Morgunblaðið - 18.11.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18, NÓVEMBER 1987
Jarðskjálftinn í Alaska:
Búist við flóðbylgju
á Kyrrahafsströnd
Golden, Colorado, Reuter.
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum
hafa sent út tilkynningu ti! að
vara við hættu á flóðum (tsun-
ami) í kjölfar jarðskjálftans sem
varð á Alaskaflóa í gær. Engar
skemmdir hafa orðið af völdum
skjálftans.
Skjálftinn á Alaskaflóa varð rétt
fyrir klukkan níu í gærmorgun, að
íslenskum tíma, og mældist 6,8 á
Richter-kvarða. Upptök skjálftans
eru talin vera á hafsbotni um 400
km suð-austur af Anchorage í Al-
aska, samkvæmt útreikningum
jarðfræðinga við jarðskjálftamæli-
stöðina í Golden í Colorado-fylki í
Bandaríkjunum.
„Viðvaranatilkynningar hafa
verið sendar út vegna þess að gert
er ráð fyrir flóðbylgju á norð-vest-
urströnd Kyrrahafs í kjölfar skjálft-
ans, en flóð fylgja oft í kjölfar
neðansj ávaij arðskj álfta, “ sögðu
vísindamenn við skjálftamælistöð-
ina í Golden.
Noregur:
Pólskir lyftinga-
menn biðja um hæli
Frederikstad, Noregi, Reuter.
TVEIR pólskir lyftingamenn
hafa beðið um hæli sem pólití-
skir flóttamenn í Noregi. Þegar
þeir komu til Noregs fundust
ERLENT
þúsundir af hormónatöflum í
farangri þeirra.
Mennimir tveir voru í hópi pól-
skra lyftingamanna, sem ætluðu
að keppa á lyftingamóti í Noregi.
Komu þeir með ferju til bæjarins
Fredrikstad, sem er skammt frá
sænsku landamærunum. Við toll-
skoðun fundu tollverðir þúsundir
af hormónapillum í töskum lyft-
ingamannanna tveggja. Lyf þessi
nota lyftingamenn til að auka kraft
sinn og í trássi við bann alþjóðasam-
banda íþróttamanna. Vom pólsku
lyftingamennimir útilokaðir frá
keppni á mótinu.
Lárviðarskáld Breta:
Málfræði verði
skyldunámsgrein
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TED Hughes, lárviðarskáld
Breta, sagði um helgina, að
ástæðan til þess, að ljóð hans
væru myrk og torskilin, væri sú,
að hann hefði ekki fengið al-
mennilega kennslu í málfræði,
þegar hann var í skóla fyrir
hálfri öld. Hann hefur ákveðið
að styðja tillögu um, að málfræði
verði skyldunámsgrein í skólum
landsins.
Lárviðarskáldið (titlinum fylgja
70 sterlingspunda laun á ári og sú
kvöð að yrkja ljóð við ýmis opinber
tækifæri) segir, að kennslan hafi
verið svo leiðinleg, að hann hafi
glatað öllu trausti á sjálfum sér við
að beita málinu. „Mér var kennd
málfræði eins og hún væri reglur
í framandi tungu. Þetta var mjög
staðnað og leiðinlegt. Kennslan olli
því, að maður var mjög hikandi við
að beita reglunum og sennilega
skaðaði þetta traust manns á rit-
aðri ensku,“ sagði Hughes.
Ljóð Hughes em gjama dmnga-
legar náttúmlýsingar en einnig
léttari og einfaldari ljóð, t.d. fyrir
Hinrik og Vilhjálm Bretaprinsa.
Hann forðast fjölmiðla eins og heit-
an eldinn. Nú hefur hann þó ákveðið
að styðja þetta málefni til að forða
komandi kynslóðum frá sömu örlög-
um og hann sjálfur hlaut. Queen’s
English Society hefur ákveðið að
gangast fyrir, að málfræðikennsla
verði skyldunámsgrein á ný, og
hefur félagið fengið 4000 manns
til að skrifa undir ósk þar að lút-
andi. í þessari málfræðikennslu á
að vera setningarfræði til að nem-
endur skilji hlutverk orðanna í
setningum málsins. Ann Shelley,
formaður félagsins, segir, að lakari
stafsetningar- og lestrarkunnátta
stafy af breytingum á kennsluhátt-
um á síðustu tveimur áratugum.
Hætt var að kenna setningar-
fræpj á sjöunda áratugnum.
Hðghes segir, að hann sé ekki að
fagOram á, að nemendur eigi að
gáhga í gegnum sömu leiðindi og
hahn varð að gera. Málfræði geti
verið og eigi að vera skemmtileg
námsgrein og engin þörf sé á að
læra reglumar reglnanna vegna.
Einn þeirra, sem hefur ritað und-
ir þessa yfirlýsingu, er leikrita-
skáldið John Osbome. Hann sagði:
„Styð þetta algjörlega — sérstak-
lega setningarfræðina."
italskir ellilífeyrisþegar mótmæla stefnu stjórnvalda í efnahagsmálum í Róm í gær.
