Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 16

Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 Mömmusögur Békmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson 366 sögur með 468 litmyndum. Ritstjóri: Doris Barth. Þýðing og endursögn: Þórir S. Guðbergsson og Hlynur Örn Þórisson. Utgef- andi: Setberg. Það er langt síðan ég hefi séð svo undurfagra bók, snilli teiknar- anna er slík, að þessi dægrin, sem bókin hefir verið á borði mínu, þá hefi ég, hvað eftir annað, staðið mig að því að fletta henni, til þess að gleðja auga og hug. Nú svo er lesmálið heldur ekki af verri endanum, perlur, sem glatt hafa böm um víða veröld lengi, kynslóð eftir kynslóð. Hér er: Oli lokbrá, Heiða, Hans og Gréta, Heimski Hans, Ljóti andarunginn, Rauðhetta og, og... ja, lengi yrði ég að telja innihaldið upp, því að bókinni er skipt í 366 lestra, einn fyrir hvem dag ársins. Bráðsnjöll hugmynd, hvatning til fullorðinna að fylgja bami í rúmið, lesa fyrir það, skoða með því og ræða um lestur dagsins. Svefn að slíkri stund lokinni yrði sætur, og illa trúi ég, að lesarinn nyti ekki Unaðar líka. Rithöfundar og listamenn á vegum útgáfufyrirtækisins Pestalozzi unnu texta^ bókarinnar og gerðu teikningar. íslenzka efnið, sem val- ið er af mikilli smekkvísi, auðveldar bömum að læra vers og vísur, fær- ir bókina nær þeim. Mikill kostur að höfunda er getið, því ég sakna þess, að við ævintýrin fæst er frá því sagt, hvaðan þau eru upprunnin. Ég er ekki sáttur við undirfyrir- sögnina 366 SÖGUR. Hér hefði átt að standa 366 LESTRAR, því mörgum ævintýranna er skipt milli daga. Þetta er smámál, hitt skiptir 'ollu, að þeir sem eru að leita að fallegri gjöf handa fróðleiksfúsu bami, gleymi ekki að líta í þessa bók. Setning texta og fílmugerð ann- aðist Prisma sf., Hafnarfirði, en útgáfan er unnin og prentuð í sam- vinnu við Pestalozzi Verlag í Erlangen, Bayern. Hafi íslenzki útgefandinn kæra þökk fyrir að rétta þetta listaverk fram. Betra að yrkja en bara vera töff Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Stefán Snævarr: HRAÐAR EN LJÓÐIÐ. Símon Jón Jóhannsson annaðist útgáfuna. Greifinn af Kaos 1987. Stefán Snævarr er eitt þeirra skálda sem ekki fara með miklum bægslagangi, að minnsta kosti skyggir hann ekki á sól. Stefán hef- ur sent frá sér nokkrar ljóðabækur og í bestu ljóðum sínum er hann góður fulltrúi kynslóðar sinnar. Nú er komin frá honum bók sem nefnist Hraðar en ljóðið. Fyrstu ljóðin í Hraðar en ljóðið fjalla um ljóðið sjálft. I Vertu ljóðinu góður er bent á ýmsa valkosti ljóðs, færa því dreka og mána, fela það bak við augun og breyta því í hjarta. í Betra að yrkja sem birtist á sömu opnu og Vertu ljóðinu góður eru eftir- farandi heilræði: „Betra að yrkja en drekka/ betra að yrkja en reykja/ betra að yrkja en sniffa/ betra að yrkja en munda/ rakhníf". Nafnlausn byijar svo og er eins og fleiri ljóð bókarinnar til marks um heimspekilega menntun Stefáns Snævarn Augað sem sér sér ekki augað sjá. Eyrað sem heyrir heyrir ei eyrað heyra. Spegillinn speglast í spegli sem speglast í spegli. Stefán Snævarr er af kynslóð sem er töluvert ginnkeypt fyrir banda- rískri alþýðumenningu: kvikmyndum og tónlist. Þessari kynslóð fylgir eft- irsókn eftir því að vera töff. Þetta kemur fram víða í Hraðar en ljóðið. Þótt önnur dæmi væru kannski heppilegri vel ég Langbrók: Stefán Snævarr Ég er langbrók iangræknari en fjandinn vil engin homreka Vera. Biddu mig ekki um geisla í geislabyssuna, góða. Ég man þér kinnhestinn. Stefán Snævarr er alls ekki skoð- analaust skáld, en hann er fremur hófsamur þegar hann skyggnir samtí- mann. Ljóð sin byggir hann upp eins og sjálfstæða smíð og freistar þess að vanda hana. Það tekst auðvitað misjafnlega eins og hjá fleiri skáld- um. Hraðar en ljóðið kemur víða við og lýsir viðleitni til að leggja eitthvað af mörkum til umræðunnar um það hvar við séum á vegi stödd. Bókin kemur lesanda í kynni við höfund sem horfíst í augu við það sem á öllum brennur og gefur ráð til að sigrast á vanmáttarkennd tímans. Það er öllum hollt að fylgjast með Stefáni Snævarr og úrlausnarefnum hans. En sem ljóðskáld þarf hann að nema staðar og íhuga framhaídið. Hann þarf til dæmis að gera sér grein fyrir hvort heimspekingurinn sé ljóðskáldinu byrði eða öfugt. KEYNSLUNNI RIKARI Bókmenntir Erlendur Jónsson Matthias Viðar Sæmundsson: MINNINGAR BARNALÆKNIS. 178 bls. Forlagið. Reykjavik, 1987. Þessi lifssaga Björns Guðbrands- sonar er prýðilega læsileg. Björn stendur á sjötugu. Reynsla hans er orðin fjölskrúðug svo ekki sé meira sagt. Eigi að síður er henni komið hér fyrir á hundrað og áttatíu blað- síðum. Sá er einmitt meginkostur þessarar frásögu hversu gagnorð hún er. Hér virðist allt sagt sem segja þarf. En fátt fram yfir það. Frásögnin er hvarvetna takmörkuð við þann spamað I orðum sem unnt er að komast af með. Þama er hvergi verið að teygja lopann. Lítið fer fyrir hugleiðingum um liðin ár, nema hvað sögumaður lýsir við upphaf og endi bókar viðhorfum sínum til lífs og tilveru. Ennfremur drepur hann hér og þar á málefni tengd starfi sínu; þar með talda náttúruvernd. Sagan er byggð upp af endurminningabrotðan mynda heild, samfellda sögu. Stundum er sem klippt sé á frásögn þegar hæst stendur: lesandanum er þá látið eftir að semja framhaldið og draga sínar ályktanir. Björn Guðbrandsson er maður víðförull. Allt eins og eftirlætis- iþrótt hans er fuglaskoðun, þannig hafa honum einnig veist tækifæri til fjölbreytilegrar mánnlífsskoðun- ar um víða veröld. vo margt hefur borið fyrir augu hans um dagana að undmm sætir. Hann gisti Þýska- land Hitlers skömmu áður en heimsstyijöldin braust út. Hann var hér í Reykjavík hernámsárin öll, ástandsárin. Hann var læknir víðs vegar í Bandarikjunum þar sem hann nam sérgrein sína. Hann var læknir í Japan á árum Kóreustríðs- ins. Og siðast en ekki síst: hann var læknir í Viet-nam þegar styij- öldin geisaði þar hvað grimmileg- ast. Rúm þijátiu ár hefur hann svo verið starfandi við Landakotsspital- ann hér. En þar hefur að sjálfsögðu rikt kyrrð og friður og fátt gerst sem í frásögur sé færandi. A efra aldri tók BjOrn sér fyrir hendur að læra rússnesku og ferðaðist til Sov- étrikjanna. Hann hefur skoðað lífið í sinum margbreytilegustu mynd- um, stundum i nálægð sem læknir, en stundum líka tilsýndar sem áhorfandi. Og hann hefur sem læknir orðið að horfast í augu við dauðann, þráfaldlega og endurtek- ið; ekki hvað sist þegar hann var Björn Guðbrandsson læknir á Vifílsstöðum, ungur kandídat. Sjálfum hefur honum tekist að aka lífsvagni sínum heilum gegnum allt þetta. Hann fæddist og ólst upp í sveit áður en aldagömul vinnu- brögð og hugsunarháttur hafði breyst að marki. En ekki var nema sjálfsagt að prestssonur norður i Skagafírði gengi i Menntaskólann á Akureyri. Eftir að hafa lokið stúd- entsprófí og síðan gluggað í málfræði í Kaupmannahöfn lá leiðin svo í læknadeilina hér, og eftir það rekur hver kapítulinn annan. Það er ekki i verkahring læknis að ráða lífsgátuna. »Maður gerir skyldu sína og reynir að nota þekkingu sína og reynslu.« Bjöm Guðbrands- son telur að ekki megi kaupa visindin því verði að glata jafnframt mannlega þættinum. Vísindin efl- ast, rannsóknir aukast. En bijóstvi- tið, tilfinningin, hugboðið, hvað um það? »Ungir læknar kunna minna á útlit sjúklings en þeir eldri. Allir eru i rannsóknum sem er út af fyr- ir sig ágætt. En niðurstöðurnar koma stundum of seint. Sá sem hefur reynslú við sjúkdómsgrein- ingu sér fljótt hvað ber að gera og hvað ekki. Hann missir siður sjúkl- ing.« Birni þykja sumir fara óvar- lega með geislavirk efni, svo dæmi sé tekið, meðhöndla þau sem leik- fang: »Fyrir fáeinum árum voru þannig teknar nærri 400 rönten- myndir af einum sjúklingi. Það jafngilti því að hann hefði lent í útjaðri atómsprengjunnar.« Margan ma hefur læknirinn hitt um ævina, suma í svipsýn, öðrum kynnst nánar. Mannlýsingar Björns eru fáorðar en afdráttarlausar. Hann segir að á æskuheimili sínu Matthías Viðar Sæmundsson hafi lítið verið talað um fólk, »einka- líf fólks var látið í friði.« Sama hátt hefur hann á í þessari bók, sneiðir hjá viðkvæmum málum. Hins vegar neitar hann sér ekki um að taka eftir kómísku hliðinni á mannlífinu. Hann hefur lagt á minnið meitog eftirminnileg tilsvör. Þannig lýsirnn mörgum samferða- manninum á lífsleiðinni: hefur eftir honum eina eða tvær setningar. Og þær segja kannski meira en löng umsögn. Björn er ekki í þeirra hópi sem telja að allt sé i raun og veru gott einungis ef það er liðið, búið og gert. Mat hans er jafnan hlutlægt og raunsætt, eins varðandi liðna tímann. Það, sem hann segir um sveitasamfélagið gamla, tel ég t.d. igrundað vel. Björn Guðbrandsson ólst upp við formfastan aga, og gilti það jafnt um heimili, skóla og vinnustaði vestanhafs. Á katólskum sjúkra- húsum þar í landi varð maður »hluti af kerfi sem einkenndist af vand- virkni, nákvæmni og ráðdeild.« I samræmi við þetta eru Iokaorð bók- arinnar: »Sá sem vinnur ekki meira en honum er borgað fyrir er ekki verður launa sinna.« Sjaldan er unnt, þegar endur- minningabók sem þessi er vegin og metin, að greina hvað sé sögu- manns og hvað höfundar. Ef vel tekst er þó hægt að fullyrða að báðir hafi lagt af mörkum sitt besta. Texti þessarar bókar er lát- laus en vandaður. Sögumaður segir frá. Og höfundurinn skrásetur; en lætur ekki á sér bera að öðru leyti. Þess háttar samvinnu má kenna við hvort tveggja: vandvirkni og ráð- deild. FLUGSAGA Bókmenntir Erlendur Jónsson ANNÁLAR ÍSLENSKRA FLUGMÁLA 1936-1938. Arng- rímur Sigurðsson setti saman. 192 bls. íslenska flugsögufélagið. Reykjavík 1987. »Hér er að fínna þær heimildir sem rannsóknir á íslenskum flug- málum munu byggja á. Þessar heimildir eru undirstaða þess sem síðar kann að verða ritað um flug á íslandi,« segir höfundur í for- mála. Þetta er fjórða bindi ritsins en útgáfan hefur legið niðri í nokk- ur ár. Nú hefur íslenska flugsögufé- lagið tekið ritið á arma sína og má vona að útgáfan gangi greiðlega hér eftir. En með þessu fjórða bindi er aðeins komið að árinu 1939 þannig að verk er eftir að vinna. Ef hliðsjón er höfð af að flugið var á þessum tíma meira draumur en veruleiki má spyija hvernig þriggja ára saga geti fyllt heilt bindi, og það áður en flug hófst hér að marki? Svarið er einfalt: flugáhugi var hér almennur og mikið um flug- mál rætt og ritað. Litið var á flugið sem ævintýri framtíðarinnar, spennandi og áhættusamt í senn. Ofriðlega horfði í heiminum. Stór- þjóðimar lögðu ofurkapp á flugvéla- framleiðslu, einkum Þjóðveijar. Til þeirra sóttu íslendingar ráð og skól- un og því koma þeir talsvert við sögu í annálum þessum. Höfundur kallar ritið annála og er það vissulega réttnefni. Það er mest byggt upp af prentuðum og skrifuðum frumgögnum. Þar á meðal eru glefsur úr dagblöðum, bókunargögn af ýmsu tagi, t.d. far- pantanir, félagslög, skírteini, sendibréf og yfírhöfuð hvaðeina sem nöfnum tjáir að nefna og flugi tengist. Hefur höfundur sýnt lofs- verða elju með því að safna saman öllu þessu sundurleita efni, svo og hugkvæmni í að steypa því saman svo úr verði aðgengileg heild. Bókin er í stóru broti þannig að myndefnið nýtur sýn nokkuð vel, en myndir eru þarna fleiri en tölu verði á komið. Myndatextar eru ýtarlegir; segja raunar dijúgan hluta sögunnar. Þetta er ein þeirra bóka sem hægt er að blaða í enda- laust; svo margt er þama saman Arngrímur Sigurðsson dregið. Höfundur sá sjálfur um umbrot og útlit bókarinnar. Sýnist mér það hafa tekist vel. Útgáfan tengist hálfrar aldar afmæli Flugfélags Akureyrar sem var forveri flugfélags íslands og seinna Flugleiða og því er prentað þarna, á eftir formála höfundar, ávarp stjómarformannsins, Sigurð- ar Helgasonar. Þakkar hann höfundi »fyrir að varðveita og festa á spjöld sögu þessarar mikilvægu atvinnugreinar á fslandi.« Undirrit- aður telst ekki beint til flugáhuga- manna en tekur óhikað undir orð stjómarformannsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.