Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 76

Morgunblaðið - 15.12.1987, Síða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987 Stförnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Karl og kona Oftast nær þegar fjallað er um merkin er gerður lítill sem enginn greinarmunur á því hvort um karlmann eða kven- mann er að ræða. Það á segja að það sé að mörgu leyti í lagi að gera slíkt, að upplag merkisins sé hið sama hvort sem um karl eða konu er að ræða. Hinsvegar er að öðru leyti rangt að gefa einungis eina lýsingu á merkjunum, því karlmenn og konur eru ekki eins líffræðilega og ekki síst vegna þess að hlutverk kynj- anna er oft á tíðum óltkt. Það er því ekki úr vegi að huga lítillega að þessu máli og þá með tilliti til Bogmannsins (22. nóv,— 21. des.) eða merki núverandi mánaðar. Hreyfanleiki Þegar talað er um Bogmann- inn er í fyrsta lagi sagt að hann sé jákvæður, hress i skapi, bjartsýnn og léttur í lund. í öðru lagi er talað um að hann sé eirðarlaus og þurfi töluverða hreyfingu, sé ævin- týragjam og á sífelldum jjeytingi milli staða og landa, þ.e. hann hefur yndi af ferða- lögum og er sífellt að skipta um umhverfi. Breytingar, frelsi, spenna og nýjungar einkenna líf hins dæmigerða Bogmanns. Hann þolir illa vanabindingu. Einn veikleiki Bogmannsins er aftur á móti fólginn í ábyrgðarleysi. Það er eðlilegt, því þörf fyrir frelsi og Qölbreytilega reynslu gerir að verkum að hann getur ekki bundið sig niður á einn ákveð- inn stað eða dvalið of lengi i^ið eitt afmarkað mál. BœÖi létt í lund Mín reynsla er sú að hið fyrsta, eða það að Bogmaður- inn sé jákvæður og léttur í skapi, eigi oftast við um bæði kynin. Bæði karlmenn og kon- ur í Bogmanni er blessuð með eðlislægri bjartsýni og léttri iund, burtséð frá aðstæðum. Hlutverkaskipting Það er hins vegar þegar kom- ið er að eirðarleysinu og þörfinni fyrir frelsi og breyt- ingar sem munur fer að verða sjáanlegur, a.m.k. út á við. Astæðan er líkast til fólgin í hlutverkaskiptingu kynjanna, í því að konur hafa þurft að sinna heimili og bamauppeldi. Slík störf gefa lítið svigrúm fyrir breytingar og frelsi. Karlmenn á hinn bóginn hafa oft verið lausir við áhyggjur vegna heimilis og bama. Konur ábyrgari Það er því svo að þegar merki eins og Bogmaðurinn er ann- ars vegar verður hin eirðar- lausa og óábyrga hlið meira áberandi. Konur í Bogmanni era aftur á móti fastari fyrir og ábyrgari, ekki vegna þess að upplag þeirra er fastara, heldur vegna ytri aðstæðna. Létt fyrir karlmenn Það er auðséð, þegar upplag merkisins er skoðað, það að vilja frelsi til að víkka sjón- deildarhringinn, að það sé auðveldara að vera karlmaður en kona i Bogmanni. Þjóð- félagið býður körlum upp á fleiri tækifæri, t.a.m. er til- tölulega auðvelt fyrir karl- menn að vinna störf sem fela í sér ferðalög og hreyfingu, en slíkt er aftur á móti erfitt lyrir konu með böm. Það má því segja, þegar merki eins og Bogmaðurinn er annars vegar, að núverandi hlut