Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 32

Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 Leiðbeiningar til að „slaka á“ á hljóðsnældu: Mikilvægt að stunda hugrækt eða slökun á hveijum degi - segir dr. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur „SLAKAÐU Á“ heitir nýstárleg hljóðsnælda sem Almenna bóka- félagið hefur gefið út með slökunaræfingum eftir dr. Eirík Orn Arnarson sálfræðing. Hér er um að ræða æfingar sem Eiríkur Örn hefur kennt um ára- bil, en hann er starfandi sálfræð- ingur við geðdeild Landspítalans og rekur eigin sálfræðistofu. Eiríkur Öm sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði í starfi sínu orðið var við að mikil þörf væri fyrir slökunaræfingar sem þessar og að tilgangurinn með út- gáfunni væri meðal annars sá, að gefa fólki kost á að nálgast þessar leiðbeiningar með auðveldum hætti. „Að því leyti þjóna þær einnig sem fyrirbyggjandi aðgerð og gætu jafn- vel orðið til að hjálpa mönnum áður en streitan er komin á alvarlegt stig. Ég held að það sé alla vega vel þess virði að reyna þetta og sjá hvemig gengur að losna við streyt- una með þessum hætti áður en menn leita í lyf í þeim tilgangi," sagði Eiríkur Öm, er hann var spurður nánar um efni snældunnar. Hann sagði að leiðbeiningarnar á Dr. Eiríkur Örn Arnarson snældunni væm byggðar á aðferð sem kennd væri við bandaríska lífeðlisfræðinginn og lækninn Jacobson, „Progressive Relaxati- on“, eða „kerfisbundin slökun". Á fyrri hlið spólunnar væri farið kerf- isbundið yfir stoðvefi líkamans þar sem lögð er áhersla á þær and- stæðu tilfinningar sem fylgja slökun og spennu. „Vöðvamir eru fyrst spenntir og síðan er slakað á og á þann hátt verður fólk næmara fyrir spennu í umhverfinu og í líkaman- um og það greinir spennu fyrr en áður,“ sagði Eiríkur Öm. „Fólk finnur þegar spennan er að hlaðast upp og getur því brugðist við áreit- inu. Sá sem er mjög spenntur og byrjar að læra slökun finnur í fyrstu aðeins fyrir því þegar sprennan fer úr hömlu. Þegar frá líður fara menn að greina fyrr öll þessi vægari . áreiti í umhverfinu og þar með lækkar spennuþröskuldurinn. Á fyrri hluta spólunnar er sem sagt KENNÍTALA ÁLAUNAMÐA Á launamiða og öll önnur framtalsgögn vegna launa greiddra á árinu 1987 og sem senda ber til skattstjóra í janúar 1988, skal tilgreina kennitölu, bæði launamanna og launagreiðenda í stað nafnnúmers. Notkun nafnnúmers á þessum gögnum fellur niður. RÍKISSKATTSTJÓRI I _JL NNÞA GETUM VID... ...afgreitt eldhúsinnréttingar og fataskápa fyrir jól. E3 BYGGINGAVÖRUR * 671100 STÓRHÖFDA Athugið að vörugjald hækkar væntanlega um áramót. Frábær greiðslukjör. Pantið strax. EURC KREPIT VILDARKJÖR * 50022 LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI farið kerfisbundið yfir stoðvefina og mikilvægt er að fylgjast með framgangi meðferðarinnar í þar til gerðri dagbók, sem fylgir með. Á seinni hluta spólunnar er svo lögð áhersla á sjálfa slökunina. En«ávinningurinn af slökun er í stuttu máli sá, að hún dregur úr súrefnisþörf líkamans, hægir á önd- un og hjartslætti, hægir á efna- skiptum líkamans og það slaknar á vöðvum. Þú finnur til hita og þynglsa í höndum og fótum. Ein- beiting reynist auðveldari og þú finnur fyrir ró og vellíðan. Með reglubundnum slökunaræfingum kemst þú í betra andlegt og líkam- legt jafnvægi og finnur sjaldnar fyrir kvíða.