Morgunblaðið - 31.10.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987
Karpov og Kasparov að tafli f Sevilla á Spáni.
Nær Karpov að
auka forskotið?
Skák
Margeir Pétursson
Þeg-ar sjöunda einvígisskák
þeirra Kasparovs og Karpovs
fór í bið í gær í Sevilla á Spáni
blasti mjög erfið vörn við
heimsmeistaranum og miklar
líkur á að Karpov tækist að
auka forskot sitt upp í 4-3. í
biðstöðunni hefur Karpov
skiptamun yfir, en Kasparov
hefur tvö peð í bætur. Peðin
nýtast honum þó ilia í stöðunni
og hann hefur ekkert mótspil,
en drottning og hrókur
Karpovs vinna hins vegar vel
saman. Þetta er einmitt staða
sem Karpov nýtur sín afskap-
lega vel í og þvi full ástæða til
að spá honum sigri.
Meistaramir komu enn á óvart
í byrjanavali sínu. Kasparov beitti
eina ferðina enn Grunfeldsvöm,
þrátt fyrir að skor hans gegn
Karpov með þeirri byijun sé að-
eins 33%. Heimsmeistarinn hefur
beitt byijuninni 12 sinnum áður
gegn Karpov og náð átta jafntefl-
um, (jórum sinnum tapað og aldrei
unnið. Þetta er sem sagt ekki hlut-
fall sem hæfír heimsmeistara og
bendir til þess að byijunin sé ekki
nægjanlega traust.
Þrátt fyrir góðan árangur
Karpovs gegn byijuninni hefur
honum ekkitekist að hrekja hana
fræðilega. í fímmtu skákinni í
Sevilla lenti hann í miklum vand-
ræðum eftir að hafa krækt sér í
peð, en tókst síðan að vinna skák-
ina eftir að Kasparov hafði gerst
of djarfur í sókninni. Það kom því
mjög á óvart að Karpov iék sama
leikinn í skákinni í gær og það
var ekki fyrr en í 16. leik að
Kasparov breytti út af. Að sögn
Reuters fréttastofunnar voru stór-
meistarar í Sevilla agndofa yfír
því að Karpov skyldi endurtaka
þetta vafasama afbrigði, því hann
er þekktur fyrir annað en að tefla
á tvær hættur.
Byijun hans í gær heppnaðist
öllu betur en í fímmtu skákinni
og eftir að hann fómaði peðinu
til baka í 22. leik kom upp geysi-
lega flókin staða. Kasparov brá á
það ráð að fóma skiptamun fyrir
tvö peð, en eftir það var alveg
ljóst að möguleikamir á sigri voru
allir Karpovs megin. Biðskákin
verður tefld í dag, en áttunda
skákin á mánudaginn.
7. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Griinfeldsvörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3
— d5 4. cxd5 — Rxd5 5. e4 —
Rxc3 6. bxc3 — Bg7 7. Bc4 —
c5 8. Re2 - Rc6 9. Be3 - 0-0
10. 0-0 Bg4 11. f3 — Ra5 12.
Bxf7+
Það er almennt álit byrjanasér-
fræðinga á þessum leik að hvítur
teggi of mikið á stöðu sína til að
vinna peðið.
12. - Hxf7 13. fxg4 - Hxfl+
14. Kxfl - Dd6 15. e5 - Dd5
16. Bf2 - Hd8!?
í fímmtu skákinni lék Kasparov
hér 16. — Hf8 og hélt öruggu
frumkvæði eftir 17. Kgl — Bh6
18. h4!? - Df7 19. Bg3 - Be3+
20. Kh2 — Dc4. Nú hótar Ka-
sparov 17. — Bxe5.
17. Del - De4 - 18. g5 - Df5
19. h4
Karpov vill múra svartreita-
biskup andstæðingsins inni með
því að setja peð sín á svarta reiti.
Til að losa um sig verður svartur
fyrr eða síðar að íeika h7-h6.
