Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 58
T86i mmwrov. 8i H'iOAaiixrvmw .tíioA.iHvmnHOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987 58 Minning: Aðalheiður Krist■ ín Helgadóttir Fædd 12. október 1926 Dáin 7. nóvember 1987 Sunnudaginn 8. nóvember sl. hringdi einn sona Kristínar (svo var hún yfirleitt nefnd) til mín og til- kynnti mér, að móðir hans hefði andast daginn áður. Mér kom þetta mjög á óvart. Ég hafði að vísu ekki heyrt neitt í henni í nokkum tíma, en það þurfti ekki að boða neitt sérstakt. „Hinn slyngi sláttumaður" hafði ekki gert boð á undan sér nú fremur en svo oft áður. Kristín Helgadóttir fæddist þann 12. október 1926 að Staðarhöfða í Innri Akraneshreppi. Foreldrar hennar voru hjónin Helgi Bjömsson og Ágústína Þórarinsdóttir. Kristín var yngst ijögurra systkina, og var nokkur aldursmunur á henni og því næsta á undan henni. Hún ólst upp á góðu heimili og við ástríki for- eldra sinna. Faðir hennar kallaði hana oft „sólargeislann sinn". Hann gerði samt stundum talsverðar kröfur til hennar, þegar hún komst á legg. Hann varð t.d. dálítið móðg- aður út í hana, þegar hún tók lokaprófið í bamaskólanum. Hún varð næst efst, hann vildi að hún yrði efst. Þvínæst fór hún í gagn- fræðanám í Reykjavík. Þá bjó hún hjá föðursystur sinni, sem hélt vemdarhendi yfir henni sem for- eldri væri. Þegar ég kynntist Kristínu fyrir rúmum 6 ámm hafði hún á fullorð- insámm sínum gengið í gegnum margt mótdrægt, sýnt mikinn dugnað og hetjulund, en var nú komin á lygnari sæ. Fullorðinsárin höfðu reynst henni erfíð gagnstætt bemsku- og unglingsárunum, sem höfðu verið ljúf og auðveld, eins og áður segir. Hún hafði gengið í 2 hjónabönd, sem bæði enduðu með skilnaði, en það var ekki hennar sök. Hún hafði eignast sjö mannvænleg böm og komið þeim til manns að vemlegu leyti ein og óstudd. Það verður að teljast þrekvirki. Hún var stolt af bömum sínum og öðmm afkomend- um og mátti vera það. Ástandið var t.d. ekki glæsileg eftir fyrri skilnað- inn. Þá stóð hún ein uppi með 5 böm (2 þau elstu vom farin að heiman) á aldrinum 4ra til ca. 18 ára í 2ja herbergja leiguíbúð. Úr því rættist þó síðar. Við þessar kringumstæður var ekki leitað til bæjarfélagsins um aðstoð, eins og margir gera. Nei. Utan heimilisins var unninn fullur vinnudagur og síðan unnið heima á kvöldin og fram á nótt. Bömin hjájpuðu til strax þegar þau gátu. Á meðan fyrra hjónabandið stóð yfír lenti fjölskyld- an í húsbmna og missti allt, þar á meðal fatnað. Fyrir rúmum 20 ámm var ekið á Kristínu á götu og fékk hún slæman höfuðáverka. I sam- bandi við þetta slys varð hún að læra að ganga að nýju á Reykja- lundi. Sitthvað fleira mætti tína til, en hér verður látið staðar numið. Það kemur engum á óvart, þó að þessi erfíðu fullorðinsár hafí sett sitt mark á Kristínu á einhvem hátt. Hún var oft á síðari ámm illa haldin af gigt, vöðvabólgum og öðmm sjúkdómum. Hún hélt þó höfuðeinkennum sínum óbreyttum, sem vom glaðværð, dugnaður og tryggfyndi. Eftir að við kynntumst fómm við í löng og stutt ferðalög saman, en hún hafði áður fengið fá tækifæri til ferðalaga. Um helgar var oft dvalið í sumarbústað í nágrenni Reykjavíkur. Oft var farið í leikhús og á aðra skemmtistaði. Ég