Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 59 Aðalfundur Hagþenkis: Gerðir verði víðtækir samn- ingar um fjöl- földun bóka AÐALFUNDUR Hagþenkis, fé- lag^s höfunda fræðirita og kennslugagna, var haldinn 26. október, en þau tímamót urðu í sögu félagsins á síðasta starfsári að það hlaut löggildingu mennta- málaráðuneytisins og þau rétt- indi sem því fylgja samkvæmt höfundalögum. Á fundinum var meðal annars ályktað að öll opin- ber bókasöfn, að meðtöldum skóla- og stofnanabókasöfnum, greiði fyrir afnot bóka og að gerður verði víðtækur samning- ur við námsflokka, einkaskóla og aðra aðila sem gangast fyrir fræðslustarfsemi um rétt til hóf- legrar fjölföldunar. Félagið var stofnað af höfundum fræðirita og kennslugagna í kjölfar samninga sem gerðir voru 1983 um vissan rétt skóla sem ríkið rekur til að fjölfalda úr útgefnum verkum. í starfsskýrslu stjórnar kom fram að samtals hafa 33 höfundar hlotið skaðabætur og starfsstyrki úr sjóði sem félagið stofnaði með fé sem til þess rennur vegna samninganna. Einnig var í fyrsta sinn veitt viður- kenning til fræðiritahöfundar og var hún veitt Helga Hallgrimssyni, náttúrufræðingi. Á starfsárinu var gefið út leið- beiningarit handa höfundum um samninga, taxta og gjaldskrár. Þá gekkst félagið fyrir tekjukönnun meðal höfunda í samstarfi við Rit- höfundasambandið. Aðalfundurinn ályktaði að setja þurfí á Alþingi sérstök lög um greiðslur fyrir afnot bóka á öllum opinberum bókasöfnum og brýnt sé að afla viðurkenningar á því að sömu reglur gildi um öll þessi bóka- söfn þannig að skóla- og stofnana- bókasöfn verði ekki undanskilin eins og nú er. Þá skuli greiða höf- undum þóknun fyrir rétt opinberra safna til að lána hveijum sem er næstum ókeypis verk sem þeir fái greitt fyrir í hlutfalli við sölu. Fundurinn fól einnig stjóm fé- lagsins að leita eftir samningum við þá sem ætla má að vilji nýta sér rétt til að fjölfalda úr útgefnum kennslu- og fræðiritum og nota ein- tökin í sambandi við starfsemi sína. Fundurinn telur að brýnt sé að stöðva óheimila ljósritun og telur tímabært að námsflokkar, einka- skólar og aðrir aðilar sem gangast fyrir námskeiðum og ýmiskonar fræðslustarfsemi geri samning við rétthafa um heimild til hóflegrar fjölföldunar úr vemduðum verkum. VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Nóvemberfagnaður M í R MÍR, Menningartengsl íslands og Ráðstjómarríkjanna, minnist 70 ára afmælis Októberbyltingarinnar og þjóð- hátíðardags Sovétríkjanna með samkomu í Menntaskól- anum við Hamrahlíð, sunnudaginn 1. nóv. kl. 3 sídegis. Ávörp flytja Steingrímur Hermannsson, utanríldsráð- herra, Igor Krasavin, sendiherra og sr. Rögnvaldur Finnbogason. Lúðrasveitin Svanur leikur. Listafóik frá Hvítarússiandi skenuntir. Kynnir verðurJón Múii Ámason. Aðganguröllum heimill meðan húsrúm leyfir. Stjóm MÍR. Taylor ísvélar k^fyrirliggjandi Hagstætt verð. Góð kjör. Eiríkur Ketilsson Heildverslun, Vatnsstíg 3. Símar: 23472, 25234, 19155. Málverkauppboð verður haldið sunnudaginn 15. nóvember kl. 20.30 á Hótel Sögu. Klausturhólar, sími 19250. TEIKNAÐU MEÐ STÍL! ÍTÖLSK HÖNNUN FYRIR ÍSLENSKA HÖNNUÐI Kit75x105cm. Hallanleg plata Léttogmeðfærilegt TS/1 teiknivél Kr. 18.437,- Omni 80x140 cm. Hallanleg plata í 35° HækkurVlækkun Kr.11.258,- FÁST EINGÖNGU í RITFANGAVERSLUN MÁLS OG MENNINGAR ■7 Mál IMIog menning í ítölsku Tecnostil teikniborðunum og -vélunum felst snilldarhönnun sem kemur íslenskum teiknurum - nemum jafnt sem atvinnumönnum -til góða. Þar sameinast nákvæmni, fjölhæfni og þægindi í notkun um að gera þér sem auðveldast að teikna sem best. Með Tecnostil gengurðu að gæðunum vísum -verðið er óvænt ánægja! Magnum80x140cm. Plata hallanleg í 85° Hækkun/lækkun Exact200teiknivél. Kr. 44.695,- Student 1 Hallanleg plata í 85° Hækkun/laekkun Exact/Full TG/b teiknivél Kr. 32.508,- Ritföng. Síðumúla 7-9. Sími 68 9519.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.