi peningamarkaður og persónuleg þjónusta. Sigrún Ólafsdóttir Stefán Jóhannsson Opið mánudaga til föstudaga kl. 10 — 18 og laugardaga kl. 10 — 14 FJARFESTINGARFEIACIÐ Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700 Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa Gengi: 23. okt. 1987: Kjarabréf 2,359 - Tekjubréf 1,201 - Markbréf 1,245 - Fjölþjóðabréf 1,060
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.