Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 52
52 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
“ 'Í'^°ía»í
AÓVÚÍ ’ Si°^S-NVví^' \ B6tS.'a°?’cvb\* vjaV-^ n {6\^'se \; \\a°s s'°
U W**VvsáU»<2S*<'‘ Wk-'sSV:
V,at'an t ió°SSÍItbóluT;^a>AaS'tvUínaí'<i^0f ^
vet^»dc&
AUÐVELD í NOTKUN.
SÖLUAÐILAR KENNA ==~
ÞÉR Á HANA- IBM PS/2 ÆBáTs
/•
Auður Haralds
Elías kemur
heim eftir
Auði Haralds
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
um Elias eftir Auði Haralds og
nefnist þessi nýja saga Elías kem-
ur heim.
Þetta er fimmta bókin um hina
sívinsælu söguhetju sem skemmt
hefur fslenskum lesendum með
ótrúlegum uppátækjum og einlægni
sinni. Hver bók segir sjálfstæða
sögu og hér fylgjumst við með Elí-
asi og fjölskyldu hans þegar þau
eru flutt heim til íslands aftur. Eins
og segir í bókarkynningu: „Það
hefði átt að verða mjög friðsamlegt
því Magga móðursystir mömmu
varð eftir í útlöndum. En það er
enginn friður. Pabbi Elíasar sér
fyrir því_
Það hjálpar ekkert að mamma
Elíasar er alveg róleg. Hún er það
nefiiilega bara af því að hún sefur
allan daginn. Sjálf segir hún að það
sé litla bróður Elfasar að kenna og
að hún vakni örugglega þegar hann
fæðist. Elías veit ekki hvort hann
á að þora að trúa því. Hann hefur
áhyggjur af hvað verði um litla
bróður sinn. Því sennilega á litli
bróðir ekki von á því að eignast
mömmu sem sefur stanslaust og
pabba sem gerir eintómar vitleysur.
Sem betur fer á litli bróðir stóran
bróður sem ákveður að bjarga hon-
um.“
Brian Pilkington gerði myndim-
ar.
Bragi Siguijónsson
Fimmta bindi
Gangna og rétta
BÓKAÚTGÁFAN Skjaldborg
hefur gefið út bókina Göngur og
réttir eftir Braga Siguijónsson.
Ritsafnið Göngur og réttir kom
út hjá bókaútgáfunni Norðra
1948-1953. Bragi Siguijónsson
safnaði eftiinu og bjó til prentunar.
Þetta er fimmta og sfðasta bindi
Gangna og rétta og fjallar um göng-
ur og réttir f Þingeyjar- og Múla-
sýslu. í þessu bindi er hinn rómaði
þáttur Benedikts frá Hofteigi,
Vopnfirðingar á Fellsrétt.
Nú hefur bókaútgáfan Skjald-
borg endurútgefið ritsafnið í umsjón
Braga, sem raðað hefur efni þess
upp á ný, aflað upplýsinga um
breytta gangnatilhögun á helstu
gangnaslóðum og bætt ýmsu efni
við, sem aflast hefur.
Bók þessi er röskar 500 blaðsfður
og í henni um 100 myndir.