Morgunblaðið - 25.10.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
61
Korchnoi fylgir fast
*
a
hæla Jóhanni
Margeir Pótursson
Að loknum fimm umferðum
á stórmóti Investbankans i
Belgrad er Jóhann Hjartarson
efstur með fjóra vinninga, en
i öðru sæti er andstæðingur
hans i fyrstu umferð ásko-
rendaeinvigjanna, sjálfur
Viktor Korchnoi. Árangur Jó-
hanns á mótinu hefur verið
ótrúlega góður til þessa. Nái
hann að halda sama striki, hef-
ur hann fest sig i sessi á meðal
10-20 beztu skákmanna í heirni.
Það verður þó ekki auðvelt,
andstæðingar hans seinni hluta
mótsins eru þeir Beljavsky,
Popovic, Nikolic, Korchnoi,
Timman og Ljubojevic i þessari
röð.
Heildarstaðan á mótinu eftir
fimm umferðir var þannig:
1. Jóhann Hjartarson 4 v.
2. Korchnoi 3V2 v.
3. -4. Timman og Salov 3 v.
5. -8. Ljubojevic, Short, Beljavsky
og Popovic 2V2 v.
9.-11. Gligoric, Ivanovic og Ni-
koiic 2 v.
12. Marjanovic V2 v.
Baráttan á mótinu hefur verið
gífurleg og flestallar skákimar
tefldar til þrautar. Átján af þijátíu
fyrstu skákunum hafa unnist, sem
er óvenjulega hátt hlutfall í þess-
um styrkleikaflokki, eða 60%.
Það þarf meðbyr til að geta
unnið þrjár af fyrstu fimm skák-
unum á svo öflugu móti og í
skákinni við júgóslavneska stór-
meistarann Ivanovic var Jóhann
óneitanlega mjög farsæll. Eins og
í skákinni við Short reyndist hann
mun útsjónarsamari í tímahraki
en andstæðingurinn og það réð
úrslitum.
Hvítt: Ivanovic (Júgóslaviu)
Svart: Jóhann Hjartarson
Spænski leikurinn
1. e4 - e5 2. RfS - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7
6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3
- 0-0 9. d4 -
Þessu afbrigði bregður ætíð
fyrir öðm hvom, en miklu algeng-
ara er 9. h3 —
9. - Bg4 10. d5 - Ra5 11. Bc2
- c6 12. h8 — Bc8 18. dxc6 —
Dc7 14. a4 - Dxc6 15. Rbd2 -
Bb7?!
Hér er venjulega leikið 15. —
Be6 sem er eðlilegri leikur.
16. Bd3 - Rc4 17. De2 - Rxd2
18. Bxd2 - bxa4 19. Ddl - Rd7
20. Be3 - Rb6 21. Bxb6 - Dxb6
22. Hxa4 - a5 23. Ha2 - Bc6
24. Bc2 - Db7 25. De2 - g6?
Þetta er alvarleg ónákvæmni
sem gefur hvíti færi á hagstæðum
uppskiptum á biskupum. í fram-
haldinu situr svartur uppi með
lélegan biskup gegn virkum ridd-
ara hvíts. Mun betra var því 25.
- Hfb8.
26. Ba4! - Bxa4 27. Hxa4 -
Hfb8 28. Ha2 - Db3 29. Hfal
- Bd8 30. Hfl - Bc7 31. Rd2
- Db7 32. Rc4 - Kg7 33. Dd3
- Dc6 34. Kgl - HbS 35. Rd2
- Hbb8 36. Dc4 - Dxc4 87.
Rxc4 - Hb3 38. Kfl?
Ivanovic tefldi hratt og hugðist
notfæra sér mikið tímahrak Jó-
hanns, en eftir þennan slaka leik
nær svartur að tvöfalda hróka
sfna á b-línunni og ná þannig full-
nægjandi mótspili gegn b2. Sjálf-
sagt var að leika 38. Rd2 og síðan
39. b4 eftir að hrókurinn hefur
vikið sér undan. Svarta peðið á
a5 hlýtur þá að falla.
38. - Hab8 39. Hdl - h5 40.
Ke2 - f5 41. f3 — Kf6 42. Hd2
- Ke6 43. Hd6 - f4?!
Það er hvíti í hag að draga úr
spennunni á miðborðinu. Betra
var 43. — h4 og staðan virðist
u.þ.b. í jafnvægi.
44. Kd3 - g5 45. Kc2 - H3b5
46. Hxb5 - Hxb5 47. Hal -
Hc5 48. Rd2 - Bb6 49. Rb3 -
Hb5 50. Ha4 - Bc7 51. c4 -
Hb8?
Hér var nauðsynlegt að reyna
51. — Hb4, því þessi peðsfóm
stenst ekki, eins og Ivanovic var
á góðri leið með að sýna fram á.
Jóhann var nú aftur að komast í
mjög mikið tfmahrak.
52. Rxa5 - Ha8 53. b4 - g4
54. hxg4 — hxg4 55. c5!
Yfír þennan möguleika hafði
Jóhanni sést þegar hann fómaði
peðinu. 55. — dxc5 er nú svarað
með 56. Rb3! Staðan er því töpuð
og tíminn búinn, en Jóhann ör-
vænti þó ekki og hélt áfram eins
og ekkert hefði í skorist:
55. - Hh8 56. Rc4 - dxc5 57.
Ha7 - Hh2
Hér hefði hvítur átt að leika
58. Kd3! með unninni stöðu, en
með fallvísi Jóhanns hangandi á
bláþræði sá hann ekki ástæðu til
slíkra varúðarráðstafana og lék:
58. Hxc7?? - gxf3
Hér krossbrá Ivanovic auðsjá-
anlega, því að sögn Leifs Jósteins-
sonar kipptist hann við í sætinu.
