Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 36
VISPBSO
36 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
2
5
2
5
Að breyta fjalli: Stefán Jónsson
Bernskuminningar Stefáns Jónssonar
Hlýjar - fyndnar - sárar
I bókinni „Að breyta fjalli" lýsir Stefán því
fólki og umhverfi sem mótaði hann mest í
uppvextinum. Frásögnin er gædd þeirri
ómótstæðilegu hlýju og húmor sem jafnan
einkenna bækur Stefáns en í gegnum allan
gáskann skynja lesendur grimman og kaldan
veruleika kreppunnar, sem mestu réði um
gerðir fólksins á slóðum sögunnar.
Eins og titill bókarinnar ber með sér færð-
ust sumir mikið í fang á þessum erfiðu
tímum. En það er líka hægt að taka hann
bókstaflega því vissulega var gerð merkileg
tilraun til að breyta einu formfegursta fjalli á
fslandi, sjálfum Búlandstindi.
HEIMSPEKl
Samræður um heimspeki:
Brynjólfur Bjarnason, Halldór
Guðjónsson, Páll Skúlason
í Samræðum um heimspeki takast höfund-
arnir á við mörg af brýnustu vandamálum
heimspekinnar á gagnmerkan hátt, ekki
hvað síst fyrir tilstilli samræðuformsins sem
veitir lesandanum óvenju skýra og greinar-
góða mynd af viðfangsefninu.
Listin að selja: Tom Hopkins
Ómissandi handbók fyrir alla þá er vinna við
sölustörf og vilja ná auknum árangri. Höf-
undurinn var um árabil einn af bestu sölu-
mönnum Bandaríkjanna. Bókin hefur fengið
frábærar viðtökur um allan heim.
Sólstafir: Bjarni Guðnason
Sólstafir Bjarna Guðnasonar er stórskemmti-
leg miðaldasaga og snýst um ástir, auð og
völd. Ungur piltur strýkur að heiman til þess
að hefja ævintýralega og hættulega leit að
því sem allir vilja finna - en fáum tekst. Sag-
an gerist á ólgutímum þegar alþýða manna
bjó við ofurvald klerka og annarra valds-
manna. Þetta er fyrsta skáldsaga Bjarna
Guðnasonar prófessors.
Er Andi í glasinu?:
Rúnar Ármann Arthúrsson
Sagan gerist að mestu leyti í Reykjavík, þó
komið sé við á þjóðhátíð í Eyjum og víðar.
Hún fjallar að meginefni um vináttu Grímsa
og Lukku, sem bæði eru 16 ára, og eitt og
annað að auki sem hefur áhrif á hvaða
stefnu líf þeirra tekur. Þetta er spennandi
saga, stundum of spennandi t.d. þegar
Lukku er rænt. . .
Sjálfstætt framhald bókarinnar „Algjörir
byrjendur" sem kom út í fyrra og hlaut mjög
góðar viðtökur.
Útganga um augað læst:
ísak Harðarson
Hér eru á ferðinni nútímaljóð í bestu merk-
ingu þess orðs. Af frumlegri hugsun og Ijóð-
rænum þrótti er ort um manninn og sam-
band hans við veröldina. Þetta er Ijóðabók,
sem allir hafa gaman af. Þetta er
fimmta Ijóðabók ísaks en sú fyrsta Þriggja
orða nafn kom út árið 1982.
Samuel Beckett
- sögur, leikrit, Ijóð.
Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöf-
unda þessarar aldar og hefur ef til vill öðrum
fremur stuðlað að róttækum breytingum á
skáldsagnagerð og leikritun eftir seinni
heimsstyrjöld. Beckett hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels árið 1969. Meðal verkanna í
bókinni er leikritið Beðið eftir Godot, í nýrri
þýðingu, og eitt nýjasta snilldarverkið, hin
stutta og magnaða skáldsaga Félagsskapur
frá 1980. Þýðandinn er Árni Ibsen sem hefur
um árabil kannað verk þessa alvörugefna
írska húmorista og hann skrifar jafnframt
inngang og skýringar. Þetta er í fyrsta skipti
sem verk eftir Samuel Beckett eru gefin út í
íslenskri þýðingu.
Tungumál fuglanna:
„Tómas Davíðsson"
„Tungumál fuglanna" eftir „Tómas Davíðs-
son" er nýstárlegt verk í íslenskum bók-
menntum og mun verkja forvitni og umtal.
Frásögnin minnir óþyrmilega á atburði sem
hafa gerst, en kannski enn frekar á atburði
sem gætu gerst eða gætu verið að gerast.
Bókin verður vafalaust ein sú umdeildasta á
jólabókamarkaðinum í ár.