Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
37
Nefnd fjallar um
launaj afnr étti
Félagsmálaráðherra hefur
skipað nefnd sem ætlað er að
stuðla að auknu launajafnrétti
karla og kvenna í störfum hjá
hinu opinbera.
Koparstungaí
Asmundarsal
OPNUÐ verður sýning á 16.-18.
aldar koparstungum i Asmundar-
sal við Freyjugötu miðvikudaginn
16. desember kl. 21.00.
Sýningin er hingað komin vegna
samvinnu aðalræðismanns Ítalíu á
íslandi, menntamálaráðuneytis Ítalíu
og Italsk-íslenska félagsins.
Sýningin er opin til 20. desember.
Opnunartími sýningarinnar er:
miðvikudagur 16. des. kl. 21-23,
fímmtudagur 17. og fostudagur 18.
des. kl. 16-21, laugardagur 19. og
sunnudagur 20. des. kl. 14-21.
Nefndinni er falið að fjalla um
endurmat á störfum kvenna hjá
hinu opinbera, þar sem m.a. verði
höfð hliðsjón af mikilvægi umönn-
unar- og aðhlynningarstarfa og
starfsreynslu á heimilum, og gera
tillögur þar um. Einnig skal nefnd-
in kanna hlunnindagreiðslur, þ.e.
bílastyrk og fasta yfirvinnu hjá hinu
opinbera og í framhaldi þar af gera
tillögur um hvemig leiðrétta megi
með tilliti til launajafnréttis karla
og kvenna.
Nefndinni er ennfremur falið að
leita leiða til að tryggja jafnstöðu
karla og kvenna við ráðningar og
stöðuveitingar á vegum hins opin-
bera.
I nefndinni eiga sæti Asdís J.
Rafnar formaður Jafnréttisráðs,
Guðmundur Björnsson skrifstofu-
stjóri launadeildar fjármálaráðu-
neytisins og Lára V. Júliusdóttir
aðstoðarmaður félagsmálaráðherra
sem jafnframt er formaður nefndar-
innar.
Fundur Verkfræðingafélags íslands:
Brú yfir Hvalfjörð
LENGI hafa menn velt fyrir sér
þeim möguleika að brúa Hvalfjörð
og hagkvæmni þeirrar fram-
kvæmdar. Þriðjudaginn 15.
desember heldur Verkfræðinga-
félag Islands opinn fund um efnið
„Brú yfir Hvalfjörð" i Verkfræð-
ingahúsinu á Engjateigi 9. Á
þessum fundi er ætlunin að fara
yfir þá möguleika sem tii greina
koma, áhrif framkvæmdarinnar,
fjármögnun og arðsemi.
Þeir sem hafa framsögu eru:
Hreinn Haraldsson, jarðfræðingur
hjá Vegagerð ríkisins, og ræðir hann
um göng undir Hvalfjörð; Ólafur
Bjamason, verkfræðingur hjá Verk-
fræðistofú Sigurðar Thoroddsen, og
nefnist erindi hans Brú yfír Hval-
fjörð; Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri
í Stykkishólmi, ræðir um áhrif stytt-
ingar leiðar til Vesturlands á byggðir
norðan Hval§arðar; Gunnar Helgi
Hálfdánarson, framkvæmdastjóri
Fjárfestingarfélagsins, ræðir um
fjármögnun framkvæmda og arð-
semi.
Að loknum framsöguerindum
verða fyrirspumir og umræður.
Eins og áður sagði er fundurinn
öllum opinn og hefst hann kl. 17.00.
HAFÐU ALLTÁ
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK
t oV^'
VöruhúsVesturlands Borgarnesi sími 93-71 200
- er birgðamiðstöðin ykkar.