Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 2

Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 Fyrstu íslensku skinnin á uppboði í Kaupmannahöfn: 20% verðlækk- un á loðskimmm UM 20% verðlækkun varð á fyrsta loðskinnauppboði sölutímabilsins í danska uppboðshúsinu í Glostrup sem lauk um helgina. Búist hafði verið við lækkun minkaskinna og silfur- og bláfrostrefaskinna, en hækkun á blá- og skuggarefaskinnum. Niðurstaðan varð 20% lækk- nn á öllum skinnategundum og enn meiri hækkun á silfurrefaskinn- um. Nokkur hundruð íslensk skinn voru boðin upp. Jón Ragnar Bjömsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra loðdýraræktenda, sagðist ekki hafa Hreyfilbilun í áætlunarflugi Ísafirði. í GÆRMORGUN bilaði hreyfill í áætlunarflugvél Flugfélagsins Ernis á ísafirði skömmu eftir flugtak frá ísafjarðarflugvelli. Vélin var á leið til Bíldudals, Patreksfjarðar og Þingeyrar með sex farþega. Þegar komið var í farflugshæð yfír Tungudal í Skutulsfirði varð flugmaðurinn var við bilunina. Hann drap þegar á hreyflinum og sneri við til Isafjarðar þar sem hann lenti sjö mínútum eftir flugtak án nokkurra frekari vandræða. - Úlfar fengið niðurstöður sölu íslensku skinnanna en almennt um uppboðið sagði hann: „Þessi 20% verðlækkun er í samræmi við lækkun dollarans gagnvart dönsku krónunni frá því í desember í fyrra. Minkabændur eiga að geta lifað af því verði sem fékkst fyrir minkaskinnin. En ef þetta verður niðurstaðan varðandi refínn verða refabúin rekin með halla þriðja árið í röð. Ég vil þó ekki dæma þetta of hart núna, þetta er fyrsta uppboðið og rétt að sjá hver verður niðurstaðan í febrúar þegar aðaluppboðið verður." Meðalverð á helstu tegundum voru þessi: Blárefur 1.810 kr. og 76% framboðinna skinna seld. Skuggarefur 1.950 kr., 50% sala. Silfurrefur 5.105 kr., 72% sala. Bláfrostrefur 2.905 kr. og 23% skinna seld. Pastelminkur, högni, 1.325 kr. og 83% framboðinna skinna seld. Brúnminkur, högni, 1.445 kr., 96% sala. Brúnminkur, villtur, 1.565 kr., 88% sala og svartminkur, högni, 1.485 kr. og 99% framboðinna skinna seld. Morgunblaðið/Júlíus Skrifstofa í húsi að Grensásvegi 8 skemmdist nokkuð í eldi á sunnudagsmorgun. Skrifstofa skemmdist í eldi ELDUR kom upp í verslunar- og skrifstofuhúsnæði að Grens- ásvegi 8 á sunnudagsmorgun. Töluverðar skemmdir urðu af eldi og reyk, en enginn var í þeim hluta hússins þar sem eld urinn kom upp. Slökkviliðinu barst tilkynning um eldinn kl. 9.47 um morguninn. Starfsmaður eins fyrirtækjanna í húsinu hafði þá orðið var við að mikinn reyk lagði frá skrifstofu heildverslunar á efstu hæð húss- ins. Þegar slökkviliðið kom á vettvang voru §órir reykkafarar sendir inn og körfubíll lyfti slökkviliðsmönnum upp á svalir hússins. Þaðan brutust þeir inn á skrifstofuna. Fljótlega kom í ljós að enginn var þar inni. Slökkvistarfíð gekk greiðlega og var lokið eftir klukkustund. Eldurinn hafði greinilega kraum- að nokkuð lengi og var innra gler í tvöföldum rúðum sprungið vegna hitans. Auknar fjárveitingar til Reykvíkinga: Vill fresta tilfærslu tónlistar- kennslu ALEXANDER Stefánsson, þing- maður Framsóknarflokksins og formaður félagsmálanefndar neðri deildar Alþingis, mun leggja til í félagsmálanefnd að fresta framkvæmd ákvæðis í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um verkefni