Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
tfgmiMaMfr
STOFNAÐ 1913
262. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Yeltsin hjartveik-
ur á sjúkrahúsi
Moskvu, Reuter.
TALSMAÐUR sovéska utanrík-
isráðuneytisins skýrði frá því í
gær að Boris Yeltsin, sem í
siðustu viku var vikið úr emb-
ætti leiðtoga sovéska kommún-
istaflokkisins í Moskvu eftir að
hafa gagnrýnt flokksforustuna
harðlega, hefði undanfarna
daga dvalist í sjúkrahúsi. Hann
bar hins vegar til baka orðróm
þess efnis að Yeltsin væri allur.
Yuri Gremitskikh, starfsmaður
upplýsingaskrifstofu sovéska ut-
anríkisráðuneytisins, bar til baka
orðróm um að Yeltsin hefði fengið
hjartaáfall eða stytt sér aldur. „Eg
get staðfest að Boris Nikolayevich
Yeltsin er ekki heill heilsu og að
hann hefur dvalist í sjúkrahúsi
undanfama daga,“ sagði talsmað-
urinn á blaðamannafundi í Moskvu
í gær. Er gengið var á hann bætti
hann því við að Yeltsin ætti við
hjartveiki að stríða.
Á mánudagskvöld stöðvuðu ör-
yggislögreglumenn hóp Moskvu-
búa sem hugðist ganga að höfuð-
stöðvum kommúnistaflokksins þar
í borg og krafðist þess að fá frétt-
ir af heilsufari Yeltsins. Dreifði
Reuter
Melodie ákallar
föður sinn
Mannræningjar fimm ára gamall-
ar stúlku á Spáni sendu foður
hennar í gær segulbandsupptöku,
lokk úr hári hennar og mynd af
henni þar sem hún heldur á bæj-
arblaðinu dagsettu þann 17.
nóvember. Á segulbandsspólunni
má heyra rödd stúlkunnar sem
heitir Melodie og biður hún föður
sinn að borga þær 13 milljónir
Bandaríkjadala sem ræningjamir
kreíjast í lausnargjald.
Stúlkunni var rænt í síðustu
viku þegar verið var að aka henni
í skólann í bænum Estepona.
Faðir hennar, Raymond Nakachi-
an, segist ekki hafa efni á að
borga lausnargjaldið. Mannræn-
ingjamir hafa neitað tilboði hans
um einnar milljón dala lausnar-
gjald og hóta nú að hætta að
gefa stúlkunni mat.
fólkið fjölrituðum miðum þar sem
á stóð: „Moskvubúar krefjast þess
að fá að vita sannleikann um dauða
Yeltsins."
Svo sem kunnugt er af fréttum
var Yeltsin vikið úr embætti eftir
að hafa á miðstjómarfundi gagn-
rýnt flokksforustuna harðlega fyrir
seinagang við framkvæmd um-
bótastefnu Mikhails Gorbachev
Sovétleiðtoga. Enn á hann form-
lega sæti í stjómmálanefnd
kommúnistaflokksins sem fulltrúi
án atkvæðisréttar en nafn hans
hefur ekki birst opinberlega á
prenti undanfama daga sem þykir
gefa til kynna að honum hafi end-
anlega verið ýtt til hliðar.
Moskvubúar hafa lýst furðu
sinni á því að Yeltsin hafi verið
bolað frá en hann naut almennra
vinsælda sem flokksleiðtogi i
Moskvu. Fréttir herma að efnt
hafí verið til mótmæla sökum þessa
í Sverdlovsk í Úralfjöllum en þar
gegndi Yeltsin embætti flokks-
formanns áður en Gorbachev
kallaði hann til starfa í Moskvu
fyrir tveimur ámm er stjómvöldum
þótti spilling í stjóm borgarinnar
hafa gengið úr hófí fram.
Bandaríkin:
: (1 * Th 0/a.\
/30 K t>t K
i s fí nyTH
Reuter
Munkar mótmæla
Tíbetskir munkar í útlegð á Indlandi sjást hér á hjólum með
borða til að mótmæla viðræðum Kínverja og Indveija í Nýju-
Delhí um landamæri ríkjanna. Munkarnir krefjast sjálfstæðis
Tíbets og viðurkenna því ekki stjóm Kínverja þar í landi.
V estur-Þýskaland:
Alnæmissjúkl-
ingur dæmd-
ur í fangelsi
Nilrnbergj Reuter.
DÓMSTOLL í Niirnberg í Vest-
ur-Þýskalandi hefur dæmt
bandarískan alnæmissjúkling
sem kallaður er B. Linwood í
tveggja ára fangelsi fyrir að
hafa haft kynmök við þijár
manneskjur án þess að nota
smokk. Linwood var dæmdur á
mánudag á þeirri forsendu að
hann hefði vitað um sjúkdóm
sinn án þess að vara bólfélaga
sína við. Hann hefur nú ákveð-
ið að áfrýja dómnum.
