Morgunblaðið - 12.12.1987, Blaðsíða 84
84
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987
fclk í
fréttu
Robert De Niro er leikari góður
og á fjölmarga áhorfendur sem
safnast að honum hvar sem hann
kemur. Fyrir skömmu ruddist einn
þeirra í gegnum þvöguna, smaug
framhjá lífvörðunum og stillti sér
upp fyrir framan Robert sem var
mættur til ónefndrar borgar vegna
frumsýningar á „Hinum vamm-
lausu". „Herra Niro, herra Niro,
munið þér ekki eftir mér?“ spurði
áhangandinn. „Ég er þjónninn sem
færði yður kampavín í gær, á hótel-
inu, munið þér ekki? “ Þegar að
var gáð kom í ljós að hér var á
ferð Lou Diamond Philips, þekktur
fyrir leik sinn í „La Bamba" sem
hafði fengið þjónagalla léðan og
þannig komist í námunda við goðið
sitt. Niro lét f ljós velþóknun sína
á uppátækinu og sagði: „Þessi var
nokkuð glúrinn. Vel gert drengur
minn, vel gert. Þú átt skilið þjórfé
fyrir." Lítillátur maður, Robert.
LEIKARAR
GEORGE MICHAEL
Gott er að
eiga góða að
Hann á góða að hann George
Michael, þó hann kunni ef til
vill ekki alveg að meta náungakær-
leikinn.
Hann var að búa sig undir að
skreppa til Munchenar í sjónvarps-
viðtal, þegar honum bánist þær
fréttir að fluginu hefði seinkað og
hann kæmist því miður ekki þangað
fyrr en næsta dag. Á Hotel Wil-
helmina í Munchen beið tökuliðið
eftir því að popparinn góðkunni léti
sjá sig en fékk að endingu þær frétt-
ir að hann kæmist ekki. Þar sem
tökuliðið stóð og barmaði sér í af-
greiðslu hótelsins, bar þar að
velviljaðan gest sem bauðst til að
hlaupa í skarðið fyrir George. Hér
,‘war á ferð Mel Brooks, sem var að
kynna sína nýjustu mynd „Space-
balls" og hafði heyrt í örvæntingar-
fullum sjónvarpsmönnum. Þeir tóku
honum fegins hendi og drifu hann
til sjónvarpsstöðvarinnar þar sem
viðtalið var tekið upp í snarhasti.
George var að vonum þakklátur
fyrir greiðvikni Mels, en bætti við,
„ en nú hótar hann að syngja lögin
mfn og það líst mér hreint ekki á.“
Svipljótur varð hann George
ðfcchael þegar fluginu seinkaði.
Robert De Niro kann að meta
það sem vel er gert.
Lou Diamond þykir til um fleiri
leikara en sjálfan sig.
EMMA FREUD
Koddahjal
Freud gamli gæti verið hreykinn
af bama-barninu sínu, Emmu
Freud, hverrar starfsvettvangur er
rúmið, að nóttu til. Þetta má mi-
skilja, en það er ekkert við hennar
starf sem ekki þolir dagsljósið, því
hún er umsjónarkona allsérstæðra
sjónvarpsþátta sem kallast „kodda-
hjal“. Þar ræðir hún við gesti og
gangandi og fara þau samtöl öll fram
í gríðarstórri hjónasæng í upptöku-
veri breska sjónvarpsins að nóttu til
og eru send beint út. Emma segir
þetta hina einu sönnu aðferð við að
spjalla við fólk, því þar sé fólk lang
afslappaðast auk þess sem reikna
megi með að áhorfendur horfí á þátt-
inn í rúminu.
Gestimir mega ráða í hvers konar
náttfatnaði þeir eru en ekki er leyfí-
legt að koma nakinn fram. Sjálf er
Emma í náttfötum sem hefði hæft
langafa hennar ágætlega. Að sögn
Emmu gengur þátturinn eins og í
sögu, gestimir kunna vel að meta
nýbreytnina og láta ýmislegt flakka
sem þeir hefðu aldrei látið frá sér
fara undir venjulegum kringumstæð-
um.
Meðal þeirra sem hafa hjalað við
Emmu er Peter Stringfellow dans-
húsaeigandi sem sagðist vera 600
milljón króna virði og játaði að sér
fyndist „ömurlegt" ef hann yrði ekki
jafn bólfimur um fímmtugt og hann
væri nú. Að þessum orðum sögðum
Þó að Peter Stringfellow hati
reynt að bíta Emmu, var honum
fyrírgefið.
reyndi hann að bíta Emmu sem vatt
sér snarlega undan. Aðrir góðir gest-
ir hafa til dæmis verið Jason Connery,
sem ræddi um hvað það er erfítt að
eiga frægan fóður og klæðskiptingur-
inn Divine sem sagði frá því hvað
foreldrar eiga bágt með að þola að
sonur þeirra klæði sig í kvenmanns-
föt. Þá ber að nefna Lemmy, söngv-
ara þungarokksveitarinnar
Motorhead, sem gerðist æði fjölþreif-
inn undir sænginni. En Emma kippir
sér ekki upp við svoleiðis smámuni,
„hér eru 30 tæknimenn svo ég þarf
ekkert að óttast."
Emma er eins og áður segir, af-
komandi Freuds. Faðir hennar er
frægur stjómmálamaður, Sir Cle-
ment Freud og móðir hennar, Jill
Freud, er leikkona. Emma hefur leik-
ið talsvert og hóf ferilinn aðeins 7
ára með því að leika heilaga guðs-
móður viðbeinsbrotin. Þá hefur hún
einnig verið poppskríbent og leikstýrt
í sjónvarpi og leikhúsi.
Andstætt kenningum forföðurs
síns, þjáist hún ekki af Elektruduld
og er raunar alls ókunnug kenningum
langafa síns. „Ég veit í raun og veru
ekkert um hann en samt er ég ákaf-
lega stolt af honum. Ég veit að hann
setti fram margar gáfulegar kenning-
ar og að þær gjörbyltu sálfræðinni
én ég hef ekki hugmynd um hvemig
hann fór að því.“
Sigmund
Freud væri
stoltur af
dóttur-
sonar-
dóttur sinni
efhann
væri uppi
nú á dög-
um.
AÐPÁUN ARVERÐUR
ROBERT PE NIRO