Morgunblaðið - 18.11.1987, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
63
Undirritaður fór fyrstu hringina
með hringekjunni fyrir skömmu
sem og margir fleiri því setið var
í hvetju sæti salarins. Þrátt fyrir
það gekk fljótt að afgreiða alla þrjá
réttina sem boðið var upp á í kvöld-
matnum. Maður hefur vanist því
að búast ekki við of miklu þegar
nokkrum hundruðum er gefið að
borða í einu en maturinn var þokka-
legur í þetta skipti. Boðið var upp
á sjávarréttapate, svínakjöt og
frómas á eftir. Ég heyrði frá næstu
borðum að fólk var misánægt með
matinn og kvartaði yfir því að geta
ekki valið á milli rétta. Slíkt væri
sjálfsagt illframkvæmanlegt við
svona aðstæður en er samt komið
hér á framfæri.
Skemmtunin hófst síðan með
dansatriði úr söngleiknum On Your
Toes. Dansaramir voru úr íslenska
Jassballettflokknum og Dansflokki
JBS. Þar sem ég þekki ekki til þessa
söngleiks og hef raunar lítið vit á
dansi, verð ég að viðurkenna að
þetta atriði höfðaði ekki sérlega til
mín. Auk þess var athyglin varla
vöknuð svona rétt eftir matinn.
Aðalhlutverk í þessu atriði léku
Margrét Ólafsdóttir, Júlíus Haf-
steinsson, Sigurður Guðjóhnsen og
Hrafn Friðbjömsson.
Ég sperrti hinsvegar eymn þegar
Jóhanna Linnet kom fram á eftir
og söng lög úr Kabarett, því mér
hefur lengi þótt Jóhanna vera í
hópi okkar bestu söngkvenna, alveg
frá því hún söng Segulstöðvarblús-
inn. Jóhanna hefur sérkennilega en
mjög skemmtilega rödd og góða
sviðsframkomu og raunar fannst
mér að hennar þáttur hefði mátt
vera stærri í sýningunni.
Að söng Jóhönnu loknum komu
dansaramir fram aftur og fluttu
atriði úr Evítu. Ég kunni betur við
þetta atriði en það fyrsta og mér
fannst dansaramir koma ágætlega
til skila túlkun sinni á persónunum
úr söngleiknum. Aðalhlutverk í
þessu atriði voru í höndum Soffíu
Marteinsdóttur, Hrafns Friðbjöms-
sonar og Ágústu H. Kolbeinssonar.
Jóhanna Linnet söng síðan aftur
og siðan var þriðja dansatriðið, að
þessu sinni við tónlist úr Chorus
Line. Kannski vegna þess að ég var
loks búinn að fá kaffið og koníakið
fannst mér þetta atriði bara
skemmtilegt og gaman að horfa á
dansarana túlka dansara á æfingu
fyrir söngleik. Þá skilaði Nadia K.
Banine aðalhlutverkinu vel.
Lokaatrlðið var síðan söngsyrpa
Bjama Arasonar, en Öm Ámason
upplýsti að þar sem söngvarinn
væri aðeins 16 ára og mætti því
ekki vera á vínveitingahúsum yrði
að smygla honum inn gegnum eld-
húsið. Það er hinsvegar ekkert
unglingslegt við röddina í Bjama
og raunar ótrúlegt hve hún er
þroskuð. Röddin á vel við Presley-
lög, hvort sem það voru hraðir
rokkarar eða tilfinningarík lög á
borð við My Way, sem flestir tengja
raunar við Frank Sinatra. En það
var dálítið óraunverulegt að sjá 16
ára ungling standa á sviðinu
íklæddan leðurfötum með indíána-
kögri syngjandi My Way með
þessari djúpu röddu.
Bjami Árason hefur alla burði
til að ná langt á söngpviðinu ef
hann ræktar hæfileika sína rétt og
fær réttu tækifærin. Hann virðist
einnig njóta þess að koma fram og
á auðvelt með að fá áhorfendur á
sitt band enda var honum ágætlega
fagnað á Sögu þetta kvöld.
Eins og vonandi hefur mátt lesa
úr þessari umsögn eru skemmtiat-
riði Hringelqunnar á Hótel Sögu
vönduð en það er spuming hvort
þau höfða til nægilega breiðs hóps.
Hringekjan er heldur ekki til þess
fallin að fá fólk til að standa upp
og klappa og syngja með, eða til
að standa á öndinni af hlátri. Miklu
frekar er þama um afslappaða
skemmtun að ræða sem auðvitað
er eðlilegur valkostur í skemmtana-
lífi borgarinnar á laugardagskvöld-
um.
GSH
10%
afsláttur
Bjóðum 10% afslátt á
KIMADAN mykjudælum
2,5 og 3,0 metra á
meðan birgðirendast.
,-rOK-E*
V\G
VELDU
®TDK
iÞEGAR ÞÚ VILT
I HAFAALLTÁ
» HREINU
COSPER
C05PER
— Bíddu aðeins svona þar til ég hef sett fuglahræðuna upp.
fimmtudaginn
19. nóv. kl. 21.00
TONMAR
JAZZ OG BLUES
TRÍÓ GUÐMUNDARINGÓLFSSONAR
HAUKUR MORTHENS
BUBBI MORTHENS
MEGAS
ÞAÐ VERÐUR STUÐ
JAZZVAKNING
GEís
FRA MANF0RD
Vorum að takaupp
enska
herrafrakka
úrkasmírull
Einhnepptir
°g
tvíhnepptir
Margar
gerðir
oglitir.
Verð
aðeinskr.
8.950,-