Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
BLAÐ
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
Ingibjörg Hrefna með með rústir Inkaborgarinnar Machu Picchu í baksýn
TILM&FS VIÐINDÍÁNA
VIÐ AMASONFUÓT
Rætt við Ingibjörgu Hrefnu Sverrisdóttur sem nýlega er komin frá Perú ásamt fimm samfylgdarmönnum sínum
Það er ekki allir á íslandi sem
vita hvar Perú er hvað þá að
menn láti sér almennt til hugar
koma að ferðast þangað. Það gera
aðeins þeir sem líta til fjarlægra
landa þeim augum sem við hin
lítum t.d. á Borgarfjörð og
Akureyri. Þeir sem þannig eru í
sveit settir eru m.a. starfsmenn
flugfélaga og ferðaskrifstofa. í
þeim hópi er Ingibjörg Hrefna
Sverrisdóttir sölustjóri hjá
Ferðaskrifstofunni Úrvali við
Austurvöll, sem um árabil hefur
starfað í „ferðabransanum", eins
og það er kallað á vondu máli.
Nýlega fór Ingibjörg til Perú
ásamt fímm samfylgdarmönnum,
þeim Bryndísi ívarsdóttur
starfsmanni hjá Úrval, Sigurlfnu
Guðnadóttur, Maríu Eyþórsdóttur
og Láru Ingólfsdóttur, sem allar
starfa hjá Flugleiðum og Páli
Ásgeirssyni geðlækni eiginmanni
Láru, sem sagt „fímm
„fararstjórar" og einn geðlæknir"
eins og haft var við orð í hópi
Perúfaranna.
Perú, land Inkanna,
er þriðja stærsta
land í Suður-
Ameríku, meira en
tvisvar sinnum
stærra en Frakk-
iand. Perú mjög
hálent, enda liggur
Andesflallgarðurinn eftir því endi-
löngu. Rúmlega helmingur landsins
er þakinn frumskógi en í honum
býr aðeins lítill hluti af þeim 18 til
20 milljónum manna sem byggja
Perú. Áðal tungumál landsmanna
er spænska en nokkur Indfánamál
eru einnig töluð, aðallega quechua
sem var mál Inkaveldisins. í Perú
eru miklar kopamámur og olíu-
vinnsla er þar töluverð. Þetta
tvennt ásamt fiskveiðum myndar
undirstöðuna undir efnahag lands-
ins.
Ingibjörg og félagar hennar
lögðu af stað til Perú að kvöldi 18.
Október. Fyrst var leiðinni heitið
til Miami og þaðan átti að fljúga
til Lima, höfuðborgar Perú þann
20. október.
„Ég fór þessa ferð eingöngu
vegna áhuga á Perú en ekki vegna
starfs míns“, sagði Ingibjörg Sverr-
isdóttir í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. „Landið er frægt
fyrir sínar fomu minjar um veldi
Inkanna og það kynti undir æfin-
týraþránni og löngun minni til þess
að kynna mér mannlífíð í þessu fjar-
læga landi. Ferðin byijaði raunar
ekki vel. Þegar við mættum á flug-
völlinn á Miami mjög tfmanlega
kom í ljós að við höfðum fengið
rangar upplýsingar frá sendiráði
Perú í Stokkhólmi og fslenska ut-
anríkisráðuneytinu sem höfðu
fullyrt að íslendingar þyrftu ekki
vegabréfsáritun til Perú. Það fór
allt á annan endann, símhringingar
og skeytasendingar gengu á vfxl
milli Líma og Miami en við áttum
ekki um neitt að velja, við urðum
að verða okkur úti um vegabréfsá-
ritun. Af þessum sökum tafðist
ferðin um einn dag. Þetta varð til
þess að við sáum aldrei Lima að
degi til og skipulagningin ríðlaðist
aðeins.
Sjá einnig bls. 14c