Morgunblaðið - 25.10.1987, Qupperneq 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
62
ijc i bivii rvirMyndanna
Verður sýnd á næstunni í Háskólabíói
Riddari götunnar
RoboCop er löggumynd um vélmenni með sál
Háskólabíó sýnir innan skamms
lögreglumyndina RoboCop, sem
frumsýnd var í Bandaríkjunum í
sumar og Hollendingurinn Paul
Verhoeven leikstýrði. Myndin ge-
rist í náinni framtíð og segir frá
löggunni Murphy í Detroit (Dallas
fer með hlutverk borgarinnar) sem
óþokkagengi skýtur bókstaflega í
tætlur. Löggæslan hefur verið flutt
(einkageirann og lögreglufyrirtæk-
ið Security Concepts tekur leifarn-
ar af Murphy og gerir úr þeim
vélmenni, RoboCop,. Það er risa-
vaxið ósigrandi stálmenni, lögga
sem vinnur allan sólarhringinn,
hlær að byssukúlum og er ónæm
fyrir mútum. En á bak við víraflæk-
ur, stálbrynjur og tölvuskipanir
þessa traustvekjandi riddara gö-
tunnar lúrir sálin hans Murphys
og mannlegar tilfinningar löggunn-
ar sem var.
Þessi fyrsta Hollyvoodmynd
Verhoevens, sem annars er þekkt-
ur fyrir listrænar evrópumyndir
sínar, hlaut glimrandi aðsókn í
Bandaríkjunum og yfirleitt góða
dóma þótt kvartað hafi verið yfir
RoboCophasarblaðlð.
ofbeldinu í henni (sumt af því varð
að klippa í burtu svo myndin yrði
ekki bönnuð fólki innan 17 ára).
En RoboCop er meira en bara
löggumynd. Hún þykir líka hárbeitt
satíra á harðneskjulegar risasam-
steypur og glettin lýsing á frétta-
þjóðfélagi framtíðarinnar (eða
okkar). Þegar yfirmaður (Ronnie
Cox) risasamsteypunnar sem gerir
RoboCop er að kynna aðra og
miklu klunnalegri gerð af stállöggu
á stjórnarfundi og hún bilar og
skýtur einn framkvæmdastjórann
segir hann: „Ég er viss um að
þetta er aðeins smábilun." [ at-
burðarás myndarinnar er reglulega
skotið inn fréttaþáttum. „Gefðu
okkur þrjár mínútur og við gefum
þér heiminn," segir fréttaskýrand-
inn og segir svo frá því að Stjörn-
Leikstjórlnn, Paul Verhoeven.
ustríðs-stöð úti í geimnum hafi
óvart skotiö á heilsuhæli í Santa
Barbara og tveir fyrrverandi forset-
ar landsins hafi farist.
Enginn skyldi fara í grafgötur
með það að Verhoeven fer í
Með erklóvlnlnum.
þegar hann bjó það til. Flest vél-
menni sýnast sterkleg en heimsku-
leg. Þetta er sterklegt og fágað."
Peter Weller leikur
RoboCop.
RoboCop hrelnsar til f borglnnl.
hvívetna eftir hinni gullnu reglu
ameríska kvikmyndaiðnaðarins;
hasarinn fyrst. „Ég held að mark-
miðið hjá mér só að tengja saman
evrópska kvikmyndahefð við þá
amerísku - eitthvað í líkingu við
það sem David Lean hefur gert:
áhugaverðar persónur plús has-
ar,“ segir Verhoeven í nýlegu
viðtali við American Film. „Ég vona
að myndir mínar búi yfir hrjúfum
krafti og séu ekki of mikið að þykj-
ast vera listrænar. Ég átti alitaf í
vandræðum með listrænar evróp-
skar myndir; mér fannst þær
leiðinlegar. Amerískar myndir
kenndu mér að hreyfing er mikil-
vægari en samtöl og persónur."
Þegar Verhoeven er spurður út
í hið mikla ofbeldi í mynd sinni
segir hann að það sé nú ekki svo
mikiö: „Það er aðeins í nokkrum
atriðum, held ég. Sérstaklega þeg-
ar Murphy er drepinn. Frá því ég
tók að mór að gera myndina vildi
ég að dauði hans yrði sérstaklega
grimmilegur. Það var nauðsynlegt,
hugmyndafræðilega og dramatískt
séð. Hann hefur ekki haft tíma til
að vinna samúö áhorfandans,
hann hefur ekki gert neitt minnis-
stætt áður en hann er drepinn.
