Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 54
«=»?* . TOei H38Maaaa ai smDAQuwjiM aKiuattraoHQM 54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 Jólasveinarnir komnir til byggða JÓLASVEINARNIR komu til byggða á sunnudaginn var, 13 dögum fyrir jól, eins og þeirra er háttur. Þeir mættu á svalir vöruhúss KEA, eins og mörg undanfarin ár, og sungu jólasöngva við góðar und- irtektir bæjarbúa sem voru komnir til að bjóða þá velkomna. Passíu- kórinn á Akureyri 15 ára Á síðastliðnu hausti voru 15 ár liðin frá stofnun Passíukórsins á Akureyri. Áðalhvatamaður að stofnun Tcórsins var Roar Kvam og hefur hann stjómað honum af stórhug og dugnaði æ síðan. Á þessum 15 árum hefur kórinn flutt mörg stór- verk tónbókmenntanna. Sem dæmi má nefna Messías eftir Hándel, Sálumessu Mozarts, Árstíðimar og Sköpunina eftir J. Haydn, C-dúr messu Beethovens, Páskaóratóríu og kantötur eftir J.S. Bach og svo mætti lengi telja. Er því óhætt að fullyrða, að kór- inn hefur á þessum 15 árum verið einn af máttarstólpum menningar- lífsins á Akureyri og jafnvel öllu landinu. Til gamans má rifja upp ummæli tónlistargagnrýnanda eins dagblaðsins í Reykjavík að loknum flutningi á Árstíðum Haydns í Há- skólabíói vorið 1979. Þau voru á þessa leið: „Passíukórinn réttætir' það að kalla Akureyri höfuðstað Norðuriands." Passíukórinn minnist 15 ára af- mælisins með tónleikum í Akur- eyrarkirkju 16. des. nk. kl. 20.30. A efnisskránni verða tvö verk. Þau eru Jólaóratóría eftir Camille Saint-Saens fyrir kór, 5 einsöngv- ara, orgei, hörpu og strengi og A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten, sem er fyrir kór, 2 sóprana og hörpu. Kórinn hefur áður flutt síðarnefnda verkið. Það var í des- ember 1979, bæði á Stóru-Tjörnum og í Akureyrarkirkju. Einsöngvarar með kórnum að þessu sinni verða þau Elín Sigur- vinsdóttir og Margrét Bóasdóttir sópran, Þuríður Baldursdóttir alt, Páll Jóhannesson tenór og Michael J. Clarke bariton. Hörpuleikari verður Monica Abendrot og að venju verður Roar Kvam stjórnandi á tónleikunum. (Fréttatilkynning) Samtök skólamanna um bindindisfræðslu: Varar við afleiðingum þess að leyfa bjóriim AÐALFUNDUR Samtaka skóla- manna um bindindisfræðslu í skólum var haldin mánudaginn 23. nóvember síðastliðinn. Á fundinum var samþykkt ályktun < þar sem bent er á nauðsyn þess að fylgt sé áfengismálastefnu sem miðar að því að halda neyslu áfengis sem minnstri í landinu og halda með því áfengisvandan- um í lágmarki. I ályktuninni segir meðal annars: „Fundurinn skorar á alþingismenn að virða tilmæli WHO um að draga úr áfengisneyslu um 25% til næstu aldamóta í því augnamiði að bæta heilbrigði þjóða. Margir sérfræðing- ar úr heilbrigðisstéttum hafa ítrek- að varað við afleiðingum þess að leyft verði að dreifa áfengum bjór og selja í landinu enda gangi það gegn slíkri viðleitni. Meðal annars er hætt við að áfengisneysla ungl- inga muni aukast“. I ályktuninni er ennfremur lögð áhersla á gildi uppeldis og fræðslu til að koma í veg fyrir neyslu áfeng- is og annarra fíkniefna og bent á nauðsyn þess að rækja jafnframt aðra þætti forvama, meðal annars að takmarka framboð áfengis. Þá bendir fundurinn á ákvæði í áfeng- islögum um bann við sölu áfengis til fólks undir tvítugu og telur sjálf- sagt að þeir áfengisseljendur, sem ekki virði þetta ákvæði, verði um- svifalaust sviptir veitinga- og söluleyfi og þeir einstaklingar sem hlut eiga að máli látnir sæta ábyrgð. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var á dagskrá fundarins erindi In- gólfs Guðmundssonar námstjóra sem hann kallaði „Fíknivarnir á tímamótum". Þar kom fram að umtalsverður skriður er kominn á bindindisfræðslu í grunnskólum. Bandarískt námsefni hefur verið þýtt og hópur kennara farið á undir- búningsnámskeið. Sérstakur umsjónarmaður hefur verið ráðinn til tveggja ára til að fylgja þessu námsefni úr hlaði. Stjórn Samtaka skólamanna um bindindisfræðslu var endurkjörin en hana skipa: Árni Einarsson formað- ur, Björn g. Eiríksson ritari, Þorvarður Ómólfsson gjaldkeri, Lárus Ingólfsson og Ingólfur Guð- mundsson. (Úr fréttatilkynningu.) Piltur og stúlka Leikstjóri: Borgar Garðarson Leikmynd: Örn Ingi Gíslason Lýsing: Ingvar Björnsson Tónlist: Jón Hlöðver Áskelsson Frumsýning annan dag jólakl. 17.00 2. sýning sunudaginn 27. des. kl. 20.30 3. sýning þriðjudaginn 29. des. kl. 20.30 4. sýning miðvikúdaginn 30. des. kl. 20.30 5. sýning fimmtudaginn 7. janúar kl. 20.30 6. sýning föstudaginn 8. janúar kl. 20.30 7. sýning laugardaginn 9. janúar kl. 18.00 8. sýning sunnudaginn 10. janúar kl. 15.00 Ath. breyttan sýningartíma. Forsala aðgöngumiða hafin. G jofakortið glcAur - tilvalin jólogjöf. B Æ MIÐASALA K SlMI 96-24073 lEIKFÉLAG AKUREYRAR Erumí hjarta bæjaríns Gisting og morgunverður Veriðvelkomin DÚKKUR MIKIÐ ÚRVAL A Ltikfaiiga~ A BjmrkaburitmíX HAFNARSTRÆTI96 - SlMI 96-27744 AKUREYRI Helgar-og viðskiptaf erðir til Reykjavíkur Ótrúlega hagstætt verð Verð frá kr. 6.859,- Ferðaskrifstofa Akureyrar, Ráðhústorgi 3, sími 25000. XJöfóar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.