Morgunblaðið - 12.12.1987, Síða 96

Morgunblaðið - 12.12.1987, Síða 96
Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Framtiö ER VIÐ SKEIFUNA t SUZUKI LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Flugleiðir: Samið við Luxair um flug til Kýpur SAMNINGAR stainda nú yfir miklli Flugleiða og Luxair í Lux- emborg um samvinnu vegna flugs frá íslandi til Kýpur. Hyggjast félðgin hefja flug þangað skömmu fyrir næstu páska. Sigfús Erlingsson framkvæmda- stjóri markaðssviðs Flugleiða sagði Heiðlóuríhóp- um í Eyjum HÓPAR af heiðlóum halda sig enn i Vestmannaeyjum og hafa vakið verðskuldaða athygli þegar þær tylla sér i húsagarða og ná i ormana sína, því enn er býsn af slikum kræsingum á boðstélum þótt komið sé að jólum. Tún eru enn allgróin í Eyjum og því óhætt að segja að jólin séu á næstu grösum. Þær virðast klókar lóurnar, því það mun vera napurt á meginlandi Evrópu á sama tíma og ýmis sumarblóm eru enn í fullum skrúða í Vest- mannaeyjum. í samtali við Morgunblaðið að ætl- unin væri að bjóða flug frá Keflavík til Lamaca á gríska hluta Kýpur. Sagði hann að Laraaca væri nú mjög vinsæll ferðamannastaður, sérstaklega meðal Norðurlandabúa. Flogið verður vikulega til Kýpur og er fyrirhugað er að farþegar fari frá íslandi að morgni fímmtu- dags áleiðis til Luxemborgar. Eftir einnar og hálfrar stundar viðdvöl verður haldið áfram til Lamaca með vél frá Luxair á sama flugnúmeri og frá íslandi. íslensk flugfreyja fylgir farþegunum alla leið. Að morgni föstudags er flogið frá Kýpur og lent í Luxemborg um hádegisbilið. Þar verður skipt um vél og flogið til íslands með vél frá Flugleiðum. Sigfús sagði að Flugleiðir teldu ástæðu til að gera tilraun með þetta flug. Það yrði jafnframt hluti af áætlunarflugi félagsins og tengist Ameríkuflugi. Mjög góðar feiju- og flugsamgöngur væru milli Kýpur og nágrannalandanna, sem gæfu marga möguleika á lengri og styttri ferðum þaðan. Happdrættisimð- ar fyrir milljarð DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hafði skðmmu fyrir síðustu mánaðar- mót gefið út leyfi fyrir 151 happdr?etti. Útgefnir voru um það bU 4,1 milþ'ón happdrættismiða og er heUdarsðluverð þeirra var rúmlega 1,1 milþ'arður króna. Verðmæti vinninga þessara happ- drætta var alis um 216 miíljónir króna. Stóru happdrættin þrjú, Hap- drætti Háskólans, DAS og SÍBS eru utan við þessa upptalningu, svo og Lottó og Getraunir en smámiðahapp- drættin, nýjasta tískan á happdrætt- ismarkaðinum, eru meðtalin. Fyrsta leyfið fyrir slíku var gefíð út 28. ágúst til Rauða Krossins og síðan hafa hann, Landssamband Hjálpar- sveita skáta og Ungmennafélag Hveragerðis og Ölfuss fengið leyfi til að selja 950 þúsund slíkra miða fyrir tæpar 50 milljónir króna en þar af fara rúmar 15 milljónir í vinninga. Minnstu happdrættin voru hjá Ein- heija á Vopnafírði, Golfklúbbnum Mostra, Stykkishólmi og 2. bekk Verkmenntaskólans á Akureyri. Upp- lag hjá hveiju þeirra var aðeins 300 miðar. Mest upplag var af smámiða- happdrætti Landsambands Hjálpar- sveita skáta, 500 þúsund miðar. Langdýrastir eru miðamir í happ- drætti Borgaraflokksins, 5000 krónur hver. Fært um alla vegi landsins Einstakt á þessum árstíma ÓVENJU sqjólétt hefur verið um allt land í haust. Að sðgn Ólafs Torfasonar vegaeftirlitsmanns hefur þó borið við að þurft hafi að ryðja snjó & Vestfjörðum og Austfjðrðum. Sagði hann að nú hamiaði snjór hvergi færð á landinu og væri það alveg ein- stakt á þessum árstíma. Allir vegir á landinu eru nú fær- ir nema Vestfjarðarvegur í Vattar- firði. Þar er mikil aurbleyta og vegurinn því varla fær fólksbflum. Þar er nú leyfður 7 tonna öxul- þungi. , Snjó- og hálkuieysið á þessu ári hefur sparað Reykjavíkurborg 6,7 milljónir króna ef miðað er við árið í fyrra, sem þó var snjólétt ár. Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að á sama tíma í fyrra hefði snjó- "inokstur og hálkueyðing kostað borgina 2ð,7 milljónir króna, en 23 milljónir í ár. Sagði Ingi að alltaf væru menn á vakt með snjómokst- urstæki tilbúin ef gerði snjókomu eða hálku og því væri spamaðurinn ekki meiri en raun ber vitni. Eldsvoði á Skagaströnd: Morgunblaðíð/Bjarni Jólasveinar úr Mosfellsveit KRAKKARNIR úr 3 bekk SI í Varmárskóla velli, þar sem þessari mynd var smellt af. skruppu til Reykjavíkur í gærmorgun. Nem- Vegfarendur veittu krökkunum verðskuldaða endurnir, sem eru 8 ára gamlir, löbbuðu niður athygli því þeir voru allir í jólasveinabúning- Laugaveginn og gerðu stuttan stanz á Austur- um. „Hræðilegt að koma að stofunni í ljósum logumu - segir Erlingur Stefánsson, sem slapp naum- lega ásamt konu sinni o g tveimur börnum Skagaströnd. ELDUR var laus í gðmlu einbýlis- húsi við Strandgötu rétt fyrir hádegi í gær. Slökkviliðið kom á staðinn skömmu síðar, en þá voru íbúarnir, Hrund Eronsdóttir og Erlingur Stefánsson sloppin út með börnin sin tvö. „Það var hræðilegt að koma að stofunni í ljósum logum," sagði Erlingur. „Við hjónin vorum ekki komin á fætur og krakkamir voru að horfa á sjónvarpið í stofunni. Allt í einu kom strákurinn, sem er þriggja ára, inn í herbergi til okkar og sagði að það væri reykur í stof- unni. Ég stökk strax fram og þá var stofan alelda og húsið fullt af reyk. Ekki var um annað að ræða en koma sér út og við sluppum út á náttfötuniim. Við gátum engu bjargað nema litla stelpan mín eins og hálfs árs hljóp til baka inn í herbergið sitt og náði í dúkkuna sína. Eg má ekki til þess hugsa hvað hefði geta gerst ef kviknað hefði f um miðja nótt. Þá er ekki víst að við hefðum sloppið svona vel,“ sagði Erlingur. „Okkur hjónin langar að koma á framfæri þökkum til allra sem lagt hafa okkur lið í dag, meðal annars með fatagjöfum, þvf við stóðum þarna úti berfætt á náttfötunum," sagði hann ennfremur. Slökkviliðinu gekk vel að slökkva eldinn, sem var bara í einu her- bergi. Gífurlegur hiti myndaðist þó í húsinu og skemmdist það mikið af eldi reyk og vatni. Innbú þeirra hjóna eyðilagðist allt, en það var óvátryggt. Eldsupptök eru ókunn, en talið er að kviknað hafí í út frá rafmagni. ÓB
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.