Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 58
58 e
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
Sverrir Haukur Gunnlaugsson og Guðný taka á mótí íslendingmn
langt að komnum til að hitta iyá þeim forseta íslands. Sigrún Sveins-
son, ræðismaður og Jón sonur hennar höfðu ekið frá Lugano, nær
500 km leið.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson er sendiherra íslands þjá U alþjóðastofnunum i Genf. Hér er sendiher-
rann( lengst til vinstri) ásamt forstöðumönnum þessara stofnana, sem sátu boð hans tO að hitta forseta
íslands. Nsest honum Francis Blanchard, framkvæmdastjóri Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, Halfdan
Mahler, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, Jan Martenson, framkvæmdastjóri
Evrópuskrifstofu Sameinuðu þjóðanna,Per Kleppe, framkvmdastjóri Friverslunarsamtaka Evrópu, For-
seti íslands, Robert Ducret, forseti Genfarkantónu, Arpad Bogsch, framkvæmdastjóri Alþjóðahugverka-
stofnunarinnar, Comelio Sommaruga, forseti Alþjóða Rauða krossins, Gerald Hinteregger framkvæmd-
atjóri Efnahagsnefndar Evrópu. Samtökin sem ekki eiga þarna fuUtrúa eru Flóttamannastofun SÞ,
Alþjóðaveðurfræðistofnunin, Alþjóðafjarskiptasambandið, og tolla og viðslriptasambandið Gatt.
Forseti Islands í
Forseti íslands, Vigdls Finnbogadóttir, sæmir Sigríði Ott hinni íslensku Fálkaorðu á heimili hennar í Sviss.
ótt Vigdís Finnbogadóttir,
forseti tslands, væri ekki
i opinberri heimsókn til
Sviss, þar sem erindi hennar
þangað nýlega var formennska
í dómnefnd um sjónvarpshandrit,
þá fylgdi forsetaheimsókn óhjá-
kvænúlega fleira. Eitt af þvi var
hið ánægjulega framtak sendi-
herra íslands i Genf, Sverris
Hanks flnnnlfliigBflftnar og
Guðnýjar konu hans, sem lögðu
sig fram um að ná tíl allra íslend-
inga sem búsettir eru í Sviss og
buðu þeim ásamt framkvæmda-
stjórum og forsetum alþjóða-
stofnananna eUefu sem hann
hefur á sinni könnu, sendiherr-
um Norðurlanda og Friverslun-
arbandalagsins og aðstandend-
um sjónvarpssamkeppninnar, til
að hitta forseta tslands í sendi-
herrabústaðnum.
Mun það vera f fyrsta skipti sem
íslendingamir koma svona saman,
enda engin skrá til yfir íslendinga
í Sviss. Mættu að mér skilst um
70-80 íslendingar þar búsettir eða
viá nám. óku sumir allt að 500 km
í veisluna frá ítalska Sviss eða efndu
til hópferðar í áætlunarbíl frá hinu
þýskumælandi Zurich. Af máli
manna sem þama hittust mátti
greina furðu á að svo stór hópur
V-Islendinga skyldi reynast starfandi
í þessu landi, auk ánægjunnar með
að hittast og kynnast. Var haft á
orði að stofna þyrfti einhverskonar
íslendingasamtök þótt fólk væri
dreift. Og síðar hafði norskur blaða-
maður þar búsettur á orði að
hugmyndir væm uppi um að stofna
tii félagsskapar Norðurlandabúa í
Sviss og þá gott að vita af svo
mörgum íslendingum. Þannig hátt-
ar í Sviss að íslenski sendiherrann
gagnvart því landi situr í Bonn, en
Sverrir Haukur er sendiherra hjá
öllum alþjóðastofiiunum í Genf, sem
íslendingar eru þáttakendur í.
Annað erindi sem viðkom íslandi
sérstaklega, rækti forseti íslands í
þessari ferð. Lagði leið sína upp í
Alpaijöllin til Leysin til að heiðra
Sigríði Ott með íslensku Fálkaorð-
unni, auk þess sem hún heimsótti
merka staði í Genfarkantónu og
Genfarborg og skoðaði starfsemi
Evrópusamtaka útvarpsstöðva og
svissneska sjónvarpsins. Birtast hér
nokkrar svipmyndir er blaðamaður
Mbl. tók við þau tækifæri.
Sigríður Ott er Vestur-íslensk
kona, sem býr ásamt bandarískum
manni sínum, Fred C.Ott, í Qallabæ
í 1500 metra hæð í Ölpunum.
Óþarfi er að kynna hana í lÖngu
máli, þvf nýlega birtist hér f blaðinu
viðtal við þau hjónin frá fréttaritara
blaðsins í Sviss. Frá Genf er um
hálfs annars tíma akstur til Leysin,
ekið norðan við Genfarvatn og fyrir
endann á því áður en beygt er inn
í einn dalanna svokölluðu sem skera
sig inn í Alpafjöllin að norðan og
síðan snýr vegurinn sig upp snar-
bratta hlíðina upp í þennan dæmi
gerða svissneska íjallabæ. Það var
fagurt þennan dag frá bænum með
gulnuðu laufi á trjánum og snjó á
jörðu og tindum Alpafjalla upp úr
þokunni á dalbotninum. Þama
höfðu Otthjónin sett upp alþjóðleg-
an menntaskóla og alþjóðlegan
gagnfræðaskóla eftir stríð, í göml-
um berklahælum og hótelum fyrir
ættingja berklasjúklinga sem höfðu
misst hlutverk sitt eftir að meðlul
komu og ekki lengur það ráð best
að senda berklasjúklinga á hæli
uppi í Qöllum. Sigríður fyrst rekið
alþjóðlegar sumarbúðir fyrir ungl-
inga meðan maður hennar skipu-
lagði kennslu fyrir böm hermanna
í Evrópu. Skólamir em enn reknir
þama. Þau Sigríður og Fred gerðu
þá að sjálfstæðu sameignarfélagi
og settust í helgan stein í fallega
svissneska húsinu sínu í bænum.
En sonur þeirra er skólastjóri gagn-
fræðaskólans. Þama tóku þau
Eiginmaðurinn Fred C.Ott, börnin og bamabömin umkringja Sigriði Ott er hún hefur
tekið við Fálkaorðunni úr hendi forseta íslands.
Vigdis Finnbogadóttir, forseti íslands, skoðar hið fræga úrasafn i Genf, þar sem safn-
vörður sýnir henni elstu úr í heimi, frá 16. öld.