Morgunblaðið - 18.11.1987, Blaðsíða 72
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
1S GuðjónÓ.hf.
J 91-27233 |
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Vestfirðir:
Tillögum um
'hópbónus
mjög vel tekið
- segir Pétur Sigurðsson forseti
Alþýðusambands Vestfjarða
TILLÖGUR bónusnefndar samningsaðila á Vestfjörðum hafa mælst
mjög vel fyrir í þeim fyrirtækjum, þar sem þær hafa verið kynntar,
að sögn Péturs Sigurðssonar, forseta Alþýðusambands Vestfjarða.
Tillögur hennar varðandi sameiginlegan heildarbónus í hverri fram-:
leiðslulínu i stað einstaklingsbónuss hafa verið kynntar starfsfólkij
í þremur stórum fyrirtækjum og verða kynntar víðar á næstunni.
Að því búnu verður boðað til fundar samningsaðila, Alþýðusam-j
bands Vestfjarða og Vinnuveitendafélags Vestfjarða, öðru hvoru
megin við helgina.
„Við erum að gera tilraun til
þess að bylta þessu margfræga og
alræmda bónuskerfi. Ef vel tekst
til og þetta dæmi gengur upp, eins
og allar vonir standa til miðað við
undirtektirnar undanfarið, þá vil ég
meina að við séum að vinna þama
að framkvæmd á mesta launajöfn-
uði, sem hefur orðið, að minnsta
'”'**kosti í fiskvinnslunni," sagði Pétur
Sigurðsson.
Hins vegar sagði hann að það
ætti eftir að semja um launagrunn-
inn og greiðslu fyrir afköstin í
bónusnum eða launaiínuna, eins og
það er kallað, og það yrði auðvitað
afgerandi um endanlega niður-
stöðu. Þá sagði Pétur að Alþýðu-
samband Vestfjarða myndi leggja
áherslu á að ná fram leiðréttingum
á ýmsum kjaraatriðum, þar sem
almennt verkafólk væri aftur úr
miðað við aðrar stéttir. Til dæmis
tíðkaðist ennþá eftirvinna í tvo tíma
fjóra daga vikunnar hjá verkafólki,
en það væri orðið óþekkt annars
staðar. Sama gilti um orlof verka-
fólks, það hefði lágmarksorlof sama
hve lengi það hefði unnið. Þá hefði
það ekki greiddan matartíma á
laugardögum, ef hann félli inn í
vinnutímabilið, en aðrar stéttir
hefðu haft það ákvæði í áratugi í
sínum samningum.
„Það eru ýmis önnur slík atriði
sem við viljum taka á. Þama er um
að ræða réttlætismál burtséð frá
öllum peningaupphæðum. Það er
erfitt fyrir fjölmennar stéttir að
vera á eftir hvað þessi atriði snert-
ir og mega ekki hreyfa sig hvað
launaliðinn varðar öðruvísi en aðrir
noti það sem viðmiðun. Mér finnst
að það þurfi að jafna þessi kjör
fyrst og gera þau sambærileg, úr
því að aðrir hópar nota alltaf launa-
breytingar hjá almennu verkafólki
til hlutfallslega sömu hækkunar á
sínum launum, sem em þó miklu
hærri fyrir,“ sagði Pétur að lokum.
Stórvirkar vinnuvélar moka olíumenguðum jarðveginum
upp á bílpalla. Á minni myndinni er olíuleiðslan sem lak.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Olíulekinn á Keflavíkurflugvelli:
Jarðvegurinn brenndur
í malbikunarstöðinni
Keflavík.
FRAMKVÆMDIR hófust seinni-
partinn í gær við að flylja burtu
olíumengaðan jarðveg af svæð-
inu þar sem olíulekinn varð.
Unnið verður á vöktum í alla
nótt við að flytja efni í malbikun-
arstöð Aðalverktaka þar sem
reynt verður að brenna olíuna
úr honum. Ekki er vitað að svo
komnu máli hversu mikið magn
þarf að flytja, en talað er um
hundruð og jafnvel þúsund tonn.
Gunnar Sigfússon stöðvarstjóri
malbikunar og steypustöðvar Aðal-
verktaka sagði að til verksins yrði
notuð gamla malbikunarstöðin, en
hér væri um algera tilraunastarf-
semi að ræða. Efnið væri aðallega
mold og grús hefði ekki farið í gegn-
um tækjasamstæðuna og mætti
búast við ýmsum erfiðleikum.
Gunnar sagði að annar þurrkarinn
í gömlu stöðinni yrði notaður og
bjóst hann við að vinnsla hæfist í
dag. Hann bjóst við að unnt yrði
að vinna um 100 tonn á dag.
