Morgunblaðið - 15.12.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
9
SÖLUBÖRN ÓSKAST UM
I Aiun Al I Tl
jólalímmiðar
til styrktar góðu málefni
Upplýsingar
í sima 25880
milli kl. 13.00-17.00
virka daga.
Samtök psoriasis og exemsjúklinga
Baldursgata 12,101 Reykjavik. Sími 25880
Glæsileg jólaföt
Dökk, röndótt, tvíhneppt föt.
Vönduð efni, terylene/ull.
Frábær tískusnið.
Verðaðeins kr. 8900,00.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
SPRAUTUKLEFI
í stöÖluÖum einingum
Við höfum hafið framleiðslu á sprautu-
klefum fyrir bílamálun. Klefarnir eru
framleiddir í einingum og geta þannig
verið af breytilegum stærðum, allt eftir
óskum kaupenda. Klefarnir eru búnir
kröftugu útsogi fyrir sprautuvinnu og
hitunarmöguleikum til bökunar. Tæki
eru útbúin sjálfvirkum stjórnbúnaði.
BUKKVER
Skeljabrekka 4, 200 Kópavogur. Sími 44100
Að skynja
ekkikall
tímans
Alþýðublaðið kynnir
Þröst Ólafsson með þeim
orðum, að fáir teygi
„anga sina eins viða um
samfélagið og hann“.
Hann sitji í stjóm KRON,
Máls og menningar,
Granda hf. og Seðla-
banka íslands, auk þess
í miðstjóm Alþýðubanda-
lagsins og sinni dagleg-
um störfum í innsta
hring verkalýðshreyfing-
arinnar sem fram-
kvæmdastjóri Dagsbrún-
ar. Og blaðið spyr:
„Hvaða geirar samfé-
lagsins em utan við
athafnasvið Þrastar?"
Svar- Alþýðublaðsins er
þetta: „Hann er ekki
prestur og ekki ráðherra
— ekki ennþá." I samtal-
inu, sem þessari kynn-
ingu fylgir, er Þröstur
meðal annars spurður
um það, hvaða fomeskju
Alþýðubandalagið
dragnist með, og hann
svarar:
„Við höfum ekki skynj-
að kall timans um stjóm-
un efnahagsmála, taka á
verðbólgunni, þegar við
vorum í stjóm, og taka
þátt í þeim breytingum,
sem gengu yfir — en
standa ekki bara á
bremsunni. Við stóðum á
bremsunni og sáum
tímaim líða hjá.“
Alþýðublaðið spyr:
Attuð þið að viðurkenna
frjálsa _ markaðinn?
Þröstur Ólafsson svarar:
„Við áttum að viður-
kenna breytingamar,
sem áttu sér stað í hinum
vestræna heimi. Það hef-
ur verið endurvakning
gildismats eftir 1970. Þá
uppgötvuðum við ákveð-
in viðbrögð við viðreisn-
arstjóminni, stjóm sem
hafði verið að opna
landið efnáhagslega. Við
vorum vön allt annars
konar forsjárkerfi.
Þjóðin verður óviss í
sinni sök. Þama koma
stúdentaóeirðir, forseta-
kosningar 1968 og
kosningar 1971. Þetta
em viðbrögð, sem þjóðin
gengur í gegnum.
ÚRELT
FORSKRIFTi
Að ná samtímanum
í öllum löndum hafa vinstrisinnar verið
önnum kafnir við að endurskoða stefnu
sína í Ijósi þeirra sanninda, sem þeim
hefðu átt að vera Ijós fyrir löngu, að
miðstýring og forsjárhyggja eru ekki
bestu leiðarljósin, vilji menn stuðla að
gróskumiklu þjóðlífi. Eftir að Margaret
Thatcher vann sigur í þriðja sinn yfir
Verkamannaflokknum í Bretlandi, hafa
ráðamenn þess flokks gert enn eina til-
raunina til að þvo af sér vinstri stimpilinn.
Þeir eru ekki aðeins að laga sig að nýjum
sjónarmiðum við hagstjórn heldur að feta
sig frá ábyrgðarlausri stefnu í öryggis-
og varnarmálum. Hér á landi verður hins
sama vart innan Alþýðubandalagsins, rit-
stjóri Þjóðviljans ræddi á dögunum um
einkarekstur á barnaheimilum. í Alþýðu-
blaðinu um helgina er rætt við Þröst
Ólafsson, framkvæmdastjóra Dagsbrún-
ar, um þessi mái. Vitnað er til þess í
Staksteinum í dag.
