Morgunblaðið - 18.11.1987, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
i/yywi ií'~\ 'u ir
Fyrstu stjömur síðsumars
Til Velvakanda.
Arktúrus í Hjarðmannsmerki er ein fegursta stjarna himins.
I.
Tímans straumur stöðvast ekki.
Áfram heldur hann allar stundir.
Og nú var farið að verða lítilsháttar
skuggsýnt um nætur.
Mér varð gengið út um lágnættið
þann 1. ágúst. Himinn var alheið-
ur. Sól var hnigin til viðar. Rósrauð-
ur bjarmi var í lofti lágt yfir
sjóndeildarhring í norðri. Snæfell-
sjökull skartaði dimmblár og bar
við himinjöður. Birtu dags lagði enn
hátt á himin. I raun var hann hvergi
almyrkur, ekki einu sinni í suðri.
Undanfarið hafði verið skýjað
nokkuð á kvöldin, en nú var al-
heiðskírt. Ég fór að svipast um, ef
vera kynni að einhver stjama him-
ins væri þegar sýnileg, þrátt fyrir
helst til ljósan himin. Og er ég hafði
rýnt um stund út í himinfjarskann
mátti sjá fáeinar þeirra, þær allra
björtustu. Hátt á lofti, í suðurátt
gat að líta þtjár stjömur, sem
mynda stóran þríhyrning á himni,
og eru ávallt þær stjörnur, sem von
er til að sjá fyrstar, er dimma tek-
ur. Þetta voru þær Deneb í Svanin-
um, Vega (Blástjarnan) í Hörpunni
og Altair í Eminum. Þama birtust
þær augum mínum, þessar þijár
fögru himinstjörnur, í fyrsta sinn á
þessu síðsumri, og sannarlega fagn-
aði hugur minn að sjá þessa fögru
sjón. Þær vom nú hér eins og gaml-
ir vinir, endurséðir eftir nokkurra
mánaða brottveru.
Og er ég enn um stund hafði
rýnt út í heiði himins gat ég séð
tvær stjörnur til viðbótar. Sú fyrri
var jarðstjarnan Júpiter. Hún var
mjög lágt á lofti beint í austurátt,
svo ljómandi hvít og björt og hún
blikaði ekki. Við flest veðurskilyrði
em það aðeins sólstjömur sem
blika.
Hin stjaman var beint í vestur-
átt og ekki mjög hátt á himni. Þetta
var Arktúrus, í Hjarðmannsmerki,
hin ljómandi sól, þótt ekki sýndist
hún mjög björt nú, er himinn var
aðeins hálfrökkvaður.
Þarna stóð hún nú, á heiðum
næturhimninum, þessi fagra
stjarna, sem aðeins sést frameftir
haustmánuðum. Frá mér að sjá var
hún nú beint yfir kirkjunni á Borg-
arholtinu í Kópavogi, enda á ég
heima rétt austan við hana.
Mig langar að segja nokkur nán-
ari deili á þessari merkisstjömu og
frá því stjömumerki, sem hún til-
heyrir.
II.
Arktúrus er bjartasta stjaman
í stjömumerkinu Hjarðmanninum,
(Boötes) og er sú stjama sem mest
hefur sýndarbirtu á norðurhveli
himins eða 0,06 stig. Hún er í 36
ljósára fjarlægð og geislar frá sér
rauðgulu ljósi, en það táknar, að
yfirborðshiti hennar er um það bil
4.000 gráður á Celsíus. Raunbirta
Arktúmsar er 0,2 stig eða um 120
föld á við birtu okkar sólar.
Þar sem vel nýtur sýnis til
stjama, þegar lengra kemur fram
á haust, er mjög heillandi að horfa
á Arktúms, því þá blikar hann svo
skært og fagurlega, flestum öðmm
stjömum fremur.