Saksóknari í Bæjaralandi krafð-
ist þriggja og hálfs árs fangelsis-
vistar manninum til handa en hann
var áður matsveinn í bandarískri
herstöð í Númberg. Ekki er vitað
hvort rekkjunautar Linwoods
smituðust af alnæmi.
Flokkur græningja í Vestur-
Þýskalandi hefur fordæmt dóminn
og segir hann vera ómannúðlegan.
„Barátta stjómvalda í Bæjaralandi
við alnæmi hefur nú í fyrsta skipti
leitt til fangelsisdóms," sagði tals-
maður flokksins. Hin hægrisinn-
aða fylkisstjóm í Bæjaralandi
ákvað fyrr á þessu ári að skera
upp herör gegn útbreiðslu alnæm-
is og hafa róttækar aðgerðir
hennar vakið miklar deilur í
landinu.
Grorbachev Sovétleiðtoga
boðið að ávarpa þingfund
Reagan vill flytja sovésku þjóðinni ræðu
Washington, Moskvu, Reuter.
MIKHAIL Gorbachev Sovétleið-
toga verður boðið að ávarpa
Bandaríkjaþing þann 9. desem-
ber í tilefni leiðtogafundar
risaveldanna að þvi er Jim
Wright talsmaður fulltrúadeild-
arinnar sagði í gær. Þetta verður
í fyrsta skipti sem leiðtogi Sov-
étríkjanna ávarpar sameiginleg-
an fund fulltrúadeildar og
öldungadeildar Bandarikjaþings.
Marlin Fitzwater talsmaður
Hvíta hússins sagði að Bandaríkja-
stjóm teldi eðlilegt að Reagan
ávarpaði sovésku þjóðina ef
Gorbachev ræddi við kjöma fulltrúa
bandarísku þjóðarinnar. Búist er við
ákvörðun þar að lútandi í lok vik-
unnar.
Raisa Gorbachev, eiginkona Sov-
étleiðtogans, sagði við fréttamenn
á mánudag að fjöldi gestrisinna
Bandaríkjamanna hefði sent þeim
hjónum bréf og boðið þeim í heim-
sókn á meðan á leiðtogafundinum
stæði. Hún sagði að bréfunum
fylgdu gjama lyklar að íbúðum
bréfritara sem sýndi að hugur fylgdi
máli.
Þriggja daga lotu í samningavið-
ræðum risaveldanna í Genf lauk í
gær án þess að samkomulag næðist
um upprætingu meðal- og skamm-
drægra eldflauga á landi. Samn-
ingamenn sögðust þó vera
bjartsýnir á að fmmdrög slíks
samnings yrðu tilbúin í næstu viku.
Yuli Vorontsov, aðalsamningamað-
ur Sovétmanna, gefur í skyn í
yfírlýsingu sem Tkss-fréttastofan
birti í gær að enn sé deilt um þá
kröfu Bandaríkjamanna að þeir fái
að fylgjast með framleiðslu lang-
drægra eldflauga í Sovétríkjunum.
Bandaríkjamenn leggja áherslu á
að þetta sé þriggja mánaða gamalt
skilyrði fyrir samkomulagi en ekki
nýr fyrirsláttur eins og Vorontsov
lætur í veðri vaka.
Júgóslavía:
Verkamenn mótmæla efna-
hagsaðgerðum stjómarinnar
Belgrad, Reuter.
ÞÚSUNDIR verkamanna I borginni Skopje í suðurhluta Júgóslavíu
mótmæltu í gær harkalegum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Að sögn vitna eru þeir óánægðir með laun sín og óttast að launaskerð-
ing verði liður í aðgerðum stjórnarinnar. Stjórnvöld í Makedóníu,
fátækasta lýðveldi Júgóslaviu, létu í gær undan kröfum verkamann-
anna og lofuðu kauphækkunum.
Um helgina knúði, Branko Mikulic
forsætisráðherra Júgóslavíu, neyð-
aráætlun í gegnum þing landsins til
að vinna á gífurlegum efnahags-
vanda sem farið hefur vaxandi
undanfarin ár. Stjórn landsins berst
nú við 135% verðbólgu á ári, 13%
atvinnuleysi og erlendar skuldir sem
nema tuttugu milljörðum Banda-
ríkjadala. í áætluninni felst 30-70%
verðhækkun á olíu, helstu matvælum
og þjónustu. Forsætisráðherrann
sagði að eftir að þessar hækkanir
kæmust í framkvæmd yrði verðlagi
haldið föstu fram á mitt næsta ár.
Stefnt skyldi að því að laun hækkuðu
ekki á tímabilinu. Stjómpiálaskýr-
endur telja að undanlátssemi sijóm-
valda í Makedóníu við kaupkröfum
verkamanna stefni áætlun forsætis-
ráðherrans í hættu.
Tilkynnt var í gær um 24,6% geng-
isfellingu júgóslavneska dínarsins.
Hinni stórfelldu gengisfellingu er
ætlað að blása lífí í útflutningsiðnað
landsins en efnahagssérfræðingar
segja að 35% gengisfelling hefði ver-
ið frekar í anda stöðunnar.