Ítalía:
Giovanni Goria veitt um-
boð til sljórnarmyndunar
Róm, Reuter.
FRANCESCO Cossiga, forseti
Ítalíu, hefur farið þess á leit við
Giovanni Goria, fráfarandi for-
sætisráðherra landsins, að hann
hafi forgöngu um myndun nýrr-
ar meirihlutastjórnar. Goria
tilkynnti i gær að hann hefði
ákveðið að verða við beiðni for-
setans og myndi hann þegar í
stað hefja stjórnarmyndunarvið-
ræður.
Goria baðst lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt síðasta laugardag
eftir að ágreiningur hafði komið
upp innan ríkisstjómar hans, sem
fimm flokkar áttu aðild að, um
stefnuna í efnahagsmálum. Frjáls-
lyndiflokkurinn hótaði úrsögn er
ljóst varð að ekki yrði staðið við
boðaðar skattalækkanir í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs. Þrátt fyrir
samningaumleitanir tókst ekki að
jafna ágreininginn og því ákvað
Goria að biðjast lausnar.
Goria sagði í gær að flokkarnir
fimm hefðu allir lýst yfir áhuga á
að taka þátt í fyrirhuguðum stjóm-
armyndunarviðræðum og er
almennt taiið að Goria reyni að
endurlífga fyrri stjóm sína. Stjórn-
málaskýrendur eru þó sammála um
að það kunni að reynast erfitt þar
sem deilur hafi sett svip sinn á
samstarf flokkanna í fyrri ríkis-
stjprninni. Töldu þeir sýnt að Goria
Kína:
Zhao vill
hætta
Peking, Reuter.
ZHAO Ziyang, leiðtogi kínverska
kommúnistaflokksins, hefur ósk-
að eftir því að verða leystur af
hólmi sem forsætisráðherra, að
sögn hinnar opinberu frétta-
stofu, Nýja Kína.
Að sögn áreiðanlegra heimilda
er talið að að eftirmaður Zhao verði
brátt útnefndur á fundi kínverska
þingsins. Almennt er búist við að
Li Peng, aðstoðarforsætisráðherra,
verði valinn eftirmaður Zhao.
Zhao, sem er 68 ára, sagði nýver-
ið að eftirmaður sinn yrði talsvert
yngri maður. Li er 59 ára og hann
var kjörinn í fastanefnd stjóm-
málaráðs kínverska kommúnista-
flokksins í október síðastliðnum.
þyrfti að ná sættum hið fyrsta þar
sem langvarandi stjómarkreppa
myndi aðeins verða til að auka enn
frekar ágreining flokkanna.
Nú þegar em komnar upp deilur
um hvernig túlka beri niðurstöður
þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr í þess-
um mánuði þar sem landsmenn
vom beðnir að láta í ljós álit sitt á
fimm mismunandi málaflokkum
sem deilt hafði verið um af hörku
á Ítalíu. Mikill meirihluti kjósenda
lýsti sig andvígan nýtingu kjarn-
orku til orkuframleiðslu og vom
stjómarflokkamir ekki á eitt sáttir
um hvemig bæri að fara að vilja
kjósenda í þessu efni.
Flokkamir fímm; kristilegir
demókratar, sósíalistar, lýðveldis-
sinnar, sósíaldemókratar og fijáls-
lyndir, hafa setið í öllum ríkisstjóm-
um Ítalíu frá árinu 1981. Sívaxandi
ágreiningur milli stærstu flokk-
anna, kristilegra demókrata: óg
sósíalista, hefur gert það að verkum
að erfiðlega hefur gengið að halda
hinum ýmsu ríkisstjórnum flokk-
anna fimm saman. Takist Goria að
mynda nýja ríkisstjórn verður hún
hin 48. frá stríðslokum.
Um 100.000 ellilífeyrisþegar
söfnuðust saman í Róm í gær til
að mótmæla stefnu stjórnvalda í
efnahagsmálum. Stærstu verka-
lýðsfélög landsins skipulögðu
mótmælin og krafðist fólkið þess
að ellilífeyrir yrði hækkaður á
næsta ári auk þess sem fjárframlög
til heilbrigðismála yrðu aukin. Þijú
stærstu verkalýðsfélög landsins
hafa boðað til allsheijarverkfalls
25. nóvember vegna þess að fallið
hefur verið frá skattalækkunum,
sem fráfarandi ríkisstjóm Gorias
hafði boðað.
Reuter
Hvergi smeykur
Mikil bifreiðasýning hefur verið opnuð í Essen í Vestur-þýskalandi
og gefst áhugamönnum þar tækifæri til að kynna sér allt það nýjasta
á sviði bílaframleiðslu. Myndin sýnir hjólreiðamann á farskjóta sínum
undir hjólum vörubifreiðar sem fyrirtækið Leyland framleiðir. Atriði
þetta var liður í kynningu sýningarinnar. Fyrir áhugamenn má geta
þess að bifreiðin er knúinn 500 hestafla vél og er krafturinn slíkur
að bíllinn getur ekið 320 metra vegalengd á afturhjólunum einum.