Hjarðmaðurinn í heild er líkur
útlits stómm flugdreka og er Arkt-
úms neðsta stjarna hans. Aðrar
stjömur þessa merkis em fremur
daufar í samanburði við Arktúms,
en allmargar þó vel bjartar að sjá
og áhugaverðar að skoða. Átta
stjömur merkisins em yfir fjórða
birtustigi og því allar vel sjáanlegar
bemm augum. Bjartastar að sjá em
stjömumar Seginus, Zsar, Nekk-
ar og Alkalurops, sem em í raun
álíka bjartar og Arktúms, þótt
miklu daufari sýnist vegna meiri
fjarlægðar, sem er allt upp í 230
ljósár (Neckar).
Margt er fleira að sjá merkilegt
í Hjarðmannsmerki. Mörg em hér
tvístirni, stjömur sem ganga hver
um aðra á ákveðnum umferðar-
brautum og skyggja hver á aðra
að meira eða minna leyti héðan að
sjá við hverja umferð. Má í því sam-
bandi nefna tvístimin Epsylon
Boötis og Jóta Boötis, sem bæði em
björt og breyta um birtu úr 2,7
niður í 5,1 stig og úr 4,8 niður í
8,3 stig og verða þannig margfalt
daufari að sjá meðan myrkvunin
stendur yfir, þ.e. meðan dimmari
stjaman gengur að hluta fyrir
kringlu þeirrar bjartari og skyggir
á hana að nokkm leyti.
í Hjarðmannsmerki em einnig
nokkrar myrkvastjörnur af Mira-
gerð og breyta mjög um birtu með
reglulegu millibili.
III.
Vissulega er stjömugeimurinn
hinn mesti furðuheimur og verður
þess að við reynum að kynnast
dásemdum hans sem best. Og í
samanburði við víðáttur hans og
stórfengleika, er jörð okkar og sól-
hverfí sem óendanlega smátt
sóiar-ar.
Þó má telja alveg víst að tilvist
mannkyns okkar og hvers einstakl-
ings þess, sé ekki þýðingarlaus
þáttur I þessari mikilfenglegu til-
vem alheimsheildarinnar. Hveijum
einum og öllum sameiginlega mun
okkur hlutverk ætlað og ekki þýð-
ingarlítið.
Tilgangur sköpunarverksins mun
vera sá, að samhæfa efni, orku og
líf til alsamstillingar og alsambands
við alvemnd allrar tilvem. Fyrr
verður ekki rétt stefnt, en slíkt fer
að takast.
Ingvar Agnarsson
Sjómenn
Slys á mönnum í höfnum inni eru mjög tíð. Oft má
rekja orsakir til lélegs frágangs hafnarmannvirkja og
björgunartækja.
Fylgist með lýsingu á bryggjum og umhirðu björgun-
ar- og öryggistækja. Athugið einkum þau sem ætluð eru
til að ná mönnum úr sjó. Að uppgöngustigar nái vel nið-
ur fyrir yfirborð sjávar og að þeir séu auðkenndir sem
best, svo ætla megi að stigamir sáist af manni sem fellur
í sjóinn.
Undirbúningur og íhugun þín geta ráðið úrslitum um
björgun.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þór hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám i gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini i lok námskeiða. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku.
□ Tölvuforritun O Almenntnám
□ Rafvirkjun □ Bifvólavirkjun
□ Ritstörf □ Nytjalist
□ Bókhald □ Stjórnun
□ Vélvirkjun tyrirtækja
□ Garóyrkja
□ Kjólasaumur
Nafn:.........................
Heimilisfang:.................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaöa
□ Blaöamennska
□ Kælitækní og
loftræsting
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR KOPAVOGUR
Lindargata 39-63 o.fl. Hgltagerði
VESTURBÆR Ásbraut Bræðratungu Skjólbraut
Ægisíða 80-98 o.fl. Nýlendugata Einarsnes
GARÐABÆR
ÚTHVERFI Háholt Hrísholt Eskiholt
Skeifan Langholtsvegur 1 -62 Birkihlíð
SELTJNES '
Grænahlíð Sæbraut