Morgunblaðið - 12.12.1987, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 12.12.1987, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987 76 Minning: Gunnhildur Sif Gylfadóttir Fædd 30. ágúst 1967 Dáin 26. nóvember 1987 Föstudaginn 27. nóvember síðastliðinn barst okkur sú sorglega fregn að vinkona okkar, Gunnhildur Sif Gylfadóttir, hefði látist af slys- förum erlendis þann 26. nóvember. Það er alltaf erfitt að horfast í augu við dauðann en þó einkum og sér í lagi þegar jafn ung og hæfi- leikarík stúlka er horfin. Við kynntumst Gunnhildi haustið 1981 er hún kom sem nýr nemandi í Réttó. Við fyrstu kynni okkar af henni fundum við strax hve hún . var einstök. Það var sama hvað hún lagði stund á, nám, íþróttir eða vinnu, allt fórst það henni jafn vel úr hendi. Gunnhildur leit alltaf á björtu hliðamar og hreif okkur með sér með sinni einstöku lífsgieði. Því kynntumst við einna best sumarið 1982 er við unnum saman í ungl- ingavinnunni. Það sumar einkennd- ist af röðum skemmtilegra atvika og §öri unglingsáranna. Við eydd- um ófáum stundum í umræður um lffið og tilveruna og þau vandamál sem svo oft koma upp á þessum árum. Gunnhildur spilaði einnig með okkur fótbolta í Víking, þar sem hún átti stóran þátt í uppbyggingu félagsandans og ekki leið á löngu þar til hún var orðin einn af lykil- mönnum liðsins. Sést það best á árangri hennar $ Kanada þar sem hún var komin í kanadíska Ólympíulandsliðið er á að leika í Seoul árið 1988. Gunnhildur var frábær persónu- leiki og fínnst okkur við vera ríkar að hafa fengið að kynnast henni. Minningin um þann stutta tíma er við áttum með henni geymist ávallt $ hjarta okkar. Við vottum foreldrum hennar og systkinum okkar dýpstu samúð. Megi guð styrkja þau og blessa í sorg þeirra. Alda, Hrund og Erla. Fyrstu árin áttum við Gunnhildur heima í sama húsi á Tómasar- haganum. Samgangur var mikill milli hæða og var það ýmislegt sem við systkinum brölluðum saman. Þá mynduðust þau tengsl sem aldr- ei rofnuðu þótt vegalengdin á milii yrði sífellt lengri. Nú hefur frænka mín í sveppahúsinu enn lagt upp í langferð en samt finnst mér hún svo nærri. Fátt er hægt að hugga sig við utan minningamar um yndislega stúlku. Gunnhildur var ætíð svo gefandi og mannbætandi öllum þeim er henni kynntust, því hún hafði til að bera alla þá mannkosti sem eina manneskju geta prýtt. Nú þegar ég kveð frænku mína, ljúflinginn Gunnhildi Sif, er hjarta mitt fyllt ólýsanlegu þakklæti fyrir allt sem hún gaf mér og ég bið almættið að taka hana til stn svo ljós hennar megi áfram skína. Hjartans Gylfi, Rúrí, Baldur, Bryndís, Amgunnur, Yrsa Þöll og Warren, í minningunni er styrkur- inn og í voninni að ef til vill hittumst við öll á ný — hinum megin. Fyrir okkur sem eftir erum mun Gunnhildur ávallt vera leiðarljós þess besta og göfugasta sem í okk- ur býr. Bubbi Það má segja að ég hafi þekkt betur til Gunnhildar en þekkt hana í raun. Við vorum leikfélagar þegar við vomm lítil og vorum daglega samferða í leikskólann. Minning- amar frá þessu tímabili eru hins- vegar, eins og gefur að skilja, æði fátæklegar og óljósar. Atvikin hög- uðu því svo þannig að fjölskylda mín fluttist til útlanda þegar ég var 6 ára, og bjuggum við þar næstu sex árin. En ég fékk alltaf reglu- lega fréttir af Gunnhildi Sif, þar sem ^ölskyldur okkar eru miklir vinir og og því mikið um bréfaskrift- ir. Er ég var á 13. ári fluttum við flölskyldan heim og stuttu seinna kom fjölskyldan hennar Gunnhildar í heimsókn. Þama hittumst við aft- ur, fyrrum leikfélagar, og það var eiginlega