Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987
37
i
Ráðag’erðir
Harris sendi „Sholto" Douglas
upplýsingar um ráðagerðina í fe-
brúar. Hann lýsti í bréfí tengslum
Kiroffs við „Bauer“ (nafn hans var
þannig ritað í brezku skjölunum)
og sagði að Kiroff hefði ekki beðið
um fé. „Flugmálafulltrúinn hefur
því afhent Kiroff skrifleg fyrir-
mæli, sem eru órekjanleg, og hann
hefur sagt að hann muni koma
þeim rétta boðleið til tengdasonar
síns, Bauers, og vonist til að gera
komið dóttur sinni (konu Bauers)
og fjölskyldu hennar burtu frá
Þýzkalandi til Belgrad áður en Bau-
er leggur upp í flugferðina, sem
kann að verða okkur öllum svo
mikils virði.“
Að sögn Harris var gert ráð fyr-
ir því í áætluninni að Baur kæmi í
flugvél sinni til Lympne með lend-
ingarhjólin niðri, svo að unnt yrði
að bera kennsl á hana. Hann átti
að skjóta „a.m.k. fjórum rauðum
blossaljósum á hálfrar mínútu fresti
þegar brezkar orrustuflugvélar
nálgast hann“. Um leið og flugvélin
væri lent með Hitler innanborðs
jrði að „gera hana óvirka."
Harris veitti ýmsar gagnlegar
upplýsingar. Hann sagði að Hitler
flygi venjulega með fjögurra hreyfla
Condor-vél í mikilli hæð, nyti venju-
lega vemdar margra orrustuflug-
véla, einkum þegar hann færi yfir
erlenda grund, og að háttsettir naz-
istaleiðtogar væru oft í fylgd með
honum.
Harris velti því jafnvel fyrir sér
hvort Hitler kynni þegar að hafa
flogið yfír Bretland: „Þú munt
minnast frétta um að stór fjögurra
hreyfla flugvél flaug yfír landið í
fyrrasumar og naut vemdar mjög
margra orrustuflugvéla." Nú ganga
sagnfræðingar hins vegar út frá
því að Hermann Göring, yfírmaður
þýzka flughersins, hafí farið þessa
ferð að sögn „Sunday Times."
Hættur
Harris óttaðist að hermenn í
Lympne kynnu að láta slíkar flug-
vélar, komast undan, ef þær lentu
þar. „Ein þýzk flugvél hefur þegar
lent vegna mistaka á einum flug-
velli okkar og henni var leyft að
fara,“ skrifaði hann.
Vegna þessa bréfs fengu loft-
vamaliðar og hermenn í Lympne
sérstök leynileg fyrirmæli og leyni-
lega þjálfun. Allt þar til í maí 1941
var þeim sagt að þeir yrðu alltaf
að vera við því búnir að þangað
gæti komið á hverri stundu „ein,
þýzk, fjögurra hreyfla flugvél" með
„þýzkan liðhlaupa" innanborðs.
Hættur voru þessu samfara eins
og Harris viðurkenndi í bréfí til
Douglas í febrúar: „Auðvitað er
hætta á því að reynt verði að valda
tjóni á flugvellinum, gera gasárás
eða framleiða eitthvert leynivopn,
sem mundi gera flugvöllinn óstarf-
hæfan um tíma.“ En hann bætii
við: „Við verðum að taka þessa
áhættu og vona að þessi saga, sem
virðist of ótrúleg til að vera sönn,
fái farsæl endalok."
Að lokum sagði Harris:
„Til þess að halda öllu leyndu
mætti læða inn þeim grun, hvar sem
það kann að reynast nauðsynlegt,
að við eigum von á því að „þýzkur
liðhlaupi" lendi. Þér er auðvitað ljós
sú brýna nauðsyn að sem fæstir
viti um málið og hvað sem öllu líður
tel ég að ekki ætti að minnast á
það við nokkum mann hveijir kunni
að verða í flugvélinni, sem við von-
um að komi, en búumst ekki við.“
Hinn 7.marz var áætluninni
breytt. Harris sagði Douglas að
Baur vildi ekki skjóta blossaljósum,
því að það mundi vekja grunsemdir
flugmannanna í þýzku flugvélun-
um, sem mundu fylgja honum.
Hann mundi því varpa niður nokkr-
um litlum, gulum málmplötum með
upphafsstöfunum „A B“ yfír
Lympne. Harris sagði að Baur
kæmi að öllum líkindum milli kl.
„5 og 6 f.h. eða 6 og 8 f.h. og
gefíð er upp að dagurinn verði 25.
marz eða síðar.“ Harris benti á:
„Kiroff var augsýnilega sérlega
skýr og fulltrúa okkar í Sofía leizt
vel á hann."
Tengl Hess?
