Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
45 K
Á að þjóðnýta alla
útgerð í Grænlandi?
Talsmenn einkafyrirtækja í útgerð segja
landsstjórnina vera að bola þeim burt
Nuuk. Frá J.N. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
Forsvarsmenn grænlensku
togaraútgerðanna AAK og
AAP, sem eru einkafyrirtæki,
eru mjög óánægöir með úthlut-
un rækjuveiðileyfanna að þessu
sinni. Segja þeir, að landsstjórn-
in haldi stöðugt meir fram hlut
sinna eigin togara og nefna sem
dæmi, að frá árinu 1986 hafi
kvótinn til togara einkafyrir-
tækjanna minnkað um 37%.
Kvóti einstakra togara er á bil-
inu 700-1.100 tonn á ári en
talsmenn fyrirtækjanna segja, að
ógemingur sé að gera skipin út á
þennan afla. Þá benda þeir einnig
a, að togurum emkafynrtækjanna
sé úthlutað verstu veiðisvæðunum.
Ríkisreknu togaramir veiða við
Vestur-Grænland en hinir við
Norðvestur- og Austur-Grænland
þar sem veiðamar em miklu dýr-
ari og rækjan verðminni.
í viðtali við grænlenska útvarp-
ið hvöttu þeir til, að sett yrði fram
ákveðin fiskveiðastefna í Grænl-
andi og spurðu hvort það væri
e.t.v. í bígerð að þjóðnýta alla út-
gerð í landinu.
Sören Brandt, fulltrúi AAK,
segir, að kvóti 22ja togara í einka-
eigu hafi verið minnkaður um 100
tonn á skip en það svarar til rúm-
lega 17 millj. ísl. kr. tekjurýmunar
fyrir hvert þeirra. Jens Kreutz-
mann, formaður AAP, segir
einnig, að einkafyrirtækin í útgerð
geti ekki þrifíst ef landsstjómin
heldur því til streitu, að skipin
landi 85% aflans í rækjuverksmiðj-
um hennar í landi. Útgerðin sjálf
getur þá aðeins unnið 15% aflans.
Grænlensku einkaútgerðirnar
óttast einnig samkeppnina við
kanadíska rækjutogara en þeir
hafa fengið kvóta frá sínum stjórn-
völdum upp á 2-3.000 tonn hver.
Arðsemi skipanna er því mikil og
auðveldar Kanadamönnum að ná
undir sig markaðnum með undir-
boðum.
Grænlenskur togari i ís.
Kínverskar leirstyttur sýndar
í London
Jube McKeown virðist frekar hræddur þegar honum eru sýndar
leirstyttur af hermönnum og hestum úr grafhýsi kínverska keis-
arans Oin Shihuang. Sýning á þessum styttum verður opnuð í
London i dag og henni lýkur í febrúar. Búist er við að um hálf
milljón gesta komi á sýninguna.
Suður-Yemen;
Utlægur
forseti
dæmdur til dauða
Sanaa, Norður-Yemen. Reuter.
ALI Nasser Mohammed, fyrrum
forseti Suður-Yemens sem nú er
i útlegð i Norður-Yemen, var á
laugardag dæmdur til dauða
ásamt 34 stuðningsmönnum sínum
af dómstóli i Aden, höfuðborg
Suður-Yemens. Nasser Mo-
hammed spáði óeirðum í Suður-
Yemen, þar sem marxistar eru við
völd, vegna þessa og sagði á
sunnudag við fréttamenn að þessu
yrði „ekki tekið þegjandi og hlóða-
laust" meðal vina sinna i landinu.
Að sögn Nassers Mohammeds,
sem steypt var af stóli á síðasta ári,
er nú verið að vinna að því að sak-
bomingar verði látnir lausir. Hann
sagðist halda að Ali Abdullah Saleh
forseti Norður-Yemens myndi reyna
að fá Sovétmenn til að þrýsta á stjóm
'Suður-Yemens um að endurskoða
dómsúrskurðinn. Hann sagði að
Saleh forseti nyti stuðnings allrar
þjóðarinnar bæði í norðri og suðri:
„Ég vona að hann verði leiðtogi sam-
einaðs Yemens og að eitt ríki og ein
stjórn verði að veruleika," sagði
Nasser Mohammed.
