Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 70
 í ^70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKIR Ungu menn- imir hita sig upp fyrirHM ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik skipað leikmönn- um 21 árs og yngri fœr verðug verkefni á nœstu dögum. Það mœtir portú- galska landsliðinu í kvöld og því ísraelska annað kvöld. Báðir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni. Báðir leikimir verða í tengsl- um við landsleiki íslands og Póllands, leikurinn gegn Portúgal í kvöld hefst klukkan 22:00, en leikurinn gegn ísrael á morgun byrjar fyrr, eða klukk- an 18:30. Leikimireru mikilvæg upphitun íslenska liðsins fyrir HM sem fram fer í Júgóslavíu daganna 3. til 13. desember næst komandi. Þar leika íslend- ingar í riðli með Rússum, Ungverjum og Norðmönnum. Þrautin er þung, liðið verður að vinna tvo leiki til þess að kom- ast áfram í milliriðil. Morgunblaöiö/Bjami Bogdan, landsliðsþjálfari, fylgist með Júlíusi Jónassyni skjóta á mark á æfingu í gær. Guðmundur Hrafnkelsson og Geir Sveinsson eru til vamar. , Níundi sigurinn gegn Pólverjum í kvöld? „ Erum þreyttir eftir erfitt íslandsmót," segir Einar Þorvarðarson ÍSLENDINGAR leika fyrsta leik sinn af þremur við Pólverja í kvöld og hefst leikurinn klukk- an 20:30, fyrri leikirnir tveir fara fram f Laugardalshöll og eru vináttuleikir, en þriðji leik- urinn er liður í KEA-4 þjóða- mótinu sem fer fram á Akureyri daganna 20. til 22. nóvember. Þar keppa einnig landslið Portúgals og ísrael. Síðast er Pólvetjar og ísland mættust, bám Islendingar sig- ur úr býtum í eftirminnilegum leik. Leikurinn var liður í Eystrasalts- keppninni sem fram fór í Austur- Þýskalandi í byijun þessa árs og urðu lokatölur 29-28. íslendingar náðu snemma 2-3 marka forystu sem þeir héldu megnið af fyrri hálf- leik, en í síðari hálfleik minnkuðu Pólveijar muninn niður í eitt mark og var oft jafnt, en íslendingar nær alltaf með frumkvæðið. Hraðinn í leiknum var gífurlegur eins og töl- umar gefa til kynna og ógleyman- legur leikur fyrir áhorfendur. Þrátt fyrir hátt skor, var Einar Þorvarð- arson markvörður einn besti maður liðsins, varði 18 skot. Morgunblaðið bað Einar að rifja leikinn upp og var hann fús til þess, enda slíkur hasarleikur að það er eins og hann hafi verið leikinn í gær. „Sœtti mig viðtvo sigra“ „Þetta var mjög opinn leikur, það er óhætt að segja það og hraðinn gífurlegur eins og tölumar gefa til kynna. Þetta var jafnframt skemmtilegur leikur, ekki bara fyr- ir áhorfendur, heldur einnig fyrir okkur, því áhorfendur vom mjög á okkar bandi og hvöttu okkur ákaft. Pólska liðið var skemmtilegt, gamla hetjan þeirra Jerzy Klempel var enn í fullu §öri, en hann verður núna §arri góðu gamni," sagði Einar. En hvemig líst honum á Pólveija sem mótheija nú? „Handknattleikur í Póllandi hefur verið í nokkurri niðursveiflu síðustu árin, en þeir hafa stokkað liðið mik- ið upp síðustu misserin og em óðfluga að rétta aftur úr kútnum. Þótt við séum með reynslumeira lið, þá em þeir samt býsna leik- reyndir og em auk þess betur undir þessa ákveðnu leiki búnir heldur en við. Það er til dæmis ekki ár síðan að þeir klámðu B-keppnina og það er líka styttra síðan að þeir léku á stórmóti, auk þess sem þeir hafa æft saman í allt sumar. Þeir ætla sér stóra hluti og em orðnir nokkuð vel sjóaðir.