Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 5
Ný barna-
bók eftir
Guðmund
Ólafsson
BÓKAÚTGÁFAN Vaka-Helga-
fell hefur gefið út nýja bók eftir
Guðmund Olafsson rithöfund og
leikara sem hlaut islensku barna-
bókaverðlaunin í fyrra fyrir bók
sína Emil og Skunda.
Nýja bókin heitir Klukkuþjófur-
inn klóki og segir í fréttatilkynn-
ingu frá útgefanda að bókin segi
frá „hópi af hressum strákum í
kaupstað á Norðurlandi. Þeir lenda
í ýmsum ævintýrum, eiga í útistöð-
um við aðra strákahópa og hrella
fullorðna fólkið mmeð ýmsum uppá-
tækjum sínum. Þeim tekst að velta
upp nýjum hliðum á veruleikanum
og þótt atburðimir hafi stundum
afdrifaríkar afleiðingar situr gam-
ansemin í fyrirrúmi."
Bókin er 128 bls. Prentuð hjá
Prentstofu G. Benediktssonar í
Kópavogi og bundin í Bókfelli hf.
í Kópavogi.
Ný bók um
Tóbías eft-
ir Magneu
frá Kleifum
KOMIN er út hjá Iðunni bók eft-
ir Magneu frá Kleifum sem heitir
Tóbías, Tinna og Axel og er
fjórða bók höfundar um dreng-
inn Tóbías.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í þessari nýjustu bók fylgjumst við
með Tobíasi á ferðlagi um landið,
ásamt Tinnu og Sighvati, pabba
hennar. En um haustið þegar heim
kemur á hann að bytja í skóla f
fyrsta sinn. Tobíasi líst nú ekki
meira en svo á það, því að honum
hefur alltaf fundist skólinn eins og
stórt skrímsli. En hann á nú eftir
að skipta um skoðun ...“
Unglingabók eftir
Eðvarð Ingólfsson
ÆSKAN hefur gefið út nýja
unglingabók eftir Eðvarð
Ingólfsson. Hún heitir Pott-
þéttur vinur og er þetta
níunda bók Eðvarðs.
í fréttatilkynningu útgefanda
segir m.a.: „Pottþéttur vinur fjall-
ar um þrjár ólíkar aðalsöguhetjur.
Pétur er ein þeirra. Hann hefur
nýlega lokið 9. bekk, er vinafár
og hefur minnimáttarkennd. Á
einu sumri verður mikil breyting
í lífí hans þegar hann kynnist
bekkjarsystrum sínum, Þóreyju
og Stínu, vel. Þær eiga mikinn
þátt í að rífa hann út úr búri sínu.
Pétur verður hrifinn af Þóreyju
en á ýmsu gengur milli þeirra.
Hún er opinská og hreinskilin en
það á hann ekki alltaf auðvelt
með að þola.“
Pottþéttur vinur er 190 bls.
Almenna auglýsingastofan hf.
gerði kápumynd en Oddi hf. prent-
aði bókina.
„Halló ! Eg heiti BANGSI
BESTASKINN. Éggettalað,
sungið og sagt fullt áf
skemmtilegum sögum, þar sem
ú kynnist vinum mínum, þeim
Gormi, Bárði, Fjólu, Lubba,
Hnoðra og öllum hinum..."
Bangsi Bestaskinn
SKIPHOLT119
SÍMI 29800
Jolatilboð 4.900,-
Já, hann Bangsi Bestaskinn er
búinn að læra íslensku og er
tilbúinn að segja skemmtileg
svintýri... hvenær, sem er.
Þegar Bangsi talar, hreyfir
hann munninn og augun.
Bangsi Bestaskinn,
besti vinur allra bama.