Við lendum 1971 í fyr-
irgreiðsluhyggju á aiman
hátt en i viðreisn. Við-
reisnarþróunin var
stöðvuð í stað þess að
opna hagkerfið meira en
búið var, sem ég tel
reyndar að við höfum
ekki getað. Ekki vegna
þess að við værum ekki
nógu þroskuð til að taka
við því, heldur vegna
þess að efnahagskerfið
var vanþroska.
Þegar ríkisstjómin
kemur Framkvæmda-
stofnun á 1971 var það
mjög táknrænt fyrir það
sem menn voru að hugsa.
Það var Framkvæmda-
stofnun rikisins, sem átti
að sjá um efnahagslegar
framfarir i landinu —
ekki markaðurinn."
20áram
of seint
Þessi ummæli Þrastar
Ólafssonar leiða hugann
að því, hvað það hefur
kostað islensku þjóðina
að súpa seyðið af því, að
vinstri stjóm komst til
valda 1971 og hóf að
framkvæma stefnu, sem
ef til vill var 20 árum á
eftir tímanum. Að
minnsta kosti líða næst-
um tveir áratugir frá því
að stefnan var boðuð sem
allheijarlausn á okkar
vanda, þar til vinstri-
sinnar taka til við að
viðurkenna, að hún hafi
verið á misskilningi
byggð. Þeir sem fylgst
hafa með sveiflunum í
skoðunum vinstrisinna
frá þvi að þeir töldu Karl
Marx hafa fundið loka-
lausnina á stjóm efna-
hagsmála um - miðja
siðustu öld undrast i
sjálfu sér ekki, að þeir
hafi rangt fyrir sér. Sam-
eiginlegt einkenni á
skoðunum vinstrisinna er
í stórum dráttum það, að
oftast sýnir sagan, að
þær em rangar. Spum-
ingin virðist helst vera
sú, hve langan tima sag-
an þarf til að sýna þetta
eða hve mörg ár þurfa
að líða, þar til vinstri-
sinnar viðurkenna þetta.
I Alþýðublaðsviðtalinu er
Þröstur Óiafsson spurð-
ur að því, hvort honum
finnist að lokað hafi ver-
ið fyrir ákveðna þróun
með Framkvæmdastofn-
un og hann svarar:
„Ég vil ekki segja að
það hafi verið lokað fyr-
ir, en ekki heldur að það
hafi allt verið eðlilegt,
sem viðreisnarstjómin
gerði. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að við
hefðum þurft að fara í
gegnum breytíngar á 7.
áratug.
Sú (svo!) aðlögun, sem
þurftí að gera á um-
hverfinu í kringum
okkur, hefði verið æski-
legra að gera í meira
jafnvægi en við gerðum,
án þess að þurfa sifeilt
að steypast á nefið. Þjóð-
in var á því upp úr
viðreisn að við þyrftum
að huga að öðrum verð-
mætum — þvi kemur
millibil allan framsókn-
aráratuginn. ■
Síðan leysist allt úr
læðingi eftir 1983/1984,
þegar á einu kjörtímabili
allt er gefið fijálst. Þá
förum við aftur í hinar
öfgamar, og sátum allt
síðastliðið kjörtimabil í
þeirri súpu, sem lýstí sér
sem pólitískt stjómleysi,
pólitískt valdaleysi — en
með efnaliags- og við-
skiptalíf, sem var búið
! að M mikii völd.“
FTMMTA OG SJÖUNDA HEILRÆÐIFRÁ
VERÐB RÉFAMARKAÐIIÐNAÐARBANKANS
TTL ÞEIRRA SEM ERU AÐ BYRJA AÐ SPARA.
5
Takið upp sparnað er afborgunum lána
lýkur! Grípið tækifærið er lán hafa verið
greidd upp og leggið samsvarandi fjárhæð
fyrir í stað þess að eyða peningunum í
annað.
7
Góð yfirsýn yfir fjármálin er nauðsynleg.
> Best er að geta jafnan fylgst með hvernig
eignir og skuldir breytast frá einum tíma
til annars.
... OG ÞAÐ ER EKKERT ERFITT AÐ STÍGA FYRSTU SKREFIN!
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 1530