minnist margra spilakvölda með kunningj- um hennar, sem urðu þá kunningjar mínir. Ég minnist mjög margra heimsókna til ættingja og vina hennar. Alls þessa nutum við bæði í ríkum mæli. Kristín hafði mikið yndi af kveð- skap. Uppáhalds skáldin hennar vom t.d. Einar Behediktsson, Davíð Stefánsson, Tómas Guðmundsson o.fl. Hún hafði ljóð þeirra á hrað- bergi. Sjálf setti hún einnig saman ljóð, og á ég sýnishom af þeim. Faðir hennar hafði gefíð út ljóðabók á efri ámm sínum. Við ræddum nokkuð um fram- haldslífíð og sóttum miðilsfundi með nokkmm árangri, síðast 28.4 1987. Ég var búinn að láta vélrita fundargerð síðasta fundar, en var ekki búinn að koma því í verk að senda henni eintak hennar. Kristín var forlagatrúar, en þar var ég ekki sammála henni að öllu leyti. Ég get ekki samræmt það ábyrgð- inni, sem menn bera á gjörðum sínum. Höfuðeinkenni Kristínar vom: Glaðværðin, sem veikindi vörpuðu stundum nokkmm skugga á. Þar sem Kristín var vom gamanmál höfð uppi. Dugnaðurinn. Honum var lýst að nokkm hér að framan. Alltaf var unnið, þegar veikindi hömluðu ekki. Fómarlundin. Hún var ótakmörkuð. Af fátækt sinni var hún oft að gefa börnum sínum, bamabömum (þau em mörg) og jafnvel fleirum. Umhyggjan fyrir velferð bamanna og bamabamanna var daglegt umræðuefni. Trygg- lyndi. Nokkrar vinkonur hafði hún átt í marga áratugi, jafnvel allt frá fæðingu. Kunningjamir vom marg- ir, bæði konur og karlar, bæði skyldir og óskyldir. Að lokum þakka ég þessari vin- konu minni stutt, skemmtileg og að flestu leyti góð kynni. Ég mun minnast hennar ævilangt sem góðr- ar og göfugrar konu, sem gaf mér margt, sem vandfundið er. Eg vænti þess, að hún, ásamt konu minni og nánustu ættingjum mínum, muni taka á móti mér á ströndinni, þegar ég hefi svamlað yfír „móðuna miklu“. Ég reikna með, að ég verði þá hjálpar- og umhyggjuþurfi, eins og ég var, þegar ég kom í þennan heim. Á sama hátt trúi ég því og treysti, að brottfluttir ættingjar hennar og vinir hafí nú tekið á móti henni og veiti henni nú sömu þjónustu. En þetta verður allt að gerast fyrir miskunn Guðs. Ættingjum Kristínar votta ég dýpstu samúð mína. Þeir hafa misst mikið. Árni Stefánsson í byggðasafninu að Görðum á Akranesi er hluti af baðstofu frá Staðarhöfða í Innri-Akraneshreppi. í baðstofu þessari bjó Helgi Bjöms- son ásamt konu sinni Ágústínu Þórarinsdóttur. Þar fæddist þeim stúlkubam þann 12. okt. 1926 er hlaut nafnið Aðalheiður Kristín. Auk hennar áttu þau Unni, Áslaugu og Björn. Ég kynntist Kristínu um 1970 er dóttir mín gekk að eiga einn af sonum hennar. Þá þegar var hún ekki heil heilsu og var aldrei síðan. Ævi Kristínar var eins og margra annarra kvenna. Hún fór ung að heiman og vann fyrir sér við ýmiss störf. Hún giftist um tvítugt Sig- urði Karlssyni, ættuðum úr Húnavatnssýslu. Þau eignuðust saman 6 börn en eina stúlku átti Kristín áður. Börn hennar eru: Elsa, Sigurður Þórir, Helgi Bergmann, Þórunn Ástrós, Guðjón og Hilmar. Húsmóðurhlutverkið varð hennar starf og oft æri erilsamt þar sem bömin vom mörg, en þau Sigurður nutu ætíð dyggrar aðstoðar móður Sigurðar, Þómnnar Sveinbjörns- dóttur. Hún reyndist Kristínu alla tíð vel og hefur verið bömum henn- ar amman, sem alltaf hefur verið hægt að snúa sér til ef eitthvað á bjátaði. Þau Sigurður og Kristín skildu eftir u.