Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
5
Sanitas hf. verð-
launað fyrir gæði
Jón Ásgeirsson
SANITAS hf. hefur fengið al-
þjóðlega gæðaviðurkenningu frá
Seven Up International fyrir árið
1986. Viðurkenningin er veitt
verksmiðjum fyrir gæði vöru, svo
og hreinlæti og aðbúnað, og er
þetta í annað sinn sem Sanitas
fær þessa viðurkenningu.
Að sögn Ragnars Birgirssonar,
forstjóra Sanitas, fengu að þessu
sinni 19 verksmiðjur af 58 í Evrópu
gæðaverðlaun, þar af 3 af 18 verk-
smiðjum á Norðurlöndunum, og var
Sanitas með hæstu einkunn verk-
smiðja á Norðurlöndum. Sanitas
fékk samskonar verðlaun fyrir árið
1985, og sagði Ragnar þennan
árangur nást með samstilltu átaki
allra sem standa að framleiðslunni.
Philip Carter afhenti Ragnari við-
kenninguna, og sagði gott starfs-
fólk og strangar gæðakröfur gera
það að verkum að Sanitas fengi svo
háa einkunn fyrir gæði. Philip sagði
ennfremur að Seven Up og Pepsi
stefndu að því að ná meirihluta
markaðsins á íslandi, og hann væri
bjartsýnn á að ná því takmarki á
næstu árum.
Morgunblaðið/Þorkell
Philip Carter afhendir Ragnari Birgissyni, forstjóra Sanitas hf.,
gæðaviðurkenningu frá Seven Up International.
Ráðstefnu-
miðstöð
opnuðí
Reykjavík
OPNUÐ hefur verið í Reykjavík
ráðstefnumiðstöð, til að veita
innlendum aðilum ráðgjöf og
þjónustu við ráðstefnur, og sem
vinnur að því að fjölga ráðstefn-
um hér á landi og samræma
aðgerðir þeirra sem hagsmuna
eiga að gæta.
Það er fyrirtækið Mannamót sf.
sem stendur að ráðstefnumiðstöð-
inni. Mannamót sf. var stofnað árið
1975 og er í eigu Jóns Ásgeirsson-
ar fyrrverandi framkvæmdastjóra
Rauða krossins.
í frétt frá fyrirtækinu segir að
ráðstefnumiðstöðin hafi ávallt
handbærar upplýsingar um sali og
aðra aðstöðu sem í boði er á hverj-
um tíma. Einnig tekur ráðstefnum-
iðstöðin að sér að aðstoða við allan
undirbúning og skipulag við ráð-
stefnur, þing, fundi og önnur
mannamót.
Ranghermi
í Reykjavík-
urbréfi
í Reykjavíkurbréfi sl. sunnudag
sagði m.a., að Stöð 2„ hafði t.d.
frumkvæði um að setja íslenzkt
tal inn á erlent barnaefni og ber
að meta það að verðleikum." Þessi
staðhæfing í Reykjavíkurbréfi er
röng. Ríkissjónvarpið hafði frum-
kvæði um að setja íslenzkt tal inn
á erlent bamaefni og það fyrir
alllöngu. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessu ranghermi.
Vegagerð:
Góð færð
um allt land
FÆRÐ á vegum landsins hefur
verið með besta móti í haust,
samkvæmt upplýsingum frá
vegaeftirliti Vegagerðar ríkis-
ins.
Góð færð hefur verið um þjóð-
vegi þó þungfært hafí verið um
fjallvegi á Vestfjörðum, Austfjörð-
um og norðanlands. Breiðadals-
heiði lokaðist í sólarhring en
Fjarðarheiði lokaðist í nokkrar
klukkustundir og var opnuð sam-
dægurs.
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
farazhroddi
IBM PERSONAL SYSTEM/2 TÖLVUR
:YRIR ÞÁ SEM GERA KRÖFUR UM:
Nýjustu tækni
Örugga fjárfestingu
Góða þjónustu
★
★
★
tííprríl &
Hagstæðir samningar
gera okkur kleift að
bjóða lægra
verð
Ný**
Tökum eldri IBM PC - XT - AT tölvur
upp í andvirði nýrrar IBM PS/2 tölvu
SÖLUAÐILAR:
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F
m
i
GISLI J. JOHNSEN
Hverfisgötu 33, simi: 62-37-37
y" Akureyri:Tölvutæki-Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100
Nýbylavegi 16, Kópavogi Sími 641222
Bjóðum eigendum stærri IBM tölvukerfa nýja hagstæða magnkaupasamninga