Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 30
/ 30 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 Mannlíf til sveita að mörgu leyti betra en í þéttbýlinu —^ segir Jóhanna A. Steingrímsdóttir í Árnesi, höfundur Á bökkum Laxár „ÞETTA er engin sveitasaga í eiginlegum skilningi. Þetta eru frásöguþœttir af mannlífi og umhverfi á bökkum Laxár, og ég býst við að þeir endurspegli þá sögu þessarar sveitar sem ég hef kynnzt,“ segir Jóhanna A. Steingrímsdóttir í Árnesi í Að- aldal, höfundur bókar sem út er komin hjá Almenna bókafélaginu og heitir „Á bökkum Laxár.“ Jóhanna er fædd í Nesi og hefur alið allan sinn aldur á bökkum þessa vatnsfalls sem öðrum fremur hefur haft aðdráttarafl fyrir náttúrufegurð og þá ekki síður laxana sem slást um hvern öngul sem þar kemur í hyl. Jóhanna er ekki nýliði á ritvelli. Veröldin er alltaf ný og Dagur í lífi drengs heita bamabækur henn- ar sem út komu fyrir nokkrum ámm, auk þess sem hún hefur sam- ið bamasögur sem lesnar hafa verið í útvarp. „Tveggja manna tal“ er undirtit- ill Á bökkum Laxár. „Ég hugsa mér að þú sért ferðalangur og ég hafi verið svo heppin að mæta þér á fömum vegi,“ em upphafsorð frá- sagnarinnar. Ég bið þig að slást í för með mér, eg skal sýna þér staði sem mér þykja fallegir, og eg hefði gaman af að segja þér frá einu og öðm sem eg hefi heyrt og séð.“ Þannig nálgast Jóhanna lesanda sinn og leiðir hann síðan um átthag- ann, bendir honum á staði og ömefni og segir af þeim munn- mælasögur, unz hún kveður hann í bókarlok. „Ég held að af heimamönnum séu fáir sem ekki hafa einhvemtíma rennt fyrir lax og konur í Aðaldal gera það ekkert síður en karlar. En þessi bók er lítil kynning á ánni nema hvað náttúmfegurðinni viðvíkur," segir Jóhanna í samtali við Morgunblaðið. „Bókin er skrifuð í framhaldi af þáttum sem ég flutti í útvarp fyrir nokkmm ámm og gmndvallast að nokkm leyti á efni þeirra." Morgunblaðið/Börkur — „Þú segir frá mannlífinu og ýmsu nafnkunnu fólki, þar á meðal Lissý á Halldórsstöðum. Af hverju skyldi þessi kona, sem fluttist hing- að frá Skotlandi fyrir aldamót, hafa orðið hálfgerð ævintýrapersóna, fremur en aðrar erlendar konur sem hingað giftust? „Ég held að þar hafi fleira en eitt komið til. Lissý var framandi. Hún var öðmvísi en aðrar konur. Á meðan þær skutust eins og skugg- ar, dökkklæddar og síðklæddar, í dimmum göngunum, sveif hún um ljóslædd og minnti á álfkonu. Hún hafði líka afar fagra söngrödd, en ég held þó að það hafi ekki sízt verið ljúflyndi hennar og viðhorfið til þeirrar stéttar sem hún var að tengjast sem sveipaði hana þessum ævintýraljóma. Hún lagði kapp á að nálgast fólkið og ganga í sömu verk og það, og þetta tókst henni sannarlega. Hún setti stolt sitt í að verða íslenzk húsmóðir. Ásamt manni sínum, Páli Þórarinssyni, setti hún eftir því sem ég bezt veit á stofn fyrsta veiðiheimili á íslandi og þangað komu forríkir verk- smiðjueigendur og aðalsmenn frá Englandi og Skotlandi. Á ungl- ingsámm sínum hafði hún dvalizt í kastala í heimalandi sínu og að- stoðað við að matreiða ofan í aðalsfólkið, og nú kom sú reynsla henni að góðu gagni. Allur að- búnaður var með afbrigðum fágaður enda þótt skilyrði væm að mörgu leyti frumstæð. En þrátt fyrir mikil umsvif hafði hún alltaf tíma til að gleðja aðra með söng sínum og röddin sem hefði getað greitt þessari konu leið inn í glæst- ar ópemhallir heimsmenningarinn- ar hljómaði hrein og tær í afskekktum dal á íslandi." — „Það mannlíf sem þú lýsir er á margan hátt frábmgðið því sem nú gerist, ekki sízt borgarlífinu. „Já, og nú er líf sveitakonunnar þó orðið mun líkara því sem er í þéttbýli en áður. var. En ég held samt að mannlíf til sveita sé að mörgu leyti betra en í þéttbýlinu, ekki sízt af því að í sveitinni er gott að ala upp böm. Við losnum við stofnanauppeldi sem ég held að sé ekki ákjósanlegt. í sveitinni verða bömin strax þátttakendur í störfum fullorðna fólksins og eign- j ast þannig eðlilega hlutdeild í því lífi sem lifað er.“ — „Hvenær fórstu að sinna rit- störfiim? „Ég bytjaði að skrifa þegar ég fór að hafa tíma til þess, — þegar bömin vom komin upp. Ég hef ánægju af því að skrifa, reyndar hef ég mest gaman af því að skrifa fyrir böm.“ — „Heldurðu að þú kysir þér annan starfsvettvang en raun varð á ef þú stæðir frammi fyrir því að velja þér starf nú? „Það efast ég um. Sveitabúskap- ur gefur manni svo mikið, og þá á ég ekki við peninga. í fámenni verða persónuleg tengsl nánari og í sveit- inni öðlast maður samband við sjálft lífíð og umhverfí sitt.“ Viðtal: Áslaug Ragnars Bjartmar á jólavísna- kvöldi Tónlistarfélagið Vísnavinir heldur visnakvöld á Hótel Borg nk. mánudag kl. 20.30. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og ber fyrst að nefna Bjartmar Guðlaugsson, sem fyrir skömmu sendi frá sér nýja hljómplötu, „í fylgd með fullorðnum", og á miklum vinsældum að fagna um þessar mundir. Tindur Hafsteinsson, nem- andi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, sem bar sigur úr býtum í Söngvakeppni Vísnavina sl. vor, kemur einnig fram og ljóðskáldið Berglind Gunnarsson les úr ljóðum sínum. Nokkrir jólasöngvarar munu auk þess flytja ný jólalög af hljóm- plötunni Jólastund. (Fréttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.