Talið er að um 75 þúsund lítrar
af díselolíu hafí lekið í jarðveginn
úr leiðslu sem menn voru búnir að
gleyma að væri til. Það tók heila
viku að fínna lekann og þá kom í
ljós að gatið á leiðslunni var örlítið
eða svipað og nögl á litla fingri.
BB
10,7 kílóum af hassi
smyglað í málningu
Gert við
vélarbilun
í Jökulfelli
JÖKULFELL, skip Sambands
íslenskra samvinnufélaga, hélt
áfram siglingu fyrir eigin vél-
arafli skömmu eftir kl. 2
aðfaranótt þriðjudags, eftir að
tekist hafði að gera við bilun
í vél skipsins.
Skipið hafði þá verið á reki vél-
arvana frá því um kvöldmatarleyt-
ið síðastliðinn sunnudag um 850
sjómílur suðvestur af landinu á
leið frá Bandaríkjunum til íslands.
Að sögn Þorsteins Péturssonar hjá
Skipadeild Sambandsins siglir
skipið fyrir hálfu vélarafli. Var
veður þokkalegt þar sem skipið
er statt, sunnan 6-7 vindstig. Skip-
ið er væntanlegt til landsins á
laugardag.
Fíkniefnadeild lögreglunnar i
Reykjavík, í samvinnu við rann-
sóknardeild Tollgæslunnar, kom
á mánudag upp um smygl á 10,7
kilóum af hassi til landsins. Tveir
karlmenn, 44 og 39 ára, og ein
kona, 30 ára, voru handtekin og
hefur verið gerð krafa um að
þau sitji í gæsluvarðhaldi næstu
vikurnar.
Fyrir skömmu stofnuðu mennim-
ir tveir fyrirtæki hérlendis, í þeim
tilgangi að stunda innflutning. Fyr-
irtækið var skráð á nafn þriðja
mannsins, en sá vissi ekkert af því.
í síðustu viku kom sending í skipi
frá Belgíu. Það reyndust vera 12
kassar af málningu, en við athugun
kom í ljós, að ekki var eingöngu
um málningu að ræða, heldur leynd-
ust 10,7 kíló af hassi í kössunum.
Lögreglan fylgdist með sending-
unni, til að komast að því hver
tæki við henni.
Skömmu eftir hádegi á mánudag
kom karlmaður, annar innflytjend-
anna, á Nýju sendibflastöðiná við
Knarrarvog og óskaði eftir að sótt
yrði fyrir hann vörusending, sem
fyrirtæki hans ætti í Hafnarfirði.
Bflstjóri á stöðinni, sem ekki vissi
um að neitt gmnsamlegt væri á
seyði, sá um að leysa vörumar út
úr tolli og ók þeim síðan að bílskúr
í Fossvogi, sem smyglarinn hafði
til umráða. Þar hófust þeir handal
við að afferma bflinn.
Þegar hluti kassanna var kominn
í bflskúrinn lét lögreglan til skarar
skríða. Báðir mennimir, smyglarinn
og sendibílstjórinn, voru handteknir
á staðnum, en bflstjóranum var
sleppt eftir yfirheyrslur, þar sem í
ljós kom að hann var ekki á nokk-
um hátt viðriðinn málið. Á sama
tíma voru hinn karlmaðurinn og
konan handtekin á heimilum sínum.
Konan er grunuð um að hafa ætlað
að vera mönnunum innan handar
við að koma efninu á markað.
Þetta er eitt stærsta hassmál sem
komið hefur upp hér á landi. Sem
dæmi má nefna, að allt síðasta ár
var lagt hald á minna magn, eða
. tæp 10,4 kíló, sem var þó meira
' en árin þar á undan. Eitt gramm
af hassi er selt á allt að 1000 krón-
ur, svo verðmæti sendingarinnar
eru tæpar 11 milljónir.
í gær var lögð fram krafa um
að karlmennimir tveir yrðu úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 5.
janúar. Þá var einnig í undirbúningi
krafa um gæsluvarðhald yfir kon-
unni, en að sögn Arnars Jenssonar,
lögreglufulltrúa, verður hún að öll-
um líkindum úrskurðuð í gæslu til
skemmri tíma en mennimir.
Sjá samtal á bls. 2: Mér var
skellt á gólfið og sett á mig
handjám.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Fíkniefnadeild lögreglunnar og rannsóknardeild Tollgæslunnar
komu á mánudag upp um smygl á 10,7 kilóum af hassi.