Þess vegna verður dauði hans aö
vera eftirminnilegur."
Það tók langan tíma að þróa
vélmennabúninginn. Leikarinn
Peter Weller, sem fer með hlut-
verk Murphy/RoboCops og vill svo
til að er langhlaupari, var tíu tíma
að koma sér í búninginn fyrsta
daginn og stundum var hitinn inni
í honum næstum óbærilegur. „Vél-
menni hafa tilhneigingu til að vera
kjánaleg," segir Verhoeven. „Þeg-
ar viö litum yfir tökur dagsins sáum
við hvað gekk og hvað ekxi, hvaða
sjónarhorn á vólmennið voru not-
hæf og hver ekki. Bob Bottin,
hönnuður vólmennisins, fór mjög
eftir vöðvabyggingu mannsins
Sýnd í Regnboganum
Allen á öldum Ijósvakans
Á öldum Ijósvakans (Radio
Days), fimmtánda myndin sem
Woody Allen skrifar handrit að og
leikstýrir, er nú sýnd í Regnbogan-
um. Þetta er lítil mynd frá Allen og
i henni leika margir af samstarfs-
mönnum hans á síðustu árum en
hún gerist við upphaf seinni heims-
styrjaldarinnar og snýst að mestu
um Ijúfar öldur Ijósvakans og
mannlífiö í kringum hinn unga Joe,
sem er miðpunktur myndarinnar
og gæti vel verið Allen sjálfur.
Myndin segir frá þeim löngu
horfna tíma þegar útvarpið eitt réð
lögum og lofum á heimilinu og
tengdi fólk beint við umheiminn.
Hver átti sér sínar útvarpsstjörnur,
ekki síst Joe litli. Allen kemur ekki
fram í myndinni en er sögumaður.
Meðal leikara í myndinni er að
sjálfsögðu Mia Farrow, sem býr
með Allen og hefur leikið í fimm
síðustu myndum hans, og Dianne
Wiest, sem var svo eftirminnileg í
Hönnu og systrum hennar en lék
líka í Kaírórósinni, Danny Aiello og
Jeff Daniels fara með lítil gesta-
hlutverk og einnig hinn gamalkunni
Allenleikari Tony Roberts.
Síðast en ekki sist kemur svo
Diane Keaton fram í Á öldum Ijós-
vakans en þessi gamla vinkona
Allens hefur verið í sex öðrum
myndum hans.
Þegar myndin var frumsýnd í
Bandaríkjunum f febrúar sl. talaði
Allen um tímann sem myndin ge-
rist á þegar útvarpið var eitt um
að skemmta fólki heimafyrir:
„Þetta var sórlega rómantfskur
tími. Hugrakkir ungir menn kvöddu
elskurnar sínar og héldu í stríðið
og það var gríðarlega mikið sungið
um það. Þetta var einfaldari tími
og tónlistin sem maður heyrði þá
í útvarpinu var ekki hávært, tryll-
ingslegt rokk. Hún var indæl.
Maður kveikti á útvarpinu og
heyrði í Benny Goodman og Glenn
Miller. . . Útvarpið átti sterk ítök
f fólki. Maður gat varla beðið eftir
því að fara á fætur á morgnana
og sitja heima og hlusta á útvarp-
ið allan liðlangan daginn."
Og áfram heldur Allen: „Allt
landið var tengt saman með út-
varpinu. Við upplifðum öll sömu
hetjurnar og grínarana og söngvar-
ana. Það voru risar ( skemmtana-
iðnaðinum. Þetta voru einu sinni
svo stór nöfn en núna eru þau öll
gersamlega horfin. Allar þessar
frábæru hetjur og dularfullu per-
sónur sem við lifðum með þegar
óg var ungur eru fallnar í gleyms-
kunnar dá eða þær lifa ( minning-
um svo örfárra. Það segir manni
svolítið. Það tók þeim enginn fram
þegar ég var að alast upp. Við
höldum að við sóum svo vinsæl á
meðal almennings, svo fræg, en
eftir því sem tímar líða gleymumst
við Ifka. Það kennir okkur lítillæti."
Wallace Shawn, Mla Farrow og Tony Roberts f A öldum Ijósvakans.