Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 33
Anna Einars-
dóttir — Níræð
Anna Einarsdóttir er níræð í
dag. Hún fæddist á Hellissandi,
dóttir hjónanna Einars Hákonar-
sonar og Jónínu Jónsdóttur frá
Klettsbúð, en ólst upp frá bams-
aldri hjá hjónunum Jóhönnu Bjöms-
dóttur og Hákoni Hákonarsyni,
föðurbróður sínum. Hún bjó á Hell-
issandi til ársins 1947, en fluttist
þá til Reykjavíkur. Árið 1956 fór
hún aftur vestur með sonum sínum,
en hélt enn til höfuðborgarinnar
eftir rúman áratug. Síðan hefur hún
átt heima í Reykjavík.
Böm Onnu Einarsdóttur sem hún
eignaðist með Axel Clausen versl-
unarmanni eru Arreboe, f. 1918;
Dagmar, f. 1922; Haukur, f. 1924;
Herluf, f. 1926; Guðmundur, f.
1930 og Friðrik Áskell, f. 1933.
Sonardóttir Önnu, Jóhanna Guð-
mundsdóttir, ólst upp hjá henni
Á heimili Önnu Einarsdóttur í
Reykjavík hefur löngum ríkt glað-
værð og þar hefur verið gestkvæmt.
Þegar Sandarar komu í bæinn hér
á árum áður var jafnan heilsað upp
á Önnu og bömin. Heimili hennar
stóð Söndumm opið og þar var
minningin um bemskustöðvarnar
sú lang dýrmætasta. Anna sjálf
hefur löngum verið glaðlynd og
ekki látið mótlæti á sig fá. Börriin
erfðu ljúft skap hennar, örlæti,
hjálpsemi og ræktarsemi við upp-
mnann. Og ekki má gleyma
orðkynnginni sem stundum fæddi
af sér eftirminnilegar og litríkar
setningar. Á heimilinu var glatt á
hjalla og gat stundum keyrt úr
hófi þegar gáskinn var hvað mest-
ur. Þá var skáldskapur hversdags-
leikans látinn ráða. Ungum dreng
sem bjó um tíma á heimilinu em
þeir dagar í fersku minni því að
leitast var við að gera dvöl hans
að hátíð. Alltaf var eitthvað að
gerast, aldrei dauflegt. Frá Önnu
og sonum hennar var farið reynsl-
unni ríkari með splunkunýtt stæl-
bindi úr safni sonanna áleiðis
þangað sem slík sundurgerð var
sjaldgæf. Þá gerði ekkert til þótt
misst væri af rútu og meira að segja
líka flugvél. Vesturbæjarlífið var
heillandi og þmngið eftirvæntingu.
Nú er ástæða til að þakka fyrir
dagana á Framnesvegi og svo
margt annað. Svo skemmtilega vildi
til að við Anna urðum nágrannar
seinna þegar hún var aftur flutt til
Reykjavíkur og ég hafði fyrir löngu
snúið baki við fjöm, túni og jökli
og sest að í fæðingarborg minni.
Þá var það Vesturbærinn sem enn
á ný sameinaði okkur, í þetta skipti
Öldugata.
Ég kom nýlega til Önnu Einars-
dóttur í íbúð hennar við Fumgerði.
Við fómm út á svalir og nutum
útsýnis til margra átta. Mér fannst
hún ekki hafa mikið breyst. Hún
varðveitir enn hið liðna, en horfir
til framtíðar og fylgist glöggt með
því sem er að gerast í kringum
hana. Um það hefur hún góð orð,
en er gagnrýnin þegar henni sýn-
ist. Hún flytur með sér hvert sem
hún fer andblæ sjávarplássins sem
fóstraði hana. Þar gat stundum
orðið hvasst, en hvergi var meiri
blíða þegar máttarvöldum þóknað-
ist.
Anna Einarsdóttir situr nú í skjóli
frá veðmm og unir vel sínum hag.
Hugur margra verður hjá henni á
þessum merkilegu tímamótum.
Jóhann Hjálmarsson
^hemmtun./ytö&biÁuz ckj ipennanÁ leppni
jh&vfjctt. 5ptfcwncj<2i ojóv&l í
0 V
l:
Triviaí Pursuit
Fæst i bóka- og ieiklanga-
verslunum um land allt.
ki
„Trivial Pursuil" er skrásett vörumerki. Dreifing á Islandi: Eskifell hf.,
s. 36228. Leikur frá Horn Abbot.Gefinn út meö leyfi Horn Abbot Intl.
Ltd.
í tilefni dagsins
bjóðum við upp á
heitt súkkulaði
meðrjóma
ognýbakaðar
piparkökur.
Komið og skoðið
okkar sérstæðu
aðventu-
skreytingar.
Opið alla daga frá kl. 9-21