Morgunblaðið - 25.10.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Wall Street
í ljósi sfðustu daga er rétt að
skoða stjömukort fyrir verð-
bréfamarkaðinn I New York
og Bandaríkin. Verðbréfa-
markaður New York-borgar
var stofnaður 17. maf 1792
kl. 10 um morgun. Sól, Merk-
úr og Venus voru f Nauti,
Tungl, Satúmus og Miðhim-
inn f Hrút, Mars f Meyju,
Úranus Rfsandi í Ljóni og
Júpfter og Neptúnus saman f
Vog í mótstöðu við Tungl/
Satúmus.
Fjárhœttuspil
Það á vel við að stærsti pen-
ingamarkaður f heimi skuli
i hafa Sól f hinu jarðbundna
Nautsmerki. Hins vegar er
Júpfter og Neptúnus ó móti
Tungli og Satúmus f Hrút
varhugaverð staða sem gefur
til kynna að þessi einkennist
ekki sfður af djarfri ævintýra-
mennsku og áhættuspili. En
það er kannski ekki við öðra
að búast en að kort fyrir
slfkan markað feli í sér and-
stæður milli jarðbundinnar
peningahyggju og ævintýra-
mennsku.
Athafnamenn
Einnig er athyglisvert við
kortið að ailar persónulegu
plánetumar og Rfsandi og
Miðhiminn era í jarðar- og
eldsmerlqum, þ.e. í þeirri
samsetningu sem skapar at-
hafnamenn. Hugsjónir og
athafnir (eldur) á sviði þess
áþreifanlega og jarðbundna.
Svartirdagar
Þann 24. sept. 1869 var talað
um svartan föstudag á mark-
aðnum. Þann dag var Neptún-
us f samstöðu við Tungl og
Úranus f spennuafstöðu, þ.e.
óvissa, upplausn og óvæntar
breytingar. Satúmus var
sfðan f Bogmanni og Venus
og Mars f Sporðdreka. 24. og
29. október 1929, tvo svarta
daga var Plútó f spennuaf-
stöðu við Tungl, þ.e. hreinsun
og endursköpun. Satúmus var
aftur f Bogmanni og nú vora
Sól og Mars í Sporðdreka.
ídag
19. október vora Venus,
Merkúr og Plútó í Sporðdreka
f mótstöðu við Venus. Satúm-
us var sfðan f Bogmanni eins
og áður. í korti Banda-
ríkjanna, 4. júlí 1776 er
Neptúnus nú f mótstöðu við
Júpfter og á leið inn f 2. hús
og í mótstöðu við Sól. Þetta
er varhugaverð staða og veit
ekki á gott fyrir Bandarfkin,
a.m.k. ekki hvað varðar efna-
hagsmál, á næstu áram. Hætt
er við að árið 1990 verði
slæmt. 1991 fer Úranus síðan
í mótstöðu við Sól Banda-
ríkjanna og þá má búast við
byltingu og róttækum breyt-
ingum sem væntanlega munu
rífa Bandarfkin upp úr því
sleni sem nú ágerist.
AÖhaldsaÖgerÖir
Til að ráða í núverandi at-
burði svo vel sé þyrfti ég að
skoða sögu Bandaríkjanna
betur og athuga stöðu pláneta
á mikilvægum tfmamótum.
Það ætla ég að gera og mun
þvf skrifa aðra grein sfðar.
Ég get þó í dag komið með
nokkrar ágiskanir. Afstöður í
stjömukortum verðbréfa-
markaðarins í Bandaríkjanna
f dag virðast ekki benda til
stórvægilegra atburða, eða
þess að hran sé yfirvofandi á
þessu eða næsta ári. Tel ég
Ifklegt að kynntar verði á
komandi dögum harðar að-
haldsaðagerðir sem eiga að
taka gildi í nóvember/des-
ember (Satúmus á Mars) og
á næsta ári (Satúmus á Sól).
Það ætti að dempa mestu
hræðsluna. Samfara því má
búast við að samdráttur verði
innanlands og að dregið verði
úr þenslu og flárlagahalla.