ríkis og sveitarfélaga er gerir ráð fyrir tilfærslu tón- listarkennslu. Alexander lét þessi ummæli falla í annarri umræðu um fjárlagafrum- varpið í sameinuðu þingi í gær, þar sem hann gerði að sérstöku um- fjöllunarefni verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Hann minnti jafn- framt á að sveitarfélögin hefðu rekið tónlistarskólana, en ríkið styrkt starfsemina með því að greiða hluta launa- og stofnkostn- aðar. Á fundi sameinaðs þings sagðist Friðjón Þórðarson þingmaður Sjálf- stæðisflokksins taka undir þá gagnrýni sem komið hefði fram á þessa tilfærslu og Eggert Haukdal þingmaður sama flokks sagðist fagna því ef fresta ætti tilfærslunni. Sammngur um uppbygg- ingu heilsugæslustöðva Á FUNDI þingmanna Reykjavíkur og Davíðs Oddsson borgar- stjóra í síðustu viku var rædd fjárveiting ríkisins til Reykjavíkurborgar á næsta ári, en þingmennirnir eru sam- mála um að hlutur borgarinnar sé þar fyrir borð borinn. Samkomulag hefur síðan náðst um samning um ákveðna fjár- veitingu til heilsugæslustöðva í Reykjavík á næstu árum. Að sögn Friðriks Sophussonar, iðnaðarráðherra og 1. þingmanns Reykvíkinga, var rætt um fram- lag ríkisins til framkvæmda í skólum, sjúkrahúsum og heilsu- Amf etamínfram- leiðsla: Tveir í tíu dagagæslu MENNIRNIR tveir, sem voru handteknir fyrir helgi vegna framleiðslu á amfetamíni, hafa báðir verið úrskurðaðir í 10 daga gæsluvarðhald. Starfsmenn Rannsóknastofn- unar Háskóla íslands vinna nú að þvi að greina efnin sem fundust í íbúð annars manns- ins. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu á sunnudag var rúmlega þrítugur maður hand- tekinn í íbúð sinni í vesturhluta Reykjavíkur aðfaranótt föstu- dagsins. í íbúð hans fundust efni til framleiðsiu amfetamíns, fullunnið efiii og tæki til fram- leiðslunnar. Á föstudag var jafnaldri mannsins handtekinn, grunaður um aðild að málinu. Fleiri hafa verið yfirheyrðir vegna málsins. Þetta er í fyrsta sinn sem kemst upp um fram- leiðslu amfetamíns hér á landi. gæslustöðvum. „Kom í ljós að hlutur Reykjavíkur í þessum málaflokkum er ákaflega lítill og augljóst að ríkið mun safna enn frekari skuldum við Reylcjavíkur- borg á næsta ári,“ sagði Friðrik. „Ein skýring er sú að Reykjavík hefur ekki mann í fjárveitinga- nefnd og er greinilegt að við höfum ekki fengið ijárveitingar eins og efni standa til. Mér var síðan falið að ræða við íjármála- ráðherra, sem einnig er þingmað- ur Reykvíkinga en gat ekki setið fundinn, og við náðum samkomu- lagi um að gerður verður sérstak- ur samningur á næsta ári við Reykjavíkurborg um uppbygg- ingu heilsugæslustöðva á næstu árum og fjármögnun þeirra af hálfu ríkisins." { lögum um uppbyggingu heilsugæslustöðva var gert ráð fyrir að landsbyggðin hefði for- gang um fjárveitingu til þeirra en því lagaákvæði hefur verið breytt og þar með Ijóst að ríkinu ber að leggja fé til heilsugæslu- stöðva í Reykjavík sem og annars staðar á landinu. Sagði Friðrik að í framhaldi af því hafí þótt eðlilegt að gerður yrði sérstakur samningur við Reykjavíkurborg á næsta ári enda hafi Reykjavík nokkra sérstöðu vegna fólks- ijölda. Frá árinu 1981 hefur Reykvíkingum fjölgað um 12 þús- und en það er sami ijöldi og býr á Akureyri. Spurningar og svör um staðgreiðslu STAÐGREIÐSLA skatta hefst 1. janúar næstkomandi og um þessar mundir