búist við því að við mynd- um taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og stökkva strax út í sandkassa. Slíkt gerðist reyndar ekki, en eftir hálfvandræðaleg samtöl okkar á milli kom upp úr dúmum að við áttum sameiginlegt áhugamál, knattspymu. Var því stungið upp á því að fara í fótbolta úti í garði. Þetta fannst mér alveg kjörið. Þá gæti ég, sem var þá miðlungs- knattspymumaður á strákamæli- kvarða, sýnt ótvíræða jrfirburði á því sviði yfir hið veika kyn, látið Ijós mitt skína og vakið aðdáun og hrifningu hennar á leiðinni. En raunin varð allt önnur. Þessí litla, mjóa stelpa yfirspilaði mig gjörsamlega með krafti sínum og tækni. Ég tapaði leiknum með miklum mun. litli bróðir minn, sem var að horfa á, missti allt álit á stóra bróður sínum, sem tapaði fyr- ir stelpu. Það er því ekki að neita að eftir þessa heimsókn átti stúlka þessi alla mína lotningu. Heimsóknir fjölskyldnanna á milli héldu síðan áfram þegar báðar vom hérlendis. Við Gunnhildur átt- um annað sameiginlegt áhugamál, hún spilaði á fiðlu en ég á selló. Systkini okkar beggja era einnig hljóðfæraleikarar og vora því þessar heimsóknir ágætis tilefni allskonar samspils. Þama hafði ég því fundið svið sem við gátum spilað saman án þess að ég væri dæmdur til að tapa. Gunnhildur var mjög góður fiðluleikari og músíkölsk eins og systur hennar. En hvert skipti sem stungið var upp á að fara í fótbolta tóku sig allt í einu upp gömul meiðsl hjá mér, og þannig var forð- ast fleiri leiki. Þegar ég hugsa tíl baka er það greinilegt að þessar heimsóknir hafi verið emkennandi fyrir Gunn- hildi Sif. Hún var þessi kraftmikla, óvenju fjölhæfa stúlka. Að mörgu leyti mjög sérstök stelpa. Við voram samferða í leikskól- ann. • Þótt ,við hittumst ekki oft eftir það fann ég að við voram hluti af lífi hvors annars. Nú getum við ekki lengur verið samferða hér. Ég er þakklátur að hafa fengið að njóta samfylgdar hennar. Magnús Þorkell Bemharðsson Yndisleg lítil mannvera gengur hér um á meðal okkar um tíma og gerir allt bjartara. Gunnhildur Sif var kölluð burt svo ung, svo alltof alltof fljótt. Hversvegna? Það er engan veginn hægt að skilja, og það er skamm- degi. Við sem höfum fylgst með Gunn- hildi Sif frá fæðingu höfum glaðst innilega yfir velgengni hennar í hveiju sem hún tók sér fyrir hendur. Hún virtist eiga svo auðvelt með allt. Stundaði nám í læknisfræði og fiðluleik og lék fótbolta í tómstund- um. Af einhveijum óskiljanlegum ástæðum var þessi fíngerða stúlka svo dugleg í fótbolta að hún stefndi á ólympíuleikana með kvenna- landsliði Kanada. Gunnhildur Sif var grönn og fínlega byggð, hafði hægláta fram- komu, falleg og elskuleg. Augun leiftraðu af greind, kærleika og gáska. Þannig sé ég hana alltaf fyrir mér. I þungbæra skammdegismyrkri er huggun að vita að hún er komin heim til kærleiksríks föður á himn- um þar sem hún mun „lifa jólagleði þá, sem tekur aldrei enda“. Guð blessi minninguna um hana og styrki alla ástvini hennar. Rannveig Sigurbjömsdóttir Hún Gunnhildur, mín elskulega' og besta vinkona, er dáin og í dag fylgjum við henni til grafar. Það er svo erfítt að sætta sig við að svona yndisleg stúlka sé tekin frá okkur. Hún sem stóð sig svo vel í öllu. Hún átti yndislega ijölskyldu og bjarta framtíð. Hún var aíltaf svo lífleg, bjartsýn og tilfinningarík og fólk dáðist strax að henni eftir fyrstu kynni. Frá sex ára aldri voram við Gunnhildur vinkonur og þó að stundum væri langt á milli okkar, þá fannst mér ég fá einhvem styrk við að hugsa til hennar og hún var alltaf svo nálægt mér. Einn besta tíma í lífi mínu áttum við Gunnhildur saman í Berchtes- gaden sumarið 1986. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að njóta sam- vista við hana þar. Það era svo margar góðar minn- ingar sem ég á um hana, sem ég geymi í hjarta mínu allt mitt líf. „Tungiið, tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja." Hugurinn ber mig hálfa leið í heimana nýja. Mun þar vera margt að sjá möigu hefurðu sagt mér fra, þegar þú leiðst um loftin blá og leizt tfl mín um rifinn skjá. (Theódóra Thoroddsen) Elsku Gylfi, Rúrí, Amgunnur, Bryndís, Baldur, Yrsa Þöll og Warr- en, Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Sif Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefúr hér hinn síðsta blund. (V. Briem) A skilnaðarstundu leitar hugur- inn aftur í tímann, og margar góðar minningar riQast upp. Engin orð fá lýst söknuði okkar og ást á Gunnhildi. Minningin um góða vinkonu lifir. Við söknum Gunnsu. Bryndís Eva, Bryndís Ýr, Gréta, Hrönn, Jenný, Sigga og Þóra. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gigjustrengur brostið. Og enn ég veit maigt hjarta, harmi lostið, sem hugsar tfl þín alla daga sína. Skjótt skipast veður í lofti. Láfið blasti við Gunnhildi og framtíðin virtíst björt en þegar minnst varir grípa æðri máttarvöld í taumana. Orð era fátækleg á svona stundu. Fregnin um hörmulegt lát Gunn- hildar var sem reiðarslag. Lífið virðist svo ósanngjamt er ungt fólk í blóma lífsins er hrifíð á brott. Otal spumingar brenna á vöram. En það er víst ekki okkar að ákveða mörkin milli lífs og dauða. Þegar Gunnhildar er minnst birt- ir upp í hugum okkar og við minnumst ótal ógleymanlegra stunda sem við áttum með henni sumarið 1986, fjarri heimahögum. Gunnhildur var gædd öllum þeim eiginleikum sem bestir þykja í fari manna. Hún var allt í senn, sannur vinur, gáfuð, einlæg, látlaus og hlý- leg í framkomu. Það geislaði frá henni lífshamingju hvar sem hún fór. Hæfileikar hennar á hinum ólfku sviðum voru óteljandi og ósjaldan minnumst við hennar með sína ástkæra fiðlu sér við hlið. Þrátt fyrir stutt en góð kynni þá mun minningin um Gunnhildi lifa í hjörtum okkar um ókomna framtíð. Við viljum þakka fyrir allt það sem hún gaf okkur, það mun verða okk- ur styrkur í lífsins ólgusjó. Við trúum því að kraftar hennar og atorka megi verða nýttir á æðri stöðum. Megi góður guð styrkja foreldra Gunnhildar, systkini og aðra ástvini í þeirra þungu sorg. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirra yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og álíflega, óháð því, sem kemur, í æsku smnar tignu fegurð lifír? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífeins perlu í gullnu augnabliki. (Tómas Guðmundsson) Inga, Ragnhildur og Jóhanna María. Með þessum fátæklegu orðum viljum við kveðja elskulega frænku okkar, Gunnhildi Sif. Við voram harmi slegin er við fréttum um hið sviplega slys og að Gunnhildur væri dáin. Okkar fyrsta hugsun var hvers vegna hún, sem var svo ung og efnileg og lífið blasti við, væri hrifin brott í blóma lífsins frá ást- vinum sínum. Þó Gunnhildur og Qölskylda hennar hafi verið búsett í Kanada undanfarin ár hefur sam- band þeirra við ættingja og vini heima á íslandi ætíð verið mikið. Gunnhildur heillaði alla sem henni kynntust enda var hún alveg einstök, alltaf svo glöð og jákvæð og gat séð eitthvað gott í öllu og öllum og hefðu margir getað lært margt af henni. Gunnhildur og unn- usti hennar Warren vora mjög samstillt og reyndu að eiga margar samverastundir með fjölskyldum sínum og settu það ekki