Hann mun hreinlega hafa gieymt
leppun g-peðsins og aðeins reikn-
að með 58. — Hxg2+
59. Hc6h— Ke7 og eftir nokkra
umhugsun ákvað Ivanovic að
gefast upp. Hann getur ekki
hindrað að svartur fái nýja
drottningu. Tvö dæmi: 60. Rd2
- fxg2 61. Hg6 - f3 62. Rxf3
- gl=D+ eða 60. Kd3 - fxg2
61. Hg6 - HhS+! 62. Ke2 -
Hg3 63. Hxg3 - fxg3.
Viktor Korchnoi er orðinn
nokkuð mistækur með árunum,
en þegar hann nær sér á strik
standa honum fáir á sporði.
Eftir Iélega byrjun hefur hann
unnið þijár skákir í röð, fyrst
vann hann Gligoric, sfðan fre-
staða skák sína við Beljavsky
og f fyrradag vann hann Marj-
anovic, sem er alveg heillum
hcrfinn.
Korchnoi hafði ótrúlega lítið
fyrir því að vinna Sovétmeistar-
ann Beljavsky:
Hvitt: Viktor Korchnoi
Svart: Alexander Beljavsky
Drottningarbragð
1. d4 - d5 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Rf6 4. Bg5 - Be7 5. e3 - h6
6. Bh4 - 0-0 7. Hcl - c5!? 8.
dxc5 — dxc4 9. Bxc4 — Dxdl+
10. Kxdl -
Hvítur virðist tefla mjög mein-
leysislega, en á móti Korchnoi er
ekki nóg að skipta snemma upp
á drottningum til að fá jafntefli.
10. - Rbd7 11. Rf3 - Rxc5 12.
Ke2 - a6 13. a4 - Hd8 14.
Re5! - g5 15. Bg3 - Rfe4?
Það háir svarti mikið í fram-
haldinu að vera ekki búinn að
koma biskupnum á c8 á framfæri
og tengja hrókana. Nú hafði hann
tfma til að leika 15. — Bd7, en
sækist í staðinn eftir frekari upp-
skiptum.
16. Rxe4 - Rxe4 17. Bd3! -
Rc5 18. Bc2 - Rd7 19. Rc4 -
e5!?
Það er orðið ljóst að hvítur
hefur náð öruggum tökum á stöð-
unni og nú er svo komið að
Beljavsky vill fóma peði til að
losa um sig. Eftir 20. Rxe5 —
Rxe5 21. Bxe5 — Be6 hefur svart-
ur viss mótfæri á drottningar-
væng. Korchnoi er vanur að hirða
peð sem iiggja á glámbekk, en
að þessu sinn metur hann það
meira að halda svarti í úlfakrepp-
unni.
20. Hhdl - f6 21. f3 - Hb8
22. Rd6 - Rc5 23. Rxc8 -
Hbxc8 24. b4 - Re6 25. Hxd8
- Hxd8
Auðvitað ekki 25. — Bxd8? 26.
Bh7+
26. Bb3 - Kf7 27. Hc7!
Báðir léttir menn svarts eru
leppaðir f bak og fyrir, svo hann
fær enga björg sér veitt.
27. — b5 28. axb5 — axb5 29.
f4! og svartur gafst upp, því hann
fær ekki hindrað að svartreita-
biskup hvfts komist í sóknina og
geri út um taflið.
STI& 1 2 3 H 5 (0 7 8 9 10 H ii VINN. RÓÐ
1 KORCHNOI CSvis*) 2430 CíZá 0 •A 1 1 1
2 TlMMANCHolMi) 2430 i m, 'L 'k 1 O
3 LT(J60J£VIC (Jd^l.) 2(25 íz ý4 /z %
H G-UGOftlC CJd^ótl) 252J 0 % v/Zl 'k 0 \
5 MARTANOVIC 2505 0 m O O L O
lo SA LOV(Sovtlnlc'jtMU/wi) 2575 m 'lz 1 Yt %. h
? SH0RT (EngLnJi) Ulö 'k I i O 1 0
8 IVANOVtCCJúaósl.) 2535 1 O 0 m O f
9 JöUANN NJARTfíRS. 2550 L 4 ít 1 1 .
10 POPoVlcCJútfsUv'.i) 2SÍO 'k 1 /í !z 0 M y///
11 N1KOL-IC ( Tú<jóstaviu\ 2(20 0 /í O 1 % m
12 OELJA VSk.yCSové. tr) 2(3 0 0 y O z/2l
t
Innilegar þakkir sendi ég öllum sem sýndu mór samúð og hlýhug
við andlát og útför mannsins mfns,
GUÐMUNDAR BJÖRNSSONAR,
Sunnubraut 22,
Kópavogi.
Þórhelður Guðrún Sumarliðadóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar og
tengdafööur,
SIGURÐAR T. JÓNSSONAR
frá Úthlfð.
Gfsli Sigurðsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Björn Sigurðsson,
Sigrún Sigurðardóttlr,
Kristfn Sigurðardóttir,
Jón H. Sigurðsson,
Baldur Sigurðsson,
og barnabörn.
Jóhanna Bjarnadóttir,
Hróar Björnsson,
Agústa Ólafsdóttir,
Guðmundur Arason,
Grelpur Sigurðsson,
Kristbjörg Steingrfmsdóttlr
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
REBEKKA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Eskiholtl 21,
Garðabas,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. október kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent ó Hjartavernd.
Ragnhelður Brynjólfsdóttir, Engllbert Engilbertsson,
Ólöf Brynjólfsdóttlr, Slgurður Þorsteinsson
og barnabörn.
Blómastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öilkvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
' Gjafavörur.
;