Morgunblaðið - 15.12.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
Erindi við þig - Saga
Péturs Guðjónssonar
Sauðárkrókur:
Nýr útibússtjóri
Búnaðarbankans
ÚTGÁFAN SB hefur gefið út
bókina „Erindi við þig — Einskon-
ar ævisaga" og eru það kaflar úr
lífshlaupi Péturs Guðjónssonar
stjórnunarráðgjafa og formanns
Flokks mannsins. Bókin er skráð
af Jóni frá Pálmholti.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Það má fullyrða að fáir íslendingar
hafi ferðast jafn víða og kynnst af
eigin raun jafmörgum heimssöguleg-
um viðburðum og Pétur Guðjónsson.
Pétur hefur yfírgripsmikla menntun
í hagfræði, stjómmálafræði og
mannfræði. Hann stundaði nám við
Harvardháskóla í Bandaríkjunum á
umrótstímum sjöunda áratugarins,
var búsettur í Chile á valdadögum
Allende, fór til Kúbu í boði Castros
í kjölfar frægs blaðamannafundar.
Pétur er einn af upphafsmönnum
„Hreyfingarinnar" sem kennd er við
manngildissjónarmið, en hún fer nú
ört vaxandi í yfir 50 löndum.
Lestur bókarinnar mun snerta
margan manninn djúpt og hneyksla
suma. Pétur talar tæpitungulaust um
skoðanir sínar á svokölluðum menn-
ingarvitum, stjómmálamönnum,
sálfræðingum, 68-kynslóðinni, lög-
fræðingaveldinu, verkalýðsleiðtogum
og fleiri „sjálfskipuðum spekingum".
En umfram allt fjallar þessi bók
um ferð manns sem hefur leitað
lífsfyllingar, eins og við raunar öll
gemm, nema hvað Pétur virðist
þekkja leiðina og er reiðubúinn til
að deila reynslu sinni með öðmm.
Þar af leiðandi á þessi bók erindi við
alla, því hver leitar ekki lífshamingj-
unnar.“
Bókin er 256 bls., prýdd fjölda
mynda.
Sauðárkróki.
RÁÐINN hefur verið nýr úti-
bússtjóri, Gestur Þorsteinsson,
við útibú Búnaðarbanka ís-
lands á Sauðárkróki, en útibúið
er hið stærsta utan Reykjavík-
ur, með afgreiðslur í Hofsósi
og Varmahlíð.
Gestur Þorsteinsson er fæddur
6. september 1945 á Hofsósi, son-
ur hjónanna Pálu Pálsdóttur
kennara og Þorsteins Hjálmars-
sonar, stöðvarstjóra Pósts og síma,
en Þorsteinn lést fyrir nokkmm
árum. Gestur lauk stúdentsprófí
frá Menntaskólanum á Akureyri
1965 og hóf störf hjá Búnaðar-
bankanum á Sauðárkróki í janúar
1967.
Undanfarin ár hefur Gestur
verið fulltrúi fyrrverandi útibús-
stjóra, Ragnars Pálssonar, en
hann lést fyrr í vetur.
Gestur Þorsteinsson er kvæntur
Sóleyju Skarphéðinsdóttur og eiga
þau fímm böm.
- BB
SÍÐUMÚLA 11,108 REYKJAVÍK.
SÍMI91-84866
Vetrarperlur er hljómplata með jóla-
söngvumfrá 16. og 17. öld. Ragnheiður
Guðmundsdóttir syngur, Þórarinn
Sigurbergsson leikur með á gítar og
Jóhannes Georgsson á kontrabassa.
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson útsetti.
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup samdi
af þessu tilefni ljóð við þrjá aðventu-
söngva með hliðsjón af upprunalegum
þýskum textum. Flutningurinn er
hrífandi og hátíðlegur í einfaldleik
sínum og látleysi. (Aj
Ég ætla að syngja, er bamalagaplata Magnúsar
Þórs Sigmundssonar. Á henni eru gömul og ný lög
við þekktar þulur og bamatexta. Flytjendur auk
Magnúsar em Pálmi Gunnarsson, Jón Ólafsson og
tíu stúlkur úr kór Verslunarskólans. Böm og fóstmr
vom fengin til aðstoðar við að velja lögin. Þar má
nefna Fingraþulu, Bíum, bíum bamba, Ein sit ég og
sauma og Mamma borgar. Plölunni fylgir textablað
með gítargripum.
ÖRN OG ÖRLYGUR
|!I Mt pikl GfelASON l'KA iiormci
ÆVISAQA
NASíuv,
_ ISTJANS
SONAR
LIKNLS
Ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis
er skráð af Benedikt Gíslasyni frá
Hofteigi. Jónas Kristjánsson var
óumdeilanlegur brautryðjandi náttúru-
lækningastefnunnar á íslandi. Hann var
héraðslæknir í tveimur erfiðum og
víðlendum héruðum norðanlands og
austan. í ævisögu Jónasar greinir frá
uppvexti hans og ævintýrum í æsku,
skólaárum,ferðum og starfí. Kenningum
Jónasar eru gerð góð skil í bókinni. Á
SXjföS
frar
þúito&HfðrM tfTié, tft. I'
V
Fleiri kvistir hefur
að geyma samtals-
þcetti Áma Johnsen
blaðamanns við
fólk úr ýmsum áttum.
Hann er löngu
landskunnur fyrir
skemmtileg og hispurslaus viðtöl sín en
fyrri bók Árna í sama dúr, Kvistir í
lífstrénu, vakti mikla athygli. Árni
hefur einstakt lag á því að laða fram í
fólki persónuleika þess og skila efninu
þannig að viðmælandinn nýtur sín til
fulls. í bókinni eru m.a. viðtöl við
Veturliða listmálara, Matthías Bjarnason
alþingismann, Ása í Bæ, Þorstein
Jónsson flugstjóra og Lása kokk, -
menn sem vanir eru að fara á kostum.
Og síðast en ekki síst hina 103ja ára
gömlu heiðurskonu Aldísi á Stokkahlöð-
um, sem fylgist vel með öllu og hefur
skoðanir á flestum málum. [Aj
220 gómsætir ávaxta- og ábætisréttir er
þriðja í röðinni af hinum vinsælu
matreiðslubókum Arnar og Örlygs.
Bókin, sem skrifuð er af Kristínu
Gestsdóttur, hefur að geyma uppskriftir
og leiðbeiningar um matreiðslu á
ábætisréttum, kökum, drykkjum,
krapréttum, saft og sultu úr ávöxtum og
berjum. Bækurnar þrjár eru fáanlegar
hjá útgáfunni í skemmtilegri öskju.