Morgunblaðið - 31.10.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987
31
Reuter
70 ára afmæli byltingarinnar
Hinn sjöunda nóvember verður 70 ára afmæli októberbyltingar-
innar í Sovétríkjunum minnst. Mánaðaruglingurinn stafar af
tímatalsbreytingum, sem áttu sér stað síðar í Rússlandi en ann-
ars staðar. Nú þegar er undirbúningur fyrir gegndarlaus
fagnaðar- og hátíðarhöld þar eystra í algleymingi og má hér
líta glæsa framhlið Kremlarmúra. Heiðursvörðurinn gengur
gæsagang fram hjá grafhýsi Leníns, en þar bíða menn í löngum
röðum til þess að fá að sjá smyrling byltingarleiðtogans. Þess
má geta að skreytingin í bakgrunni er tíu hæða há.
Stjórnvðld á Sri Lanka:
Skæruliðum tamíla
settir úrslitakostir
Colombo, Reuter.
JUNIUS Jaywardene, forseti Sri Lanka, setti skæruliðum úrslita-
kosti í gær. Sagði Jaywardene að þeir gætu valið milli kosninga og
náðunar annars vegar og byssukúlna hins vegar.
Forsetinn sagði á blaðamanna-
fundi að hann ætlaði að láta verða
af fyrirhuguðum sveitastjómakosn-
ingum. Hann kvaðst aftur á móti
ekki ælta að setja á fót bráðabirgða-
stjóm, sem lagt hafði verið til að
yrðu myndaðar í norðri og austri,
vegna bardaga við skæruliða
tamíla. Sagði Jaywardene að áhrifa
átakanna, sem marxískir skærliðar
em sakaðir um að standa fyrir,
væri farið að gæta í suðurhluta
landsins.
Jaywaredene endurtók tilboð sitt
um að náða skæruliða, sem legðu
niður vopn og virtu reglur lýðræðis.
Stjómvöld á Indlandi og Sri
Lanka undirrituðu sáttmála um að
binda enda á fjögurra ára baráttu
aðskilnaðarsinna tamfla 29. júlí. í
sáttmálanum var kveðið á um að
indverskar hersveitir myndu fylgj-
ast með því að vopnahléð yrði virt
og hémð í norðri og austri fengju
takmarkað sjálfsforræði.
>
IMý gerð af leðurlúx
Ný gerö af leðurlúxsófasettum
Nýjar sendingar af vönduð
um leðurs.ófasettum og
hornsófum í miklu úrvali.
Hagstætt verð.
Opiðtil kl. 16.00
í dag.
VALHUSGÖGN
ÁRMÚLA 8. SÍMI 82275.
Notaðir sendibílar á
verði!!
1. MAZDA E 2000 4x4 árg. ’86, litur hvítur. Kr. 760.000
2. MAZDA E 2000 4x4 árg. '87, litur hvítur... Kr. 850.000
3. MAZDA E 2000 árg. ’84, litur blár..... Kr. 550.000
4. MAZDA E 2200 árg. '86, litur blár..... Kr. 670.000
5. MAZDA E 2200 árg. '84, litur rauður... Kr. 550.000
6. VW Transporter pickup árg.’83......... Kr. 330.000
7. KIAMASTER m/9 sætum árg. '86, litur blár. Kr. 450.000
8. Mitsubishi Minibus árg. '83, litur rauður. Kr. 330.000
9. Nissan Cabstar með kassa árg ’83, litur blár... Kr. 500.000
Góð greiðslukjör!
Opið
laugardaga frá kl. 1-5
ÐILABORG HF.
FÓSSHÁLSI 1,S. 68-1299.