Morgunblaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
73
Árósar:
ísfár — blað íslend-
ingafélagsins komið út
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
ÍSFÁR heitir blað íslendingafé-
lagsins í Árósum. Hóf það göngu
sína á þessu ári og er 4. tölublað-
ið nýkomið út. Er það með
blönduðu efni og segir m.a. frá-
farandi formaður, Ragnar
Bjartmarz, frá störfum félagsins
á árinu, en það hefur starfað af
krafti og félögum fjölgað í 220.
Nýja stjóm íslendingafélagsins
skipa: Jóhann Hlíðar Harðarson,
formaður, Matthías Einar Jónsson,
gjaldkeri, Einar Bragi Indriðason,
ritari, og meðstjómendur em Berg-
ur Bergsson og Klara Olsen. Eitt
fyrsta verk nýskipaðrar stjómar var
að standa fyrir íslenzkri guðsþjón-
ustu í Viby-kirkju og kaffisamsæti
í safnaðarheimilinu þar á eftir. Var
kirkjusókn góð og móttökur allar
hinar myndarlegustu, en organisti
var Ólafur Einarson og meðhjálpari
Guðrún Einarsdóttir frá Eiðum.
Nú stendur til að hafa opið hús
hjá íslendingafélaginu í Árósum
einu sinni í mánuði eftir nýár og
verður það í Grænlendingahúsinu
við Dalgas Avenue fyrsta sunnudag
í hveijum mánuði.
— G.L.Ásg.
Morgunblaðið/Gróta Friðriksdóttir
Að störfum í nýja fyrirtækinu. Sigriður Ólafsdóttir, Kristbjörg Krist-
insdóttir i miðjunni og Klara Kristinsdóttir fret.
Nýtt matvælafyrirtæki
stofnað á Reyðarfirði
Reyðarfirði.
KRISTBJÖRG Kristinsdóttir
stofnaði 2. október sl. fyrirtækið
KK Matvæli. Kristbjörg tók á
leigu neðri hæð i verslunarhúsi
Gunnars Hjaltasonar og gerði
hæðina hæfa til framleiðslu.
Ifyrirtækið hóf framleiðslu 13.
nóvember sl. og framleiðir nú þrjár
gerðir af pizzum, kæfu, fískibollur,
gijónasalat og hrásalat. Ef vel
gengur hefur Kristbjörg hug á að
auka fjölbreytni í framleiðslunni.
Ástæða þess að Krisbjörg fór út
í þessa framleiðslu er að hún var
ekki sátt við að Austfirðingar
keyptu vömr að norðan og sunnan
sem hægt væri að framleiða á
staðnum* auk þess fínnst henni
tilvalið að lífga aðeins upp á at-
vinnulífíð hér.
Hjá fyrirtækinu starfa, auk
Kristbjargar, Klara Kristinsdóttir í
fullu starfí og Sigríður Ólafsdóttir
í hlutastarfi.
— Gréta
■ ■
Saimkölluð reyfamkaup -meðan bingðir endast
Bangsar frá 627,- til 2.340,- Hitakönnur 1.330,-
Kampavínsgiös 61,- Hvítvínsgiös 61,- Ölgiös 74
Rauðvínsglös 66,-
KAUPFÉUtG SUÐURNESJA SAMKAUP,
VÖRUHÚS K.E.A. AKUREYRI OG
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT.
;
Q
O
ö
O
W
M
íd
Q
t=j
íd
ca
Þd
BÓLU HJÁLMAR
Dr. Eysteinn Sigurðsson
HJALMAR
Eysteinn Siguiósson
U
Xcui>xvi/íifS,r
'pniiJ/fmiiuHrtiÍlZfit&Zir tis ■.
Þetta er bók um Hjálmar Jónsson frá
Bólu, ævi hans og skáldskap. Höfundur
segir í öllum meginatriðum ævisögu
Hjálmars, en fjallar einnig mikið um
kveðskap hans, rekur hann sundur eftir
tímabilum og yrkisefnum, skilgreinir
verk skáldsins og leggur mat á þau.
Ennfremur er útskýrt hver séu helstu
stíl- og formeinkenni Hjálmars, alþýðu-
skáldsins snjalla sem orti í sárri fátækt
beinskeyttar vísur og dýr kvæði.
ANDVARI1987
• Ritstjóri
Gunnar Stefánsson
Þetta er 112. árgangur Andvara sem
flytur að vanda ritgerðir og ljóð. Aðal-
grein hans að þessu sinni er æviþáttur
um Ólaf Jóhannesson fyrrum alþing-
ismann og ráðherra eftir Ingvar Gísla-
son ritstjóra Tímans.
ANDVARI
19B7
Bókauigöfa
/MENNING4RSJOÐS
SKÁLHOLTSSTiG 7« REYKJAVÍK • SÍMI 6218 22