Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
2F
HUGSJÓN EÐA
DRAUMÓRAR
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Pétur Guðjónsson: ERINDI
VIÐ ÞIG. EINSKONAR ÆVI-
SAGA. Jón frá Pálmholti skráði.
256 bls. Útgáfan. 1987.
»Pétur Guðjónsson, sem rekur
sögu sína hér á eftir er aðeins fer-
tugur að aldri,« segir höfundurinn,
Jón frá Pálmholti, í formála. Er
ekki laust við að Jón þykist þurfa
að sætta lesendur við að meðtaka
ævisögu svo ungs manns. En Pétur
er kunnur flokksforingi þótt ekki
sé flokkur hans stór. I öðrum lönd-
um er algent að ævisögur þess
háttar afreksmanna séu skráðar og
gefnar út, og þá helst meðan þeir
standa í sviðsljósinu og lesendur
hafa áhuga á persónunni. Þar er
ekki spurt hvort maður hafi eitt-
hvað að segja heldur hver hann sé,
hvort hann sé þekktur. Og Pétur
telst auðvitað þekktur maður. Þó
grunaði mig ekki að hann væri svo
heimskunnur sem lesa má í þessari
bók: »Næstu árin var næstum sama
hvar ég kom í Suður-Ameríku. Allt-
af var þar einhver sem þekkti mig.«
»Einskonar ævisaga,« stendur á
titilblaði. Satt er það, þetta er bæði
ævisaga og þar að auki ýmislegt
fleira, t.d. hugmyndasaga sögu-
manns. Skoðanir hans verða
söguþræði yfirsterkari þegar líður
á bókina.
Pétur fæddist norður á Mel-
rakkasléttu og dvaldist þar fyrstu
æviárin. En sex ára hleypti hann
heimdraganum. Og upp frá því
ætlar ferðalögum hans seint að
linna. Pétur er sannkallaður heiins-
borgari. Hann nam í Bandaríkjun-
um á upphafsárum Víetnam-stríðs-
ins þegar bylgja róttækni og
marxisma reið yfir Vesturlönd. Og
Pétur hreifst með. Hann fór til
Chile þegar Allende var þar við
völd. Hann skrapp til Kúbu í boði
kunningja síns, Castros. Hann
heimsótti skæruliða í Mið-Ameríku.
En allt olli það honum vonbrigðum:
skæruliðamir, kommúnistastjóm-
irnar og kynslóð ’68. »Heigulshátt-
urinn var svo mikill hjá þessari-
kynslóð, að hún bara lyppaðist nið-
ur við minnstu mótbárur.« Pétur
segist hafa tileinkað sér rómantísk-
ar hugmyndir um skæruliðana í
Guatemala. »A því varð nú breyt-
ing, því mér varð ljóst að skærulið-
arnir em sjaldnast að beijast fyrir
hugsjónum einum og oft alls ekki.«
Síðan kynntist Pétur Hreyfing-
unni »sem þekkt er fyrir manngild-
issjónarmið sín og breiðist nú ört
út um heiminn frá manni til
manns,« svo vitnað sé til formála
Jóns frá Pálmholti. Upp frá því
hefur Pétur helgað því málefni
krafta sína og í síðari hluta bókar-
Jón frá Pálmholti.
innar er ofin inn í söguna sókn og
vöm fyrir þann málstað. \
Hversu vel Pétur heldur á máli
sínu — það kann að vera álitamál.
Altént efast ég um að bók þessi
snúi mörgum til Hreyfingarinnar.
Bilið er stundum mjótt á milli hug-
sjóna og draumóra. Hins vegar er
Pétur heilmikill spjallari. Ef allt er
satt sem hann segir af sjálfum sér
hlýtur hann að teljast til meirihátt-
ar ævintýramanna. Er hann hvergi
að skálda? Einu gildir, rabb hans
heldur manni vakandi. Pétur er líka
óragur að tjá skoðanir sínar á
hveiju sem er. Mér finnst honum
takast betur að skilgreina það, sem
fyrir augu hefur borið — á vondu
máli sagt að upplifa það, heldur en
að draga af því röklegar ályktanir.
Ætli hann lýsi ekki réttilega inn-
taki námsmannahreyfinganna, svo
dæmi sé tekið? Þetta vom fyrst og
fremst andófshreyfingar. Og slík
samtök, ef samtök skyldi kalla,
verða seint uppbyggileg. Omótmæl-
anlega hjálpuðu þau Bandaríkja-
mönnum til að tapa Víetnam-stríð-
inu. Svo komu þau sér líka
varanlega fyrir í fjölmiðlum á Vest-
urlöndum; líka í fræðslukerfí
margra landa.
En þrátt fyrir gagnrýni sína er
Pétur enn á vinstri kantinum, um
það er víst engum blöðum að fletta.
Sem amerísk-menntaður stjórn-
málamaður hefur Pétur næma
tilfinningu fyrir áhrifum fjölmiðlun-
ar: »Það sem ekki sést í sjónvarpi
er ekki til í augum almennings,«
segir hann, og það vafalaust rétti-
lega. Pétur kvartar um að sjón-
varpið íslenska sýni sér og
hreyfingu sinni lítinn áhuga. Segj-
um þá að hann fái þann skaða
bættan með útgáfu þessarar bókar!
Þetta er kilja í stóru broti. Og
forsíðuna prýðir litmynd af sögu-
hetjunni; skýr mynd af Pétri, en
baksviðið óljósara.
