Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
67
1-
4-
4-
Jóla hvað?
eftir Sigvrbjörn
Þorkelsson
Nú líður að jólum rétt eina ferð-
ina. Hvað segir það okkur? Jú,
skammdegið er í hámarki og til að
létta sér og stytta veturinn eru jól-
in kærkomin hátíð fyrir flesta.
Fjölskyldur ijúka í að taka til og
gera hreint á heimilum sínum. Menn
kaupa jólaföt og góðan mat til að
gæða sér á um jólin. Ekki má
gleyma að kaupa jólagjafirnar en
þeim fylgir hlýhugur til þeirra sem
þær eiga að fá, menn senda vinum
og ættingjum jólakveðjur og heimil-
in breytast í lítil bakarí þar sem
framleiddar eru smákökur í öllum
stærðum og gerðum. Beðið er eftir
að jólasveinarnir komi, en þeir eru
jafnan skemmtilegir og skrítnir
húmoristar, börnin fá gjafir í skóinn
sinn frá jólasveinunum ef þáu eru
sæt og góð og muna eftir að setja
skóinn út í glugga. Utvarpsstöðv-
arnar spila lög í gríð og erg sem
eiga að minna á jólin. Jólavertíðin
er hápunktur margra kaupmanna
og þeir leggja mikið upp úr að aug-
lýsa vöru sína sem best. Sem sagt
jólin og jólaundirbúningurinn er
ómissandi í skammdeginu.
Er eitthvað sem
gleymist?
Af hveiju allt þett amstur? Til-
gangurinn hlýtur að vera einhver.
Fyrir u.þ.b. 2000 árum fæddist í
þennan heim drengur sem gefið var
nafnið Jesús. Hann leit út fyrir að
vera ósköp venjulegur drengur en
hann var það alls ekki því þarna
var Guð sjálfur kominn í heiminn
í líki manns. Hlutverk hans var að
sætta syndugan heiminn við sig sem
hafði skapað heiminn. Guð var kom-
inn til að bjóða okkur að eignast
líf með sér, líf í fyrirgefningu, sem
við eigum af náð fyrir trú á hann.
Það sem vekur athygli við þetta líf
sem hann býður okkur er að það
tekur ekki enda. Þetta er eilíft líf,
eilíft líf með Guði.
Er það þess vegna sem við hlökk-
um til jólanna? Er það af því að
við höldum upp á það að Jesús
Kristur sonur Guðs kom í þennan
Sigurbjörn Þorkelsson
„Það er gaman að geta
farið í spariföt, gefið
ástvinum gjafir sem
eiga að minna okkur á
gjöfina stærstu sem
Guð sendi okkur, sinn
einkason. Við höfum
svo sannarlega ástæðu
til að gleðjast og
fagna.“
heim til að gefa okkur von. Von
um sigur yfir dauðanum, eilíft líf?
Vill það kannski verða útundan og
gleymast í öllu jólaflóðinu að á jól-
um minnist Kirkja Krists hér á
jörðinni þess að Jesús kom í þennan
heim til að gefa okkur von.
Er það nema von að menn spyiji
jóla hvað? Til hvers alla þessa
kaupmennsku, pakka, jólaföt, mat,
jólasveina ef tilefnið er svo ekkert.
Það er gaman að geta farið í
spariföt, gefíð ástvinum gjafír sem
eiga að minna okkur á gjöfína
stærstu sem Guð sendi okkur, sinn
einkason. Við höfum svo sannarlega
ástæðu til að gleðjast og fagna.
Fagnar þú á jólunum vegna þess
að Guð sem skapaði þig og allan
heiminn vill gefa þér gjöf og það
gjöf sem varir. Okkar er að taka
við gjöfinni hver fyrir sig. Þú getur
einnig hafnað gjöfinni með því að
láta hana afskiptalausa. Þegar við
fáum jólagjafír frá ástvinum okkar
tökum við pappírinn utan af pakk-
anum og athugum hvað sé inn í,
er það ekki? Ekki höfnum við gjöf-
unum áður en við vitum hvað er í
pakkanum. Hefur þú tekið við gjöf-
inni frá Guði? Hefur þú tekið við
Jesú Kristi sem þínum persónulega
frelsára og eilífa lífgjafa? Eða hefur
þú hafnað þessari gjöf sem þú og
ég átt.um ekki skilið að fá heldur
er okkur veitt af náð Guðs og kær-
leika til okkar mannanna.
