Morgunblaðið - 18.11.1987, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/ Ámi Sæberg
Fjðrugir krakkar á furðufataballinu í Garðalundi.
SKÍÐAKLÚBBURINN GARÐALUNDI
Furðufatafjör
í Garðabæ
„Þið fáið ekkert poppkorn hjá mér“ virtist
sú stutta segja.
að voru loðdýr í eltingaleik, kúrekar og ballerínur
að borða poppkom að ógleymdum dansandi ösku-
kölium og listmálurum, sem mættu blaðamanni og
Ijósmyndara Morgunblaðsins er þeir litu inn á furðu-
fataball sem Skíðaklúbbur Garðabæjar hélt í Garða-
lundi á sunnudag. Stóð ballið yfir frá klukkan 3 til 6
og var dansað sleitulítið, milli þess sem nemendur 6
— 9 bekkjar sáu um skemmtiatriði. Dregið var úr
aðgöngumiðunum og fengu nokkrir heppnir ballgestir
vinninga, meðal annars skíðatöskur sokka og ennis-
bönd, auk klapphúfa.
Hápunktur dagsins var svo verðlaunaafhending
fyrir bestu búningana. Veitt voru þrenn verðlaun,
fýrir frumlegasta, sniðugasta og fallegasta búninginn.
í máli formanns dómnefndar kom fram að henni hefði
verið nokkur vandi á höndum því margir hefðu verið
til kvaddir en fáir útvaldir. Komst dómnefnd að end-
ingu að þeirri niðurstöðu að sniðugasti búningurinn
hefði verið umslagið hennar Höllu Aðalsteinsdóttur.
Aðspurð sagði hún að pabbi hennar hefði átt hugmynd-
ina. Fallegasti búningurinn að mati dómnefndar var
græn geimvera, Monika Emilsdóttir. Og frumlegasti
búningurinn var valinn pulsan „ein með öllu“, Heiðrún
Grétarsdóttir.
Að þessu loknu héldu ballgestir heim á leið enda
farið að nálgast kvöldmat og fólk án efa orðið svangt.
Bestu búningamir að mati dómnefndar. Þann frumlegasta átti Heirún Grefarsdóttir , þann fallegasta
Monika Emilsdóttir og sniðugasta Halla Aðalsteinsdóttir.
HÓTEL SAGA
Afslöppuð
Hring'ekja
Hringekjan kallast skemmti-
dagskráin sem Hótel Saga
býður Súlnasalsgestum sínum upp
á í vetur. í þessari dagskrá skiptast
á söngur og jsissballett og gaman-
leikarinn Óm Ámason tengir
atriðin saman með kynningum og
gamanmálum.
Stóru veitingahúsin í Reykjavík
hafa undanfarin ár átt í talsverðri
samkeppni um það sem kalla má
laugardagskvöldaskemmtanir.
Þannig hafa Saga, Broadway og
Þórscafé verið með skemmtidag-
skrá að afloknum kvöldverði áður
en dans er stiginn. Þessar dagskrár
hafa verið með ýmsu móti en flest-
ar hafa þær átt það sammerkt að
vera fjömgar og hraðar og til þess
fallnar að ná upp mikilli stemmn-
ingu hjá gestunum.
Hringekjan er hinsvegar beggja
blands. Aðalþunginn er lagður á
jassballett sem Bára Magnúsdóttir
hefur samið við tónlist úr frægum
söngleikjum og stuðst er við sögu-
þráð þeirra. Sú ágæta söngkona
Jóhanna Linnet flytur einnig lög
úr söngleikjum á milli dansatriða
og Bjami Árason látúnsbarki slær
botninn í skemmtunina með söng-
syrpu í minningu rokkkóngsins
Elvis Presley.
Háðfuglinn hógværi, Woody Allen, vill
klæða páfann i rauðan galla og gera hann
að yfirþjóni.
WOODY ALLEN
Vill gera Vatikanið
að vinalegum
veitingastað
Leikstjórinn, leikarinn, klarinettuleikarinn og háðfuglinn Woody Allen
er samur við sig. Nýlega var hann spurður hvað hann myndi gera
ef honum byðist að fá að ráða öllu á ítaliu, en þar er stjómarkreppa um
þessar mundir, rétt enn einn ganginn. Woody var hreint ekki viss hvem-
ig hann myndi leysa þann vanda og sagðist lítinn áhuga hafa á málinu.
Hann myndi frekar nýta áer alræðisvaldið til að breyta Vatikaninu í vina-
legt veitingahús. „Ég myridi einfaldlega breyta því í vinalegan veitinga-
stað...stóran... og með þjónustu á heimsmælikvarða. Allt þjónustuliðið
yrði klætt í rautt og maturinn, ummmm, hann yrði það besta sem ítalskt
eldhús hefði upp á að bjóða. Vínin yrðu að vera afbragð og ég myndi
gera páfann að yfírþjóni tií að taka á móti gestunum.“ sagði hann og
brosti hógværlega.