fyrir sig þó þau þyrftu að ferðast langa leið til að geta dvalið með þeim í frístundum. Gunnhildur stundaði nám í lækn- isfræði við ACADIA-háskólann og hafði þar sýnt framúrskarandi námsárangur og þegið marga styrki og þar að auki hafði hún fengið útnefningu fyrir hinum virta RHODS-styrk þegar hún lést. Einn- ig spilaði hún á fíðlu og var konsertmeistari í sinfóníuhljómsveit ungs fólks í Nova Scotia. Gunn- hildur var mjög virt og dáð í háskólanum og til marks um það vora um þúsund manns viðstaddir minningarathöfn sem haldin var þar og er búið að stofna minningarsjóð við háskólann sem bera mun nafn hennar og foreldrar hennar munu hafa umsjón með úthlutun úr. Frá bemsku hefur Gunnhildur ætíð ver- ið virkur þátttakandi í íþróttum og fjölhæf þar sem annars staðar. I knattspymu náði hún mjög góðum árangri og var markahæsti leik- maður ACADIA síðastliðin þijú ár ásamt því að vera markahæst yfír allt Austur-Kanada síðustu tvö árin. Gunnhildur sá árangur sem erfiði fyrir þann tíma sem hún eyddi í íþróttir því hún hafði verið valin í landslið Kanada og lék með því á sérstakri undanþágu þar sem hún var Islendingur. Landsliðið tekur nú þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið er í Taiwan og hlakkaði Gunnhildur mikið til að fara þang- að. Hún var einnig í All Stars-liði Kanada og Nova Scotia. í Kanada er búið að koma á stofn viðurkenn- ingu til minningar um hana, sem veitt verður besta knattspymu- manni ársins í kvennaknattspymu. Þrátt fyrir alla þessa atorkusemi var hún alltaf tilbúin til að gera öðram greiða með bros á vör og við munum aldrei gleyma hversu mikla hlýju, athygli og umhyggju hún sýndi bömunum okkar. Minn- ingin um þessa hlýju og yndislegu frænku mun varðveitast í hjörtum okkar um ókomna framtíð. „Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama;. en oróstír deyr aldregi, heim er sér góðan getur.“ Elsku Rúrí, Gylfi, Amgunnur, Bryndís, Baldur, Yrsa Þöll og Warr- en, megi Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Ingibjörg, Nonni og Villa. Soigin er grima gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum. Og hvemig ætti það öðruvísi að veta? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. (Úr Spámanninum e. Kahlil Gibran) Gunnhildur er dáin! Þegar við heyrðum þessa harma- fregn um að Gunnhildur elsku vinkonan okkar væri dáin setti okk- ar hljóðar. Maður spyr sjálfan sig, af hveiju hún? Gunnhildur var innileg og hlýleg manneskja, full af lífskrafti og gáska sem geislaði af henni og sem hún gaf öllum þeim sem hún hitti af. Hún bar ætíð af í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur, sama á hvaða sviði það var, enda setti hún markið hátt. En dauðinn gerir ekki boð á undan sér og Gunnhildur var hrifín burt frá ástvinum sínum. Við trúum þvi að Gunnhildur sé ætíð á meðal okkar og styrki okkur og styðji á lífsins braut þar til við hittumst á ný. Kæra Gylfi, Þuríður, Amgunnur, Biyndís, Baldur, Yrsa Þöll og Warr- en. Við vottum ykkur öllum okkar Viðtalstími borqarfulltrúa Siálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins varða tll viðtals f Valhöll, Háalaitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgar- búum boðið að notfæra sér viðtalstfma þessa. Laugardaginn 12. desember verða til viðtals Árni Sigfússon, formaður félags- málaráðs og í stjórn heilbrigðisráðs, Þórunn Gestsdóttir, formaður jafnréttis- nefndar og í stjórn umhverfismálaráðs og ferðamálanefndar Rvk. og Helga Jóhannsdóttir, í stjórn urrfferðarnefndar og SVR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.