Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 C 21 FORLAGIÐ KYNNIR Svava Jakobsdóttir GUNNLAÐAR SAGA Patrick Súskind Nína Björk Ámadóttir ILMURINN Saga af morðingja MÓÐIR KONA MEYJA íslensk stúlka er handtekin í Þjóðminjasafni Dana þar sem hún stendur við brotinn sýning- arglugga með forsögulegt gullker í höndunum. Móðir stúlkunnar fer til Kaupmannahafnar og skýringar dótturinnar á verknaðinum hrinda af stað óvæntri atburðarás svo að dvöl móðurinnar verður önnur en hún hugði. Af einstöku listfengi dregur Svava Jakobsdóttir upp magnaða samtímalýsingu sem er í senn saga um ást, svik, trúnað, sekt og sakleysi. Gunnlaðar saga er ótvíræður bókmennta- viðburður. Sagan af Jean-Baptiste Grenouille, eins af snjöllustu og andstyggilegustu mönnum sög- unnar. Hann er snillingur í ilmvatnsgerðarhst, en útskúfaður úr mannlegu samfélagi og ein- setur sér að skapa þann ilm sem vekur ást og hylli. En til þess þarf hann að myrða. Ilmurinn vakti heimsathygli þegar hún kom út á þýsku enda eitt sérstæðasta og stórbrotnasta bókmenntaverk seinni tíma. Ilmurinn er mögnuð spennusaga og situr á metsölulistum um allan heim. Kristján Árnason þýddi. Sveitastúlka, sem eignast hefur barn í lausaleik, ræðst í vist til ríkmannshjóna í Reykjavík. Árið í húsinu er tími mikilla atburða og skiptir sköpum í lífi hennar. Hér mætast tveir heimar: Annars vegar heimur glæsileika, auðs og menntunar - hins vegar heimur örbirgðar, niðurlægingar og ráðleysis - trylltur og ástríðufullur í senn. Frásögnin er spennandi, hún einkennist af heitum erótískum lýsingum og er gædd þeim Ijóðrænu töfrum sem Nína Björk hefur flestum skáldum betur á valdi sínu. Aíercé Rodoreda DEMANTSTORGIÐ Saga Spánverja á tímum borgarastyrjald- arinnar þegar frelsisvonir urðu að engu og þjóðin horfði á eftir mannréttindum sínum í klær fasismans. Á ógleymanlegan hátt segir skáldkonan þessa sögu frá sjónarhóli konu - fulltrúa þeirrar orðlausu alþýðu sem sjaldnast er til frásagnar um þjáningima. Demantstorgið er eitt af sígildum meistaraverkum spænskra bókmennta Guðbergur Bergsson þýddi. HEIMSBÓKMENNTIR Á ÍSLENSKU William Heinesen TÖFRALAMPINN Nýjasta bók sagnameistarans í Þórs- höfn hefur að geyma tíu sjálfstæðar frásagnir sem þó eru margvíslega tengdar. Langar og sterkar hroll- vekjur skiptast á við örstutta gam- ansamari kafla. í þessari bók fetar Heinesen ótroðnar slóðir og bætir enn nýjum streng í frásagnarleikni sína. Þorgeir Þorgeirsson þýddi. Ías« OSHBW PíRWBÆR' ^GBAU-m BARNABÆKUR FORLAGSINS Anne Civardi - Stephen Cartwright VIÐ SEM VINNUM VERKIN Hvað hefur fólk fyrir stafni á daginn? Flestir fara í vinnuna. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? tffliáíiBAyP Pt IfcAW FORLAGIÐ FRAKKASTlG 6A, S. 91-25188 Charles Dickens JÓLADRAUMUR Fáar sögur hafa notið slíkra vinsælda sem þetta sígilda jólaævintýri. Sagan segir frá nirflinum Scrooge sem hatast við jólin og boðskap þeirra. En hann á sögulega jólanótt í vændum. Þetta er ný útgáfa bókarinnar sem kom út um síðustu íqL Fjöl.cji mynda. Sigrún Eldjám KUGGUR OG FLEIRI FYRIRBÆ.RI Hér segir frá Kuggi og kostu- legum vinum hans: Málfríði og mömmu hennar - skrýtnum kerlingum sem kalla ekki allt ömmu sína. Geirólfi á Grísatá að ógleymdum Mosa - glaðlyndu og hrekkjóttu kríli sem býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Meira en . 90. Uíwyodic pfúr. höfundipn..... Roger Leloup YOKO TSUNO- VÍTISELDUR Þriðja teiknimyndasagan um Yoko og vini hennar. Þau eiga í höggi við harðsvíraða glæpa- menn sem engu þyrma. Uppi eru áætlanir um tortímingarvopn og allt mannkyn er í hættu. Villi og Palli bregðast Yoko ekki og þau tefla djarft til sigurs. :;1§ á •: S Sven Nordkvist JÓLAGRAUTURINN Búálfarnir sinna því sem mann- fólkið kemur ekki í verk eða gleymir að gera. Ef fólkið gleymir að fara út með grautar- skál handa búálfunum á aðfanga- dagskvöld, þá boðar það óham- ingju. Þessi jól hafði grauturinn næstum gleymst. Heillandi saga, prýdd fjölda litmynda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.