Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
asroff
OFNHREINSIR
Bretland:
Steel og Maclennan deila um leiðtogakjör
að uppbyggingin yrði ákveðin fyrst,
og síðan stefnumálin. Jafnaðar-
menn urðu ofan á í þessum átökum.
Undir lokin reyndist erfiðast að
fínna nafn á hinn nýja flokk, og
var sameinast um að nota heitið
Bandalagið, en einnig var uppi hug-
mynd um að nota nafnið Demó-
kratar.
Nú hefur risið ágreiningur um
kjör leiðtoga hins nýja flokks. David
Steel, leiðtogi Fijálslynda flokksins,
vill, að leiðtogakjörið fari fram eins
fljótt og auðið er, en Robert Mac-
lennan, leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins, vill, að það fari ekki fram
fyrr en í október á næsta ári. Ýms-
ir frammámenn Bandalagsins
óttast, að átök um nýjan leiðtoga
muni skaða hinn nýja flokk veru-
lega, standi þau megnið af næsta
ári.
David Steel hefur lýst því yfír,
að hann muni ákveða í janúar næst-
komandi, hvort hann muni gefa
Kröftugur ofnhreinsir með
mjúkum sitrónuilm. Hreins-
ar einnig emeleruð hellu-
borö og stálhluti.
L—
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Samningaviðræðum Fijáls-
lynda flokksins og Jafnaðar-
mannaflokksins lauk í síðustu
viku. Þær reyndust erfiðari en
gert var ráð fyrir, en samkomu-
lag náðist á endanum. Nú um
helgina kom i ljós ágreiningur
leiðtoga flokkanna um, hvenær
kjósa skuli leiðtoga hins nýja
flokks.
Samningaviðræður um samein-
ingu flokkanna hafa staðið frá því
í sumar. Þær reyndust erfiðari en
gert var ráð fyrir, og ekki tókst að
koma saman tillögum um upp-
byggingu hins nýja flokks fyrir 6.
desember, eins og áætlað hafði ver-
ið. En í síðustu viku lauk samninga-
viðræðunum, og tillögumar voru
lagðar fram.
Erfitt hefur reynst að samræma
hefðir flokkanna. Jafnaðarmanna-
flokkurinn, sem upphaflega er
klofningshópur úr V erkamanna-
flokknum, var beinlínis byggður
þannig upp, að erfítt yrði að gera
breytingar á grundvallarstefnumál-
um hans, eftir að þau höfðu verið
ákveðin í upphafí. Rökin fyrir þess-
ari tilhögun voru þau, að upphafs-
menn flokksins vildu koma í veg
fyrir sífelld deilumál, átök og bak-
tjaldamakk um stefnumálin, eins
og venjan væri í Verkamanna-
flokknum. í Frjálsiynda flokknum
hefur hins vegar tíðkast miklu los-
aralegra skipulag og á ársþingum
hans hafa iðulega verið samþykktar
tillögur, sem hafa valdið forystunni
erfíðleikum. Hann hefur heldur ekki
verið eins miðstýrður og Jafnaðar-
mannaflokkurinn.
Aðalágreiningurinn í samninga-
viðræðunum stóð um, hvort í
upphafí skyldi ákveða stefnumálin
að einhverju marki eða láta það
algerlega eftir hinum nýja flokki.
Jafnaðarmenn vildu, að stefnumálin
yrðu ákveðin um leið og uppbygg-
ing flokksins, en frjálslyndir vildu,
kost á sér sem leiðtogi hins nýja
flokks. Talið er víst, að Maclennan
gefí kost á sér.
Nígería:
Erfiðar
kosningar
Lagos, Reuter.
FIMM ára breytingaskeið í
Nígeríu, frá hersljórn til borgara-
legrar stjórnar, hófst um helgina.
Þá fóru fram fyrstu kosningar í
landinu frá árinu 1983. Lélegt
skipulag hindraði þó framgang
kosninganna og olli óeirðum í fá-
tæktarhverfum höfuðborgarinn-
ar, Lagos.
„Líklegast er að kosningarnar
verði endurteknar," sagði Ema Awa
formaður yfírkjörstjómar landsins
þegar sífellt fleiri fregnir bárust frá
kjörstöðum um að atkvæðaseðla,
blek og önnur kjörgögn vantaði.
Öngþveitið var áfall fyrir áætlun
Ibrahims Babangida um að afhenda
borgaralegri stjóm völd í landinu
árið 1992.
Athygli vakti sú yfírlýsing kjör-
stjómar í síðustu viku að á kjörskrá
væru 72 milljón kjósendur. Það er
17 milljónum fleiri en búist hafði
verið við. Ef hægt er að draga álykt-
anir af þessari tölu um mannfjölda
í Nígeríu þá má búast við að Nígeríu-
menn séu nú 150 milljónir eða 45
milljónum fleiri en áður hafði verið
talið.
Bretland:
Ríkið græðir á
tölvumistökum
London, Reuter.
VILLA í tölvuforriti hins opinbera
í Bretlandi olli því að verðbólga
hefur verið vanmetin um 0,1%
síðustu 18 mánuði, að því er vinnu-
málaráðuneyti Bretlands tilkynnti
á föstudaginn.
Eftirlaun og önnur þjónusta sem
ríkisvaldið innir af hendi eru tengd
verðbólgunni og hækkuð í hlutfalli
við hana árlega. Talið er að tölvumis-
tökin hafi sparað hinu opinbera 100
milljónir sterlingspunda (6,6 millj-
arða íslenskra króna) á tímabilinu.
Hagfræðingar segja að ellilífeyris-
þegar megi búast við fímm til tíu
punda uppbót hver á næstunni vegna
þessa.
Mistökin uppgötvuðust fyrir tilvilj-
un í síðasta mánuði.
15 ÆVIIMTYRADAGAR
BROTTFÖR 22. FEBRÚAR 1988
KAIRÓ-LUXOR-NíL-ASWAIM-ABU SIMPEL
Gisting á fyrsta flokks hótelum - Fæði - Fjöldi skoðunarferða innifaidar - íslenskur fararstjóri
Verð kr_ 85.000
pr. mann í tvíbýf i
Nákvæm ferðaáætlun M M lALLRA
liggur frammi á skrifstofunni - VAL
Aðeins þessi eina ferð V J ISaoÍo "