19. - Rc4 20. Kgl - Dg4 21.
a4 - h6
Ef hvítur ætti nú ekkert betra
en 22. gxh6? — Bxh6 væri hanr
í miklum vandræðum vegna hót-
unarinnar 23. — Re3. Karpov
verður að hleypa taflinu upp í
miklar flækjur til að forða þessu.
22. Ha2! - hxg5 23. Dbl -
gxh4 24. Db3 - De6 25. Rf4 -
Df7 26. Rxg6 — Dxg6 27. Dxc4+
— Kh8 28. Hb2!
Óþægilegur leikur sem tekur
möguleikann 28. — Dbl+ af
svörtum og hótar bæði 29. Hxb7
og 29. Bxh4.
28. — cxd4 29. cxd4 — Dg4 30.
Df7
Kasparov bregður nú á það ráð
að fóma skiptamun fyrir bæði
miðborðspeð hvíts. Með því losar
hann auðvitað um biskupinn á g7,
en þó er eins og hann hafí ekki
metið stöðuna eftir skiptamuns-
fómina rétt. Hér kom vel til greina
að leika 30. - Dg5, því 31. Hxb7?
gengur auðvitað ekki vegna 31.
— Bxe5! Hins vegar stendur
hvítur eitthvað betur eftir 31. Hbl
— Hf8 32. De6! Annar nærtækur
leikur er 30. — h3 og eftir 31.
Be3 - hxg2 32. Hxg2 - Ddl+
33. Dfl ætti svartur að geta hald-
ið endataflinu.
30. - Hxd4 31. Bxd4 - Dxd4+
32. Hf2 - Dxe5 33. Hf5 - Del+
34. Hfl - De5 35. Khl
Karpov teflir til vinnings, 35.
Hf5 hefði leitt til þess að sama
staðan kæmi upp aftur.
35. - b6 36. Df4 - Dh5 37.
Df5 - De2
Kasparov víkur sér undan
drottningakaupum, því eftir þau
myndi hvíti hrókurinn strax gera
usla á drottningarvængnum.
38. Hcl - Bf6 39. Dg6! - De6
40. Hdl - Dc8 41. Hfl - Dd7.
í þessari stöðu fór skákin í bið
og Karpov, hvítur, innsiglaði sinn
42. leik. Það er ljóst að Kasparov
á mjög erfíða vöm fyrir höndum,
t.d. má benda á framhaldið 42.
Dh5+ - Kg8 43. Hf4!
Þing Verkamannasambands íslands:
Oþolandi misgengi
launa í miklu góðæri
EFTIRFARANDI kjaramála-
ályktun var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum á þingi
Verkamannasambands íslands á
Akureyri í gær:
Það sem einkennir stöðu kjara-
mála nú er annarsvegar óviðunandi
kjör fískvinnslufólks og annarra
láglaunahópa en hinsvegar óþolandi
misgengi launa í þjóðfélaginu.
Þetta gerist á sama tíma og mik-
ið góðæri hefur gengið yfír þjóðina.
Jafnframt hefur óheft þensla og
launaskrið virkað til ójöfnuðar í
tekjuskiptingu þar sem þenslu-
greinamar hafa fleytt ijómann af
góðærinu meðan aðrir sitja eftir
með óbreyttan kaupmátt. Þeir sem
hafa orðið útundan í góðærinu
reyna að bjarga sér með mikilli
yfírvinnu, þar sem hana er að fá,
en hinir bera skertan hlut frá borði.
Það er ömurleg staðreynd, að stór
hluti íslensks erfiðisvinnufólks
byggir afkomu sína á óhóflegri yfir-
vinnu.
Meginmarkmið í næstu samning-
um verður að leiðrétta þennan
ójöfnuð og hækka laun áðumefndra
hópa. Gera verður þá kröfu til
vinnuveitenda að þeir setjist nú
þegar að samningaborði og hefji
samningaviðræður af fullri alvöm.
Eftir leiðréttingu hljóta samningar
að beinast að því að styrkja kaup-
máttinn — veija hann gegn verð-
hækkunum og skattbreytingum.