Sagnfræðingar, sem „Sunday
Times" leitaði álits hjá um skjölin
í brezka þjóðskjalasafninu, voru
vantrúaðir eða gáttaðir. Norman
Stone, prófessor í nútímasagnfræði
í Oxford-háskóla, kvaðst aldrei hafa
heyrt um fyrirætlanir RAF og
sagði: „Þetta er mjög skrýtið. Mér
leikur forvitni á að vita hvort þetta
hefur á einhvem hátt tengzt máli
Hess. Ef til vill hefur Kiroff flutt
einhver brengluð skilaboð um
Hess.“
Dudley Saward flugdeildarfor-
ingi, höfundur ævisögu „Bomber“
Harris, sagði: „Það gegnir furðu
að ég skuli ekki hafa vitað um
þetta. Ég var hjá Harris í margar
vikur þegar ég samdi bókina. Við
ræddum um allt sem á daga hans
hafði drifið. Ég las meira að segja
bréf hans til Churchills. Ég er hissa
á því að hann skuli ekki hafa sagt
mér frá þessu. Kannski þótti honum
of erfítt að tala um þetta. Það er
verst að hann skuli vera látinn og
ég skil ekkert í honum að hafa
ekki sagt mér frá þessu.“
Noble Frankland, fv. forstöðu-
maður brezka stríðsminjasafnsins
(Imperial War Museum) og höf-
undur opinberrar sögu lofthemað-
arins gegn Þjóðverjum, hélt því
fyrst fram að skjölin væru fölsuð.
Þegar hann hafði sannfærzt um
að svo væri ekki taldi hann að RAF
hefði aðeins gert „skynsamlegar
varúðarráðstafanir" vegna ábend-
inga Kiroffs. Frankland sagði:
„Margt þessu líkt gerðist í stríðinu.
Við hefðum litið út fyrir að vera
óttalegir kjánar, ef við hefðum ekk-
ert gert og Hitler hefði lent. Ég
geri ráð fyrir því að vera megi að
ábendingin hafí verið brengluð
skilaboð um Hess.“
Sir John Colville, sá aðstoðar-
maður Churchills sem fyrstur frétti
um lendingu Hess, sagði að RAF
hefði áreiðanlega ekki tilkynnt
Churchill um málið. „Það hefði haft
svo mikil áhrif að ég mundi muna
eftir því,“ sagði hann. „Ég er
hálffeginn því að Hitler lenti ekki.
Við hefðum ekki vitað hvað við
hefðum átt að gera við hann.“
Baur þegir
Enginn þeirra manna, sem mest
komu við sögu áformanna, eru enn
á lífí nema Baur, sem er níræður
og býr í Widdersberg am Pilsensee
skammt frá Munchen. Kona hans,
sú þriðja, sagði „Sunday Times"
að hann væri of veikur til að tala
við blaðið. en hélt því ákveðið fram
að hann hefði aldrei verið kvæntur
búlgarskri konu. Hvort það er rétt
eða ekki er ekki ljóst, en svo mikið
er víst að Baur var tryggur Hitler
og er það. enn, segir blaðið.
Foringi í RAF skrifaði utan á
skjölin um samsærið þegar hann
hafði kannað þau í ágúst 1956 að
honum væri illa við að heimila birt-
ingu þeirra, því að Baur væri enn
á lífí. „Sunday Times" segir að
ekki sé ljóst hvers vegna RAF skuli
hafa haft áhyggjur af því. Aðrir
þeir sem komu við sögu, þeirra á
meðal Harris, voru einnig á lífí þá
og ætla mætti að meira tillit hefði
þurft að taka til þeirra.
Líklega stóð Baur á sama um
hvað um hann væri sagt í Bretlandi
1956, segir blaðið. Hann var þá
nýsloppinn úr fangelsi í Sovétríkj-
unum.
Fremst í skjalamöppunni er sex
blaðsíðna skýrsla eftir flugráðsfor-
ingja, sem var lítt hrifínn af
áætluninni þegar hann heyrði um
hana fyrst í febrúar 1941. Hann
skrifaði: „Mér er um megn að trúa
því að flugmanninum takist nokk-
um tíma að framkvæma slíka
áætlun." Auk þess taldi hann að
það yrði miklum erfíðleikum bundið
að halda áætluninni leyndri. En til
þess kom aldrei að henni væri
hrundið í framkvæmd og Bauer var
hjá Foringjanum til hins síðasta"
eins og segir í frægri bók um enda-
lok Hitlers.
GH
Námskeið í
silkimálun
ELÍN Magnúsdóttir
myndlistarkona held-
ur námskeið í silki-
málun í Hlaðvarpan-
um við Vesturgötu 3.
Elín stundaði nám við
Gerrit
Rietveldt-listaakademí-
una í Amsterdam og
lauk hún námi í vor með
diploma í málverki, auk
náms í leikbúningagerð
og sviðsetningu, einnig
lagði hún stund á silki-
málun, sem hún kennir
nú á námskeiðinu.
Námskeiðið hefst
þriðjudaginn 3. nóv. og
stendur yfír í tvær vikur
og er kennt þijú kvöld
fyrri vikuna og tvö
kvöld seinni vikuna.
Elín Magnúsdóttir
VEÐDEILD
ÚTVEGSBANKA tSLANDS HF
býður nú 9,7% vexti
umfram verðbólgu
á skuldabréfum sínum.
Nafnverð:
kr. 100.000
og kr. 250.000
Gjalddagar:
1988, 1989, 1990
Um er að ræða
verðtryqqð skuldabréf
með einum gjalddaga.
VEÐDEILDARBRÉF
ÚIVEGSBANKA ÍSIANDS HF.
ER HÆGTAÐ KAUPA
Á ÖLLUM AFGREIÐSLUSTÖÐUM BANKANS.
Þau eru einnig til sölu hjó Kaupþingi ht,
Fjórfestingarfélaginu og í Verðbréfamarkaði
Iðnaðarbankans hf.
IVIEIÐIDIEIIILID
ÚTVEGSBANKA ÍSLANDS HF
Austurstrœti 79