GARPUR
ALDREl HELTéGAO
ÉG MVNP! PU/ZFA AO
f&ÐAsr 'a hÖll
A BEINA
EN STOTT pn? aojafn- J VEL GARPUR
nWVR EKE/ h/nn TP/SL aaaqn- Éi|pL_T7 'íl
W W £/0)OÍ\1 r\ m STAFf a
/ n -/-.?</ \ V
!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!;!!!!!!!
:::::::::r:tr r •
:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
GRETTIR
................................................ ■: ... ...................... :::... ...:. .. . ::::: .: :: . . • ■; : :.........................................................:V:r::f-
TOMMI OG JENNI
DRATTHAGI BLYANTURINN
42 D
Vj) PlB copenhagen
?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!?!!?*!!!!!!!!!!!*!!!!!!!!!?!!!!!?!!!!!!!!!!!??!'
FERDINAND
Þetta var líklega ekkert Ég fékk engin bréf frá Sem betur fer getur það
góð hugmynd.
kærustunum og nú sit ég ekki orðið verra...
fastur f póstkassanum!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Suður hélt að hann væri laus
allra mála þegar hann stökk f
fjögur hjörtu við opnun makkers
á tveimur gröndum. En annað
átti eftir að koma á daginn.
Norður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ 854
VKG7
♦ DG10
♦ KDG9
Norður
♦ ÁKD76
♦ Á42
♦ Á54
♦ Á3
Austur
♦ G109
¥8
♦ K983
♦ 108762
Suður
♦ 32
♦ D109653
♦ 762
♦ 54
Vestur Norður Austur Suður
— 2 grönd Pasa 4l\jörtu
Pass 6 hjörtu Pasa Pasa
Paæ
Suður taldi sig hafa sett
markið nógu hátt með því að
reyna við tíu slagi og var því
fegnastur þegar enginn doblaði.
En vissulega er norðri vorkunn
að skjóta á slemmuna með 9
kontról og þéttan lit.
Vestur spilaði út laufkóng.
Sagnhafi drap á ás og kannaði
stríðsgæfuna með þvf að spila
þremur efstu f spaða og henda
laufi heima. Þegar allir fylgdu
lit var útlitið mun bjartara. Nú
var spilið unnið ef trompið lægi
þægilega.
Eðlilegasta fferðin er að taka
á hjartaásinn og spila meira
hjarta. En sagnhafi vildi halda
fleiri möguleikum opnum og
spilaði litlu hjarta frá ásnum.
Austur lét strax lítið, tían heima
og gosi vesturs átti slaginn. Það
þarf virkilega góðan spilara f
sæti austurs til að dúkka um-
hugsunarlaust með kónginn
annan f þessari stöðu, svo sagn-
hafi þóttist þess fullviss að
annað hvort væri kóngurinn f
vestur, ellegar austur ætti hann
valdaðan eftir.
Vestur skipti yfir í tígul-
drottningu, sem sagnhafi drap á
ás og trompaði lauf heim. Lét
svo út hjartaníuna. Nú þurfti
vestur aðeins að leggja á til að
tryggja vöminni tvo slagi á tfgul,
en hann misskildi stöðuna og
setti lítið. Nían var þá látin rúlla
yfir, hjartaásinn sá um síðasta
tromp andstöðunnar og tíglamir
tveir fóru niður í fríspaða.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Pinerolo á Ítalíu
í ár kom þessi staða upp í viður-
eign stórmeistaranna Velim-
irovic, Júgóslavíu, sem hafði hvítt
og átti leik, og Suba, Rúmenfu.
19. Hxf6! - Bxc2 (Eftir 19. -
Bxf6, 20. Dxd6 á svartur enga
vöm við hótuninni 21. Rc7+). 20.
Hcl! - Bxf6, 21. Hxc2 - Db7,
22. Dxd6 - Be7, 23. Rc7+ -
Kf8,24. Kf2+ og Suba gafst upp.