“ „Slökun hefur verið til í öllum menningarsamfélögum frá örófi alda og er í rauninni til í öllum trú- arbrögðum," sagði Eiríkur Örn ennfremur. „Það má til dæmis hugsa sér að bænin sé slökunarform hins kristna manns. En það eru ýmis önnur slökunarkerfi sem hafa verið þróuð og þá sérstaklega í Aústurlöndum fjær, jóga er til að mynda mjög fullkomið slökunar- form. Það er því langt síðan að menn fóru að gera sér grein fyrir því að stunda einhvers konar hug- rækt á degi hverjum. í nútíma þjóðfélagi vill það hins vegar brenna við að við gleymum þessum mikil- væga þætti daglegs lífs, að ætla okkur stund til hugræktar. Á allra seinustu árum hefur það samt verið að renna upp fyrir mönn- um, að hægt er að ná valdi á ýmist konar líkamlegri starfsemi, sem hefur farið eitthvað úrskeiðis og jafnvel leitt til þess að sálvefrænir kvillar hafa farið að hijá menn, en slíkir kvillar eru í daglegu tali nefndir streitusjúkdómar. Það er vitað, að álag í umhverfinu eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og þá sérstaklega of háum blóð- þrýsting. í þessu samandi má nefna ýmsa aðra sálvefræna kvilla, svo sem magasár, skeifugarnarsár, ýmis konar öndunarörðugleika, höf- uðverk, vöðvabólgu og margt fleira. Ýmis viðbrögð, sem við sýnum í daglegu lífi okkar, sem við getum nefnt „feilviðbrögð", það eru við- brögð sem aðlagast illa kringum- stæðum, geta þróast stig af stigi á mjög löngum tíma án þess að við tökum eftir því, fyrr en þau eru farin að htjá okkur verulega. Vöðvabólga eða vöðvagigt er mjög gott dæmi um þetta. Vöðvagigt stafar yfirleitt af því að stoðvefirn- ir, sem eru vefir og vöðvar sem halda okkur uppréttum og við get- um stjómað með viljanum, eru orðnir of spenntir og líkaminn þolir orðið illa þetta stöðuga álag. Vöð- vamir bregðast því við með því að senda frá sér sársaukamerki. Marg- ir hirða hins vegar lítið um þetta og halda áfram að takast á við áreiti umhverfisins og beita líka- manum á sama hátt og áður í stað þess að taka mark á þessari viðvör- un og reyna að breyta lífí sínu og losna við þessi óþægindi. Eitt af því sem við getum gert til að minnka streitu í daglegu lífi er að stunda einhvers konar hug- rækt eða slökun á hveijum degi. Spenna og slökun eru ósættanleg fyrirbrigði eins og andstæðir pólar á segulstáli sem hrinda hvorum öðrum frá sér. Sá sem er spenntur getur ekki verið afslappaður um leið. í gegnum slökunarþjálfun nær fólk smátt og smátt valdi á þessum óæskilegu viðbrögðum sem fylgja spennu og á þann hátt má koma í veg fyrir að þau magnist og vindi upp á sig eins og snjóbolti. Það má taka þá líkingu að um leið og þú ferð að greina þessi viðbrögð og bregst við þeim á réttan hátt þá er það eins og að þú takir snjó- kom sem fellur af himnum ofan og bræðir það á milli fingranna, og eyðir því þannig. Á sama hátt er mikilsvert að slaka á þegar þú finn- ur þessi spennuviðbrögð. Tilgang- urinn með útgáfu þessarar snældu er einmitt að hjálpa fólki til þess, og að því leyti getur hún einnig gagnast þeim sem ekki eru þegar haldnir spennu á háu stigi, sem fyrirbyggjandi aðgerð," sagði dr. Eiríkur Om Amarson að lokum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.