Forsendur jólaföstusamninganna
eru löngu brostnar. Stjómvöld hafa
leyft sér að hækka verulega laun
ýmissa betur launaðra stétta í þjón-
ustu hins opinbera og atvinnurek-
endur hafa keppst um að hækka
laun þeirra, sem góð laun höfðu
fyrir, mest þeirra sem mest höfðu
fyrir. Þannig hefur launabilið vaxið
á ný og það svo mjög, að það er
orðið miklu meira en það var fyrir
kjarasamningana í desember 1986.
A þennan hátt hafa stjómvöld og
atvinnurekendur notað ávöxt þeirra
fóma sem láglaunafólk hefur fært
til að vinna bug á verðbólgunni.
Það traust sem launþegar sýndu
fyrri ríkisstjóm var óverðskuldað.
Stjómvöld skorti siðferðisþrek til
að standa við sinn hluta þjóðarsátt-
arinnar.
Það er sérstakt hagsmunamál
launafólks að verðlag haldist stöð-
ugt og mun VMSÍ gera allt sem
unnt er í þeim efnum.
13. þing Verkamannasambands
íslands hvetur öll aðildarfélögin til
að snúa bökum saman. Íslenskri
verkalýðshreyfingu er fátt ómögu-
legt. Afl einingar mun færa okkur
að settu marki og útrýma því mis-
rétti, sem láglaunafólk býr við í dag.
NVSV;
Erindi um gróð-
urástand á
Reylganesskaga
AÐALFUNDUR Náttúruvemd-
arfélags Suðvesturlands er
haldinn í dag kl. 14.30 i Félags-
heimilinu Festi i Grindavík.
Á fundinum flytur Ingvi Þor-
steinsson náttúrufræðingur erindi
um gróðurkortagerð og ástand
gróðurs á Reykjanesskaga. Erindið
hefst kl. 15.30.
Fískverð á uppboðsmörkuðum 30. október
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verö verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 46,50 42,50 44,03 8,1 357.040
Ýsa 55,00 30,00 51,35 3,7 191.509
Karfi 24,00 21,50 22,49 98,1 2.208.428
Ufsi 27,00 26,50 26,72 13,1 351.492
Blálanga 29,00 25,50 27,37 6,4 177.613
Samtals 26,49 132,7 3.515.403
í gær var selt úr Karlsefni og bátum. Á mánudag verður selt
úr Keili, Þorsteini, Gjafari og Stakkavík, um 140 tonn.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 49,00 30,00 46,35 5,8 271.277
Ýsa 53,00 40,00 50,38 12,9 651.391
Karfi 24,00 21,00 22,93 45,3 1.039.617
Ufsi 27,50 26,50 27,28 19,7 538.836
Samtals 29,74 84,6 2.516.772
Selt var úr Jóni Vídalín og Ottó N. Þorlákssyni. Næst veröur
boðiö upp á þriöjudag.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA í Njarðvík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn (lestlr) Heildar-
verð verð verð verð (kr.)
Þorskur 46,00 30,00 43,16 14,9 643.084
Ýsa 53,00 40,00 49,68 13,8 685.584
Langa 36,00 15,00 33,08 1.5 50.070
Síld 6,40 6,40 6,40 1.1 7.040
Keila 16,00 12,00 14,93 6,8 101.524
Samtals 39,79 39,0 1.517.029
í dag veröur selt úr Vörðunesi og Faxavík, karfiog fl., og línubát-
um. A mánudag verður selt úr Skarfi GK á gólfi í Grindavík,
35 tonn af þorski, 3 af ýsu og fleira. FISKMARKAÐUR NORÐURLANDS
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Ufsi 14,00 25,00 350.000
[ gær var selt úr Hafbjörg EA.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Efri-Holtum,
Vestur-Eyjafjöllum.
Slgurjón Guöjónsson,
Jón Sigurjónsson,
Unnur Jóna Slgurjónsdóttir, Oddur Sæmundsson,
Kristbjörg Sigurjónsdóttir, Jóhann Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.