Hvar er gjöfina '
aö finna?
Guð er að finna í orði hans._ Síðan
1954 hafa Gídeonfélagar á íslandi
gefíð öllum skólabörnum • Nýja
testamentið og ættu því allir lands-
menn á aldrinum 10—45 ára að
hafa fengið Nýjá testamentið að
gjöf frá Gídeonfélögum. Biblíur eru
að finna á flestum heimilum lands-
manna þótt þær séu kannski farnar
að rykfalla upp í hillu. I orði sínu
mætir Guð okkur. Biblíuna þurfum
við að lesa með bæn í huga til hans
að hann ljúki upp fýrir okkur sínu
heilaga orði þannig að við mættum
meðtaka það. Einnig er gott að
sækja kirkjur og önnur kristileg
samfélög sem hafa Guðs_ orð um
hönd hreint og ómengað. A stöðum
þar sem kristnir menn koma saman
er gott að koma og fá ráðleggingar
og leiðbeiningar hvernig hægt sé
að taka á móti jólagjöfínni frá Guði
sem er Jesús sjálfur.
Biblían er þó besti vegvísir okkar
til Guðs, hana skulum við nú taka
fram um jólahátíðina og lesa með
bæn í hjarta og vita hvort við finn-
um ekki jólagjöfina sem við leit.um
að, sem er Jesús Kristur. Að þeirri
miklu gjöf leitum við öll. Sumir
henda gjöfinni frá sér áður en þeir
hafa reynt hana, halda að það sé
ekki gefíð sem þeir eru að leita að.
Er það gáfuleg aðferð?
Guð gefi okkur öllum gleðileg jól.
Höfundur er verslunarmaður í
Reykjavík.
Eigendur
skuli
fendur
Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir góðum
skuldabréfum í umboðssölu.
Helstu skuldabréf í sölu hjá
Verðbréfaviðskiptum
Samvinnubankans
Spariskírteini ríkissjóðs
Veðdeild Samvinnubankans
Lind hf.
Glitnir hf.
Lýsing hf.
Samvinnusjóður íslands hf.
Samband ísl. samvinnufélaga
Fasteignatryggð skuldabréf
7,2-8,5% ávöxtun umfram verðbólgu
9,7% ávöxtun umfram verðbólgu
11,0% ávöxtun umfram verðbólgu
11,1% ávöxtun umfram verðbólgu
10,8% ávöxtun umfram verðbólgu
10,5% ávöxtun umfram verðbólgu
10,8% ávöxtun umfram verðbólgu
12-15% ávöxtun umfram verðbólgu
Allar nánari upplýsingar í Bankastræti 7, 3. hæð.
Síminn er 20700.
UERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
SAMUINNUBANKANS
.y-f v-STi'.t
KMJLMM.ILmÆ * M.MM fI Alfllf fl
Einstæð og eftirminnileg saga manns
sem leggur allt undir í örvæntingar-
fullri baráttu sinni við óvægin örlög,
bók sem oft hefur verið líkt við fræga
ævisögu Martins Grey, Ég lifi, enda
vekur hún sömu tilfinningar hjá les-
endum.
Mögnuð og átakanleg lýsing á grimmum
og miskunnarlausum örlögum og mann-
legri þjáningu, saga sem grípur lesandann
heljartökum og heldur honum föngnum
frá upphafi til enda. Þetta er saga manns
sem er hrakinn út í ógæfuna af eigin ástríð-
um og örvæntingu, sjúkur á sál og líkama.
Eitt sinn var hann elskaður og dáður um
allan heiminn, en nú er hann flestum
gleymdur. Eftir tuttugu ára bið fær hann
loks eitt einasta tækifæri til að sýna hvað í
honum býr. En er það of seint? Hefur hann
þegar steypt sjálfum sér og öðrum í glötun?
Ógnvekjandi saga sem lýsir skuggahliðum
mannlífsins og örlagaþrungnum atburðum
vægðarlaust en þó af djúpum skilningi og
samkennd. Sá sem hér segir frá hlífir
engum, hvorki sjálfum sér né lesendum,
við afdráttarlausri játningu sinni.
IÐUNN