Bretland:
Rfkisstjómin gröm læknum
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ig algengt, að sérfræðingar vinni á
ríkisspítölum og séu einnig með
STJÓRNVÖLD hafa brugðist
hart við ásökunum lækna um, að
heilbrigðisþjónustan sé á heljar-
þröm. Talsmenn forsætisráð-
herrans hafa sakað lækna um
að standa í vegi fyrir breytingum
í hagkvæmnisátt á sjúkrahúsum.
Komið hefur í ljós ágreiningur
lækna og framkvæmdastjóra
ríkisspítalanna.
Stjómvöld ákváðu að bregðast
hart við ásökunum lækna í síðustu
viku um, að heilbrigðiskerfið væri
í gífurlegum erfiðleikum. Talsmenn
stjórnvalda sögðu um helgina, að
ný stjórn ríkisspítalanna ætti við
mikla örðugleika að etja, ekki síst
vegna sérfræðinga. Arangur hefði
þó náðst gegn hagsmunum þeirra,
sem nú væru að kvarta. Allt of
margir spítalar væru reknir án til-
lits til góðrar þjónustu og hag-
kvæmni. Þetta væri eins konar
verkalýðsbarátta á æðra stigi, sem
kæmi í veg fyrir, að rekstur sjúkra-
húsanna væri hagkvæmur. Það
hefur komið í ljós við rannsóknir
yflrstjómar ríkisspítalanna, að mik-
ill munur er á kostnaði við sams
konar aðgerðir á ólíkum sjúkrahús-
um.
Einnig hafa komið fram ásakanir
um, að sérfræðingar á ríkisspítölum
nýttu sér aðstöðu sína þar til að
sinna eigin sjúklingum. Það er einn-
Ljósadýrð í
gufuhvolfinu
er sovézk eld-
flaug brann
Colorado Springs. Reuter.
SOVÉZK eldflaug brann er hún
hrapaði í átt til jarðar og hlauzt
af því mikil ljósadýrð yfir vestur-
hluta Kanada og Bandarikjunum.
Eldflaugin hrapaði á laugardags-
kvöld og kom inn í gufuhvolfið á
27 þúsund kílómetra hraða á
klukkustund. Hafi eitthvað verið
eftir af henni er hún kom niður ligg-
ur það á botni Mexíkóblóa.
Fólk á svæðinu frá Montana til
stranda TexaS lét lögreglu og fjöl-
miðla vita af ljósadýrðinni, sem
þúsundir mann eru taldir hafa orðið
vitni að.
Eldflaugin var á sínum tima not-
uð til að skjóta gervihnetti á loft
og því hluti af svokölluðu „geimr-
usli“. Áð meðaltali fellur eitt stykki
úr ruslabúrinu til jarðar á degi
hverjum, nær oftast yfir úthöfum,
fjarri allri byggð.
stofur og þiggi full laun hjá ríkinu
þegar þeir eru í einkarekstri.
Mikill launamunur er á meðal
lækna. Læknar, sem eru að hefja
störf á sjúkrahúsum, fá um 500.000
ísl. krónur í árslaun og um 90 krón-
ur á tímann í svokallaðri skylduyfír-
vinnu. Með auknum starfsaldri og
stöðuhækkunum geta þeir komist í
ríflega eina milljón á ári. Bestu
launin eru hins vegar greidd fyrir
sérfræðingsstöður. Talið er, að þær
séu of háar til að gefa ungum lækn-
um framavonir í starfi. Og það eru
sérfræðingamir, sem eru sakaðir
um að vera rígbundnir hagsmunum
sínum.
Talsmaður bresku læknasamtak-
anna sagði, að þessi orð talsmanna
forsætisráðherrans sýndu, að erfið-
leikamir í heilbrigðisþjónustunni
hefðu náð athygli ráðherrans, en
það hjálpaði ekki neitt að ráðast
að læknum, sem hefðu þó náð þeim
árangri, sem hún í öðru orðinu stát-
aði sig af, þegar hún vísaði til þess,
að aldrei hefðu verið framkvæmdar
eins margar aðgerðir á spítölunum
og aldrei verið eins margar innlagn-
ir og á þessu ári.
Schiesser^I?
SCHIESSER SLOPPAR
VELÚRSLOPPAR
U FROTTESLOPPAR
4zi
lympii
La'jgavegi S: 13300 / Glæsibæ S: 31300