Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
Markaðssetning í samkeppni við
allt það sem dynur á fólk í nútíma-
þjóðfélagi.
Við höfum þó verið nokkuð
heppin, Stúlkan á bláa hjólinu
og aðrar bækur Régine Deforges
hinnar frönsku hafa notið mikilla
vinsælda. í fyrra kynntum við
spennubókahöfundinn Wilbur
Smith með bókinni Menn með
mönnum, en hans bækur gerast
í Afríku og heitir nýja bókin Engl-
ar gráta. Danska verðlaunarit-
höfundinn Svend Aage Madsen
kynnum við nú í ár með bók sem
hlotið hefur nafnið Dagrenning.
Annars erum við nú með fleiri
bækur en nokkru sinni hin síðari
ár og státum m.a. af því að hafa
komið út öllu Ritsafni Stefáns
Jónssonar, 15 bókum, í tilefni
110 ára afmælis prentsmiðjunnar.
Reyndar er útgáfan 111 ára því
að fyrsta útgáfubók ísafoldar kom
út árið 1876.“
Verslunin
Stella í ísafold má ekkert vera
að því að stansa í jólaönnunum.
Hún hefur verið bóksali í 22 ár
og veit allt um íslenskar bækur,
fáanlegar jafnt sem ófáanlégar.
Bókajólin leggjast vel í Stellu,
sem heitir reyndar Pálína Eg-
gertsdóttir. Hún trúir því að
Islendingar kaupi bækur sem fyrr,
ekki síst átþeim tímum þegar
menn óttast um afdrif móður-
málsins. Það hefur reyndar lengi
verið áhugamál ísafoldarmanna
að hlúa að ástkæra ylhýra málinu
og til er sérstakur sjóður, Móður-
málssjóður, sem kenndur er við
Bjöm Jónsson, stofnanda ísafold-
ar.
ísafold er 110 ára eða 461 árs
og er enn í fuliu fjöri og mun
væntanlega fyigja íslensku þjóð-
inni enn um ókomna tíð.
Húsið, séð frá Austurstræti.
reynum að sinna viðskiptavinum
okkar eftir bestu getu, stefnum
reyndar að því að það verði gæð-
in sein einkenna okkur fyrst og
fremst, en hyggjum ekki á heims-
yfirráð."
Morgunblaðið/RAX
prentsmiðja 110 ára
Gunnar Trausti Guðbjörnsson, prentsmiðjustjóri og Eygló Guðmundsdóttir, útgáfustjóri.
safoldarprentsmiðja hf. er
110 ára á þessu ári, hún
var stofnuð árið 1877. Er
hún þvi elsta prentsmiðja
landsins. Reyndar má telja
prentsmiðjuna enn eldri því
að hún á rætur að rekja til
upphafs prentlistar á íslandi.
Prentsmiðja Jóns Arasonar,
Hólabiskups, sem flutt var
hingað til lands árið 1526,
starfaði óslitið á ýmsum stöð-
um á landinu þar til hún var
sameinuð Hrappseyjarprent-
smiðju, næstelstu prentsmiðju
landsins, árið 1795 og var
síðar kölluð Landsprentsmiðj-
an.
Þá prentsmiðju keypti Bjöm Jóns-
son, stofnandi ísafoldar, árið 1886
og sameinaði sinni prentsmiðju.
Það má því við nokkrum sanni
segja að ísafoldarprentsmiðja sé
461 árs á þessu ári og er því ör-
ugglega með elstu fyrirtækjum í
heimi. Er það vel að íslendingar
geti státað af slfku, sjálf bókaþjóð-
in.
Isafold fyrr og nú
ísafoldarprentsmiðja hefur
ætfð starfað f hjarta Reykjavíkur
og er nú með prentrekstur sinn í
Þingholtsstræti 5, en bókaverslun
í Austurstræti 10. Húsin í Austur-
stræti 8 og 10 reisti Bjöm í ísafold
árið 1886, og hefur ísafold haft
þar starfsemi í einhverri mynd æ
síðan. Fyrirtækið hefur þvf verið
þar með starfsemi á annað hundr-
að ár og er það örugglega eins-
dæmi. Reyndar er ísafold eina
fyrirtækið á íslandi sem bæði
prentar, gefur út og selur bækur.
í þessu gamla húsi hafa marg-
ir þjóðlffsþættir átt upptök sfn,
og er nærtækast að nefna Morg-
unblaðið, sem þar var stofnað
árið 1913 og hafði meira að segja
sama símanúmer og ísafold,
talsfma 48. Fyrsta rafljós sem
kveikt var í Reykjavík logaði í
ísafoldarprentsmiðju í lok sfðustu
aldar.
Nú fyrirhugar ísafold að flytja
starfsemi sína í glæsilega nýbygg-
ingu í Kringiunni í Reykjavík og
opna þar aðra bókaverslun.
Prentsmiðjan
Það er önnur og ný tækni sem
nú er viðhöfð við prentun en á
fyrstu 450 árum prentreksturs á
Islandi. Offsetprentun með ljós-
myndatækni er allsráðandi.
Prentsmiðjustjóri í ísafoldar-
prentsmiðju er Gunnar Trausti
Guðbjömsson. .
„Ég hef verið hér á þriðja ár
og verð að viðurkenna það að ég
hafði ekki trú á að hér væri nokk-
urt líf þegr ég kom inn fyrir dyr
í fyrsta skipti, en það var öðra
nær. Vissulelga hafði verið lægð
í rekstrinum, en nýhafíð var átak
til að snúa dæminu við. Það eiga
víst aliir sína slæmu og góðu tíma.
Hér getum við boðið alla al-
menna prentþjónustu, eram með
nýjar vélar í tölvusetningu og
filmugerð, og sérlega stolt af nýju
litaprentvélinni sem er af full-
komnustu gerð sem vöi er á. Við
Útgáfan
Á sama hátt er nú blásið lífi í
útgáfu ísafoldar. Eygló Guð-
mundsdóttir hefur veg og vanda
af útgáfunni.
„Það er skemmtilegt en mikið
starf að gefa út bók, í ótrúlega
mörg hom að líta. Mikið berst af
hugmyndum sem þarf að lesa sig
í gegnum áður en ákvörðun er
tekin um útgáfu en við vildum
þó gjarnan sjá fleiri íslenska höf-
unda. Þegar um þýddar bók-
menntir er að ræða þarf að finna
góða þýðendur því að við leggjum
Björn Jónsson, stofnandi metnað okkar í vandaðar þýðing-
Isafoldar. ar. Þá er eftir setning, lestur
prófarka, hönnun á útliti og gerð
hlífðarkápu, prentun og loks bók-
band. En aðalatriðið er þó eftir:
Isafoldar-
Hluti af setjarasal (handsetning).
Blýbræðslan.