hafa flestir landsmenn fengið skattkort sín. Þótt stað- greiðslukerfið sé í sjálfu sér einfalt munu vafalaust vakna spurningar hjá fólki um ýmis atriði. Morgunblaðið hefur því ákveðið að veita lesendum þá þjónustu að koma spumingum þeirra um staðgreiðslukerfíð á framfæri við embætti ríkis- skattstjóra. Spumingar lesenda og svör ríkisskattstjóraembætt- isins munu birtast fljótlega í blaðinu. Lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins 691100 kl. 10-12 árdegis mánudaga til föstudaga og borið fram spum- ingar sínar. Sérstakar verðkannanir Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir því að Verðlagsstofnun geri sérstakar verðkannanir í tengsl- um við breytingar á tollum, vörugjaldi og söluskatti um ára- mótin, og verði niðurstöðum komið jafnharðan á framfæri opinberlega. í bréfí Jóns Sigurðssonar til verð- lagsstjóra er óskað eftir því að Verðlagsstofnun kynni fyrirhugaðar verðkannanir rækilega. í bréfínu kemur fram að mjög mikilvægt sé að Iækkanir á opinberum gjöldum skili sér í verðlagi og að þess verði gætt að hækkun verðs af þessum völdum fari hvergi fram úr því sem tilefni gefst til. Efnahagshorfur hafa breyst verulega til hins verra Efnahagshorfur hafa breyst verulega til hins verra frá þvi síðasta þjóðhagsspá var gerð i október, og samkvæmt upplýsingum frá Þjóð- hagsstofnun eru horfur á að viðskiptahallinn í ár verði 1,4 milljarði meiri en áður var reiknað með, bæði vegna versnandi viðskiptakjara og aukins innflutnings. Að óbreyttum forsendum er útlit fyrir mun meiri viðskiptahalla á næsta ári en þá 4,5 milljarða sem reiknað var með í þjóðhagsspá í október. Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra segir að enn nauðsynlegra sé nú en áður að ganga þannig frá rikis- fjármálum að fjárlög verði ekki afgreidd með halla svo ríkisjóður bæti ekki við erlendu lánin og auki þannig svigrúm fyrir aðra. Friðrik Sophusson sagði við í víðtækustu merkingu, sem fyrir- Morgunblaðið að þótt þessar upp- lýsingar Þjóðhagsstofnunar væru aðeins lauslegar áætlanir yrði að taka tillit til þessara breyttu að- stæðna við þær efnahagsaðgerðir, sjáanlegar væru, bæði af hálfu stjómvalda, og aðila vinnumarkað- arins. Friðrik sagði að undanfarið hefðu ýmsar raddir verið uppi um nauðsyn gengisfellingar. Það lægi í augum uppi að ef gengi bandaríkjadollars styrkist ekki yrði að kanna hvort stætt sé á að halda gengi krónunn- ar óbreyttu. En ef til kæmi væri ekki nóg að fella gengið heldur yrðu að fylgja aðrar ráðstafanir sem gerðu það að verkum að áhrif geng- isfellingar yrðu ekki að engu og innlendu kostnaðarliðimir hækkuðu ekki jafnóðum. Aðallega yrði að tryggja að atvinnugreinamar á inn- anlandsmarkaði kasti ekki rekstxar- hækkunum beint úr í verðlagið aftur og þar væru launin langsam- lega stærsti liðurinn. „Það er tilgangslaust fyrir sku uga þjóð að fella gengið ef áh gengisfellingarinnar koma str fram í aukinni þenslu og allir æ' að halda sínu. Annars stæðum 1 á sama stað og fyrir gengisfellin að öðru leyti en því að verðbólg hefur magnast. Þetta þýðir að þ er tilgangslítið að hreyfa genj meðan mikil þensla er í þjóðfélagi og kannski verður að láta bet reyna á efnahagslífið áður en me fara að hugsa til slíkra breyting: sagði Friðrik Sophusson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.