þ.b. 20 ára hjónaband. Kristín hefur seinni árin unnið við sauma. Einnig var hún um tíma ráðskona hjá Áma Stefánssyni. Þar undi hún hag sínum og naut þess að ferðast með honum er tækifæri gafst, upplifa landið og fegurð þess en tækifæri til ferðalaga höfðu ekki gefíst fyrr á ævinni. Fyrir skömmu fluttist hún að Hátúni 10, í íbúð hjá Öryrkjabanda- laginu en vera hennar þar varð ekki löng þar sem hún lést þann 7. þ.m. Um konur eins og Kristínu, sem mestan hluta ævinnar hafa starfað innan veggja heimilisins verða ekki ritaðar stórar æviskrár. Slíkar kon- ur hafa þó skilað þjóðfélaginu miklu. Það gerði hún einnig, 7 mannvænlegum bömum sem hún gaf í arf mannkosti og dugnað. Hvers er að vænta meir af lífínu? Hún var ljóðelsk mjög og einnig listfeng en hún átti ekki kost á að læra né rækta með sér þessa hæfí- leika sína en þeir koma fram í börnum hennar. Ég þakka Kristínu Helgadóttur samfylgdina og votta bömum henn- ar, tengdabömum og bamabömum samúð mína og bið þeim blessunar. Hvíli hún í friði. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (G.W. Sacer — Vald. Briem) Guðrún Thorarensen Aðalheiður Kristín Helgadóttir var fædd að Staðarhöfða í Innri- Akraneshreppi. Var hún yngst af 4 börnum þeirra hjónanna Ágústínu Þórarinsdóttur frá Reyni og Helga Björnssonar frá Staðarhöfða. Bæði Borgfirðingar að ætt. Það fer fyrir mér eins og mörgum orðum er minnast látinna æskuvina að hugurinn leitar aftur í tímann á bernskustöðvarnar. Innnesið, þar sem við Kristín ól- umst upp, er sveitin sunnan Akrafjalls og fólkið sem þar býr er kallað Innnesingar. Lífsbjörg þótti þar nokkuð góð, því úti í Hvalfirði voru gjöful fiskimið og meðfram ströndinni voru góðar hrognkelsa- lagnir. Aftur á móti voru lélegar grasnetjar víða vegna votlendis. Á vetrum fóru flestir þeir sem áttu heimangengt, á vertíð eða til ann- arra verka, svo eftir voru heima gamalmenni til að gæta búsmalans og barna. Var það venja í þessari sveit sem víðar, að menn yljuðu sér við það í skammdeginu að kveða bæjarrímur, kasta fram ferskeytl- um og yrkja ljóð. Nú eru allir gömlu torfbæirnir horfnir og sömuleiðis ljóðin, sem ort voru, eru gleymd og týnd og sú stemmning sem þar var heyrir nú sögunni til. Á byggðasafninu í Görðum er smekklega fyrir komið skarsúð með tveimur rúmum og kofforti. Er þar kominn annar helmingurinn af Staðarhöfða-baðstofunni. Lítið sýn- ishorrv af húsakynnum liðinnar tíðar. Væri því ekki úr vegi að staldra við og líta inn í þetta safn. Ég tek mér sæti á koffortinu. Á því er geimeglt kúpt lok. í því var geymdur kirkjufatnaður, nokkrar gamlar bækur og ef til vill nokkrir skildingar. Á rúminu situr hús- bóndinn Helgi Björnsson, hár og grannur maður, og er að fitla við blýantsbút. Eitt sinn var hann vask- ur sjómaður, en fyrir mörgum árum missti hann heilsuna og hafa veik- indin rist sínar rúnir á andlit hans. Blýantinn notar hann til að færa í letur stökur og ljóð, sem koma upp í huga hans, því hann er skáld gott. Á yngri árum gaf hann út ljóðabók sem heitir Örvar. Á borð- inu eru vikublöð frá stjórnmála- flokkunum og tímarit. Við eldavélina stendur húsmóðirin Ágústína, fríð kona og býður upp á kaffí og kandís. Fram við dyr er lítil telpa að leik. Er það Aðalheiður Kristín, sem kölluð er Stína. Er hún að færa tuskudúkkur sínar í ein- hverjar spjarir. Á fremra rúmi baðstofunnar situr piltur sem heitir Bjöm. Er hann sonur hjónanna. Ég vík mér burtu frá þessari sýn og geng út í sólskinið. Það sama sólskin og þegar þessi litla telpa varð að ungri og fallegri stúlku sem stökk út úr kotinu til að leita sér þekkingar og samlagast heiminum. Fyrst hafði hún athvarf hjá frænd- fólki sínu í Reykjavík. Stundaði hún margskonar vinnu, var í vist hjá góðu fólki, vann við framreiðslu- störf o.m.fl. í stríðslokin stofnaði hún heimili með ungum manni, húnvetnskum að ætt er Sigurður Karlsson heitir, hjálpsömum og prúðum pilti. Fengu þau inni í einum af þessum hundr- uðum bragga, sem herinn skildi eftir og íslendingar bjuggu í um áratuga skeið. Ætla ég ekki að lýsa þessum olíukyntu húsakynnum og þeim þrengslum sem ungu hjónin urðu að búa við. Þar fæddust 4 elstu börnin og til viðbótar tók Kristín aldurhnigna foreldra sína og bróður inn á heimilið til sín. Það gildir einu hvort heimilið var kallað braggi, skúr eða hús, því þegar inn var komið mætti manni ung hús- móðir sem bauð mann velkominn með þeim hætti að kona í höll hefði ekki getað dreift meiri birtu og kærleika um sínar vistarverur. Þau hjónin eignuðust 6 börn og eina dóttur eignaðist Kristín fyrir hjónaband. Eftir nær tveggja ára- tuga sambúð slitu þau samvistum. Nú stóð húsmóðirin uppi með flest börnin í ómegð, en samheldni og dugfnaður ijölskyldunnar var mikill. Bömin fóm að hjálpa til strax og þau komust á legg. Þau gættu bama, vom sendisveinar í búð, röð- uðu ölflöskum í kassa, vom hjálpar- drengir á verkstæðum o.m.fl. Ef satt skal segja veit ég ekki hvemig hefði farið ef tengdamóðir hennar, Þórunn Sigurðardóttir, hefði ekki litið til með þeim á marg- an hátt. Vera má að þessir dagar hafi verið Kristínu erfiðir um of, því heilsu hennar fór að hnigna upp frá því. I afmælisfagnaði sem haldinn var í sumar mætti Kristín ásamt nokkr- um Innnesingum. Lék hún þar á als oddi og steig til spors eins og ung væri. Kristín bar alltaf höfuð sitt hátt, enda gat hún gert það með stolti. Hún hafði komið til manns 7 böm- um sem öll hafa reynst nýtir og góðir borgarar. Nú þegar hún víkur af braut til þess ókunnuga viljum við hjónin þakka þessari góðu konu fyrir sam- fylgdina og árnum ættingjum hennar allrar blessunar. Oddgeir Ottesen t Maðurinn minn, ÁGÚST KRISTJÁNSSON prentari, andaðist 16. nóvember á heimili sínu, Furugrund 24, Kópavogi. Sigurlaug Jónsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐRIK SIGURJÓNSSON fyrrverandi hreppstjóri, í Ytrihlíð, lést í sjúkradeild Elliheimilisins á Vopnafirði föstudaginn 1 3. nóv- ember. Útförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00. Jarösungið verður á Hofi. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Elskuleg móðir ókkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG STEINDÓRSDÓTTIR frá ísafirði, Merkurgötu 4, Hafnarfirði, lést í Landakotsspítala 16. nóvember. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Bjóddu vetrinum byrginn með stmuuesnne undir bilnum!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.