“ En íslenska liðið? „Þetta er fyrsti leikurinn á heima- velli í nokkuð langan tíma, en við eigum von á mörgum áhorfendum og það er íslenska liðinu alltaf til góða. Hins vegar hefur íslandsmó- tið verið erfitt og ég reikna ekki með því að við verðum upp á okkar besta þar sem menn em nokkuð þreyttir eftir átökin. Aftur á móti er þetta að byija hjá okkur og ég reikna með því að liðið sæki sig jafnt og þétt.“ Og hvert er þá markmiðið? „Markmiðið er auðvitað að spila þetta eins vel og við getum. Per- sónulega yrði ég sáttur ef við ynnum tvo leiki af þremur. Það væri mjög gott ef við ynnum alla leikina, enda verða þetta allt saman 50/50 leikir.“ Áttaslgrar ísland og Pólland hafa leikið 29 landsleiki í handknattleik og fór sá fyrsti fram í Gdansk 16. janúar 1966. Var það létt upprúllun, 27-17 fyrir Pólland. Hins vegar hefndu íslendingar skjótt, unnu þijá næstu leiki og fjóra af næstu fimm. Fyrsti sigurinn var í Reykjavík sama ár, 23-21, næsti í Metz í Frakklandi 1970, 21-18 og síðan sá þriðji í röð í Madrid 1972, 21-19. 1975 vannst sigur, 16-14, í Ljubliana og tveimur ámm síðar vannst aftur sigur í Reykjavík, 22-19. Síðan ekki sög- una meir í all mörg ár. íslendingar laumuðu inn einu jafntefli árið 1979, 23-23 í Reykjavík, en næsti sigur vannst ekki fyrr en árið 1986 í Reykjavík, er uppsveiflan var haf- in á ný. Þá lágu Pólveijar 19-22. í sömu heimsókn Pólveija kom aftur- kippur, átta marka tap, en síðan hafa þjóðimar leikið tvo landsleiki og hafa báðir endað með íslenskum sigri, 22-21 í Moskvu 15. júlí 1986 og svo 29-28 í Wismar í Austur Þýskalandi í janúar síðast liðnum eins og frá hefur verið greint. Þetta gerir átta sigra og eitt jafn- tefli. Það þýðir að Pólveijar hafa haft betur æði oft. Alls hafa þeir unnið 20 leiki og markatala allra 29 leikjanna er Pólveijum vemlega í hag. Þeir hafa skorað 657 mörk, en Islendingar svarað með 556 mörkum. Liggur munurinn ekki ein- ungis í miklu fleiri unnum leikjum Pólveija heldur einnig, að ísland hefur aldrei unnið Pólland með miklum mun, hins vegar hafa Pól- veijar nokkmm sinnum burstað ísland. En ekki virðast miklar líkur á slíku nú. Þvert á móti. % / || Á ÍSLENSKAR GETRAUNIR V ■■■ Iþrónamiöstððinni v/Siglún • 104 Reykjavik ísland Simi 84590 GETRAUNAVINNINGAR! 12. leikvika - 14. nóvember 1987 Vinningsröð: X1X-21 2-1X1 -1 2X 1. vinningur: 12 réttlr, kr. 74.265,00,-. 7793+ 40478(4/11) 51338(4/11) 127663(6/11) 224544(12/11) 227006(8/11)+ 230287(9/11) 230715 4/11) 2. vinningur 11 réttlr kr. 1.201,- 465* 40442 44813 47934 95041 98735 1277088 229178 787 40684 44815 48131* 95148 98736 127359*+ 229183 1198 40708 44901 48449 95293 98738 127714* 230238 2051 41003 44904 48783 95358 125005 127837 230241 4566 41368 44915 49169+ 95572 125114 127883 230268 5358 41446 44941 45369 95573 125256* 224079* 230554 5379 41546 45411 49591 95825 125304 224591 230693 6035* 41561 45524 49616+ 95826 125425*+ 224720* 230697 7046+ 41729* 45583 50207 95954 125527 224992 230761 7184 42116 45738 50304 96116 125716* 224997 231206*+ 8135 43051* 45881+ 50307 96223 125717 224999 231225+ 8373 43893*+ 46029 50386 96225 125887 225414 231300 8508+ 43948 46159* 51181 96721 12633^ 226409 T00353 8942 43999 46198 51359 97062 126433 226426* T00354 9042+ 44033 46201 51363 97657 126571* 226639 T00355 40076 44049 46408* 51372 97713 126847* 228047 *=2/11 40128*+ 44138 46878 51408 98446 126899 228125 40439 44394 46941 95002 98447 127086 228773* Kwiiffwttur er til mánudagsins 7. desember 1887 kl. 12.00 i hádegi. Elnar ÞorvarAarson Morgunbiaöiö/Júiíus
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.