Hafnargallerí
Myndlist
Valtýr Pétursson
Helgi Valgeirsson heitir ungur
maður, sem efnt hefur til sýning-
ar á málverkum sínum í Hafnar-
galleríi, sem er á loftinu fyrir ofan
Bókabúð Snæbjörns Jónssonar í
Hafnarstræti. Þetta gallerí er
nokkuð sérstætt að því leyti, að
þar hafa að mestu sýnt nemendur
og byrjendur í myndlist. Ef til
vill mætti því kalla staðinn skóla-
gallerí, og ég er ekki frá því, að
ekki ætti að skrifa harðorða gagn-
rýni um þá hluti, sem þar koma
fram. Flest af því, sem fyrir aug-
un hefur borið þama, er ekki
búið til að taka þátt í slagnum,
ef svo mætti til orða taka, og
væri ef til vill sanngjarnara að
segja, að fólk flýtti sér einum of
með að sýna það, sem enn er í
mótun. En auðvitað koma sprett-
ir, sem gera þessa starfsemi
réttlætanlega, og ekki þarf um
það að efast, að sýnendum er
mikill greiði gerður og stuðningur
við ungt listafólk fólginn í starf-
seminni.
Það eru þrettán olíumálverk á
sýningu Helga, og eru þau öll
gerð á þessu ári nema eitt. Helgi
hefur skemmtilega litameðferð í
flestum verka sinna, og það sem
skilar sér einna best í þessum
verkum er hugmyndaflug og virð-
ing fyrir því efni, sem unnið er
í. Helgi er að öðru leyti á byij-
endastigi, og ógemingur er að spá
nokkm um framþróunina. Allt
getur gerst. Eg vonast eftir góðu
framhaldi og óska Helga til ham-
ingju með það, sem komið er.
e
pierre cardin
Skartgripur
sem mœlir tímann
Jón og Óskar
Laugavegi 70
MEBA
Magnús E. Baldvinsson
Kringlunni
Guðmundur Þorsteinsson
Bankastræti 12
Klukkan
Hamraborg 1
Kópavogi
Georg V. Hannah
Keflavík
Jón Bjarnason
Akureyri
HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF.
veitir einstaklingum tœkifœri til góðrar óvöxtunar í hlutabréfum með
samspili skattfródráttar og arðsemi traustra atvinnufyrirtœkja.
Til sölu eru hlutabréf í Hluttabréfasjóðnum hf., en félagið var stofnað
haustið 1986. Hlutabréfasjóðurinn hf. uppfyllir skilyrði laga nr. 9 frá
1984 um skattfrádrátt. í því felst að kaup einstaklinga á hlutabréfum
í sjóðnum eru frádráttarbœr frá skatti upp að vissu marki. (Árið 1986
var heimill frádráttur vegna hlutabréfakaupa kr. 45.900,- hjá
einstaklingum og kr. 91.800,- hjá hjónum.)
Það athugist að „skattlausa árið“ tekur einungis til almennra
launatekna. Aðrar tekjur einstaklinga verða skattlagðar og
kemur þá skattfrádráttur vegna hlutabréfakaupa að fullum
notum.
Hlutabréfasjóðurinn hf. notar ráðstöfunarfé sitt til kaupa á
hlutabréfum og skuldabréfum traustra fyrirtœkja.
Hluthafar í Hlutabréfasjóðnum hf. eru nú um 200 talsins.
45% eigna Hlutabréfasjóðsins hf. eru hlutabréf og á hann nú
hlutabréf í eflirtöldum hlutafélögum:
Almennum tryggingum hf„ Skagstrendingi hf„ Eimskipafélagi
íslands hf„ Flugleiðum hf„ Tollvörugeymslunni hf„ Hampiðjunni hf„
Útgerðarfélagi Akureyringa hf„ Iðnaðarbanka íslands hf. og
Verslunarbanka íslands hf.
55% eigna Hlutabréfasjóðsins hf. eru skuldabréf atvinnufyrirtœkja.
Stjórn sjóðsins skipa:
Baldur Guðlaugsson,
hrl. stjómarformaður,
Árni Ámason,
framkvsljóri,
Ragnar S. Halldórsson,
forstjóri,
dr. Pótur H. Blöndal,
framkvstjóri,
Davíð Sch. Thorsteinsson,
framkvstjóri, varaformaður,
Ámi Vilhjálmsson,
prófessor,
Gunnar H. Hálfdanarson,
framkvstjóri,
dr. Sigurður B. Stefánsson,
framkvstjóri.
Framkvœmdastjóri er Porsteinn Haraldsson.
löggittur endurskoðandi, Skólavörðustíg 12.
Reykjavík. s. 21677. Endurskoðandi er
Stefán Svavarsson. lögg. endurskoðandi.
Sölugengi hlutabrófa í Hlutabrófasjóðnum hf. er nú 1,42 (15. desember 1987) en það haekkar daglega til áramóta m.v. 36% ársvexti.
Hlutabréf Hlutabréfasjóðsins hf. eru til sölu hjá eftirtöldum aðilum;
HlulabréfainarkacViriun hf
Skólavöröustíg 12. 3. h. Reykjavík. Siml 21677
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Q2>
riÁRFESIINCARFÓACIO
UERÐBRÉFAMARKAÐURINN
Hatnarstœli 7 1C1 Reykjavik SS (91) 28566
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30
ééll<AUPÞING
NORÐURLANDSHF m
KAUPÞING HF
Husi Verztunannnar, simi 686988