Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 C 59 islenski þjóðsöngurinn sunginn. íslenskir nemendur í hótel og ferða- mannaskólanum í Leyden umkringja Fred C. Ott við hljóðfærið og taka vel undir. hjónin á móti forseta íslands og fylgdarfólki hennar. Öll fjölskyldan saman komin í tilefni dagsins, son- urinn Kristinn Steven og kona hans, dóttirin Aldís og eiginmaður henn- ar, sem er flugmaður í Þýskalandi og bamabömin sex. Sú staðreynd að bömin heita íslenskum nöfnum segir kannski meiri sögu um íslandstengsli þess- arar konu, sem fædd er í íslend- ingabyggðum í Dakota í Banda- ríkjunum og manns hennar, sem les íslendingasögumar og hefur'ekki síður taugar til lands forfeðra konu sinnar en hún. Þrátt fyrir annríkið og matarveislu fyrir gestina segir Sigríður mér af ættingjum sínum á íslandi, en hún er komin af íslandi í annan og þriðja lið og hún skýst með mér upp á loft og sýnir mér íslensku bækumar sem Björg amma hennar gaf henni þegar hún var heima í Dakota, Eyrbyggju út- gefna í Leipzig 1864, Lestrarbók fyrir alþýðu á Islandi frá 1874 eft- ir Þórarinn Böðvarsson, Hina grísku og rómversku goðafræði, samritaða af Matthiasi Bast, kennd- an við Herlifshals, handskrifað og afritað á íslensku 1833 og aftan við skrif um alla þekkta íslenska bragarhætti, samið 1802. Það er merkilegt að standa með þessar gömlu íslensku bækur í höndunum í fjallahúsi í Ölpunum. Og Sigríður talar íslensku, alin upp í Banda- ríkjunum og í enskumælandi skólum. Og hún segir heim um ís- land. Frá því hún frétti fyrst af íslendingum í Zurich hefur hún haft samband við þá sem hún hefur náð í og verið mörgum ómetanleg hjálparhella og veitt þeim af rausn. Nú er henni þakkað. Forseti ís- lands, Vigdís Finnbogdóttir, segir í ávarpi sínu að á íslandi höfum við fá tækifæri til að þakka þeim sem erlendis veita okkur liðsinni, en einn fallegan þakkarvott eigum við þó, íslensku Fálkaorðuna, og um leið og hún þakkar Sigríði Ott fyrir hönd íslands afhendir hún henni orðuna. Sigríður talar á hreinni íslensku og kveðst orðlaus yfir slíkum heiðri. Fred Ott sest við flygilinn og leikur íslenska þjóð- sönginn og viðstaddir taka undir. Þeir eru merkilega margir. Auk o kkar aðkomnu gestanna eru þar 16 íslenskir námsmenn sem eru við nám í hótel og ferðamannaskólan- um í Leysin, sem þau Otthjónin voru með í að stofna á sínum tíma. Þau hafa engin afskipti af honum, en íslensku ungmennin sem þar nema eiga hjá þeim athvarf. Þetta var því hátíðleg stund. A leið til baka heimsótti forseti íslands Chillonkastala, einn elsta kastala í Evrópu. Elsti hlutinn byggður af Savoygreifum um 1150. Þessi glæsilegi kastali stendur út í Genfarvatn við bæinn Montreaux. Er kastalinn rammgerður og fagur. Sannarlega væri þess virði fyrir íslenskt skíðafólk, sem árlega ekur þama framhjá á leið í skíðalöndin í Ölpunum að skoða kastalann, þar sem krakkar geta í raun séð það sem þau halda að séu bara tilbúin æfíntýri á skjánum. Þar tóku framámenn í Vaudkantónu á móti forseta íslands, og m.a. skálað í hátíðasal þessa 10 alda gamla kast- ala í fágætu eigin hvítvíni kastal- ans. En í framhaldi af því var haldið til eins vínframleiðanda héraðsins, Claude Masseys, og smakkað á nýja rauðvíninu og hvítvíninu úr uppskeru þessa árs í vinkjallara hans i Epeises. Myndir og texti: Elín Pálmadóttir Chillon kastaði stendur út i Genfarvatn nálægt Montreau og er einn fegursti og elsti kastali í Evrópu. Forseti íslands heimsótti þennan 10 alda gamla kastala og þar tóku framámenn Vaudkantónu á móti henni. Þú færð jólagjöf íþrótta- mannsins í Spörtu Frábært úrval af fatnaði fyrir eróbikk, jassballett og fim- leika. Bolir, buxur, belti, samfestingar o.fl. Matinbleu barnagallar 3 týpur. Verð frá kr. 3.890,- . Adidas Challenger Litir: Grátt/svart, rautt/blátt, svart, Ijósblátt, grátt/dökk- blátt, Hvítt/ljósblátt, dökk- blátt. Nr. 138-198 kr. 6.290,- Matinbleu gallarnir Loksins fáanlegir aftur í mörgum tegundum. Margir litir. Verð frá kr. 4.885,- Adidas Liverpool Dökkblár m/ljósbláum rönd- um. Nr. 12-8-176 og 3-9. Rautt . 128,152,164, 176. 128-176, verðkr. 2.925,- 3-9, verð kr. 2.995,- Adidas Victory Glansgalli. Nr. 140-176 og 46-54. Dökk- blátt og rautt m/dökkbláum buxum. Kr.3.518,- Búningasett frá Adidas. Manchester United. 3 litir. Liverpool, heima, úti og vara- búningar. Arsenal, Luton, West Ham sett kr. 1.940,- Treyja kr. 1.130,- Póstsendum samdaegurs SPORTVÖRUVERSLUNIN wmm LAUGAVEGI 49 SIMI 12024 Adidas Alberta Regngallar. 100%regnheltefni. Dökkblátt, svart, rautt, Ijósblátt StærðirXS-XXL Verð kr. 3.596,- Panda dúnúlpur Litir: Dökkblátt, turkish, milli- blátt. Nr. 140-152-164 kr. 5.590,- Nr.S-M-L-XL-XXL kr. 5.990,- Adidas Laser Kominn aftur í nýjum litum. Nr. 150 til 198 kr. 6.950,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.