Morgunblaðið - 12.12.1987, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987
65
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridssamband
Reykjavíkur
Reykjavíkurmótið í tvímenningi,
úrslit, verður spilað í Sigtúni 9 um
næstu helgi. 46 pör spila til úrslita,
tvö spil milli para eftir barometer-
fyrirkomulagi, allir v/alla, alls 90
spil. Spilamennskan hefst kl. 13 á
laugardeginum og er áætlað að
spila til kl. 20 um kvöldið og hefja
síðan spilamennsku á ný kl. 13 á
sunnudeginum og ljúka keppni kl.
19 (ca).
Áríðandi er að þau pör sem skráð
eru tilkynni forföll, geti þau ekki
mætt til leiks. Þetta er gert til að
hægt sé að kalla inn varapör með
einhverjum fyrirvara. Keppnisstjóri
verður Agnar Jörgensen en Kristján
Hauksson mun annast tölvuútreikn-
ing.
Nv. Reykjavíkurmeistarar í
tvímenningi eru þeir Anton R.
Gunnarsson og Friðjón Þórhallsson
frá Bridsfélagi Breiðholts.
Bridsdeild Barð-
strendingafélag’sins
Ekkert dregur úr spennunni í
hraðsveitakeppninni og þegar að-
eins ein umferð er eftir er staða
efstu sveita þessi:
Ragnar Þorsteinsson 2295
Jónína Halldórsdóttir 2284
Viðar Guðmundsson 2266
Anton Sigurðsson 2234
Kristín Pálsdóttir 2227
Jóhann Guðbjartsson 2222
Aðalsveitakeppnin hefst 4. jan-
úar og er skráning í fullum gangi
í síma 685762 (Kristinn) eða 32482
(ísak).
Bridsfélag
Tálknafjarðar
Staða efstu para eftir þijú kvöld
af Ijorum í aðaltvímenningskeppni
félagsins er orðin þessi:
Jón H. Gíslason —
Ævar Jónasson 541
Guðlaug Friðriksdóttir —
Steinberg Ríkharðsson 539
Ólöf Ólafsdóttir —
Bjöm Sveinsson 517
Geir Viggósson —
Símon Viggósson 510
KENNITALA
ÁLAUNAMÐA
Á launamiða og öll önnur framtalsgögn vegna launa greiddra á árinu
1987 og sem senda ber til skattstjóra í janúar 1988, skal tilgreina
kennitölu, bæði launamanna og launagreiðenda í stað nafnnúmers.
Notkun nafnnúmers á þessum gögnum fellur niður.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Felis caracal
eyðimerkurgaupa
Felis catus
húsköttur
Felis chaus
sefköttur
Felis colocolo
kólaköttur
Felis concolor
púma, fjailaljón
Felis diei-natali
jólaköttur
Felis domestica
köttur, taminn köttur
Felis geofTroyi
dalaköttur
Felis guigna
koði
Felis iriomotensis
fríómótköttur
parenthesis
(lat., úr gr.) innskot, innskots
sctning
parlamentarismus
(lat., úr gr.) þingræði
parodia
(lat., úr gr.) skopstæling (inn
taks)
paronomia
(lat., úr gr.) orðalcikur
pars pro toto
(lat.) hluti fyrir heild
partcs orationis
(lat.) orðflokkar
participium -
(lat.) lýsingarháttur, hlut
taksorð
participium praesens
(lat.) lýsingarháttur nútíðar
ORÐALYKILL
Árni Böðvarsson
Líbía, EF. Líbíu
(úr forneg. Lebu, „Bcrbar í
vcstri“) N.-Afrfku, opinb. heiti
ríkisins Al-Dsjamahíríjah al-Ar-
abíja al-Lfbfja asj-Sjabíja al-
Isjtfrakíja, fb. Líbíumaður, lo.
lfbískur, höfuöb. Tripolis, ríkis-
mál arabfska
Líðandisnes
Noregi, no. Lindcsncs
Lffland
(hluti núverandi Eistlands og
Lcttlands) íb. Lfflendingur, lo.
líflenskur
LjóShús, EF. -húsa
ein Suðureyja við Skotland, e.
Lcwis
Ljubljana, EF. Ljubljönu cfia Lju-
bljana
höfuðb. Slóveníu, Júgóslafíu
Höfundurinn mun áður kunnastur fyrir
íslenska orðabók sem ýmist er kennd við
hann eða Menningarsjóð. Orðalykill skipt-
ist í þrjá efnisflokka. Hinn fyrsti nefnist
Latnesk-íslenskur nafnalykill úr náttúru-
fræði, annar Ýmis fræðiorð og hinn þriðji
Landafræðiheiti. Bókin ætti að vera gagn-
leg skólanemendum, þýðendum, blaða-
mönnum og öllum öðrum sem þurfa að fá
vísbendingu um íslenska þýðingu á svo
nefndum “ alþjóðlegum" orðum.
Bökaúlgáfa
/VIENNING4RSJOÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7* REYKJAVlK • SlMI 6218 22
PJ
íö
m
HVÍTA RÓSIN
Inge Scholl
Ásamt fáeinum vinum dreifðu systkinin Hans og Sophie
Scholl flugritum til námsmanna í Suður - Þýskalandi á árun-
um 1942-43, þar sem hvatt var til andspymu gegn stjóm nas-
ista. Þau guldu fyrir með lífi sínu: 18. febrúar 1943 féllu þau
í hendur Gestapo, og vom líflátin með fallöxi fjómm dögum
síðar.
“Hvíta rósin" var dulnefni andspymuhópsins. Inge Scholl
rekur þessa uggvænlegu atburði af áhrifaríkri næmni. Einar
Heimisson þýddi bókina en Helgi Hálfdanarson þýddi
ljóðin.
Bókaúlgáfa
/MENNING4RSJOÐS
SKÁLHOLTSSTlG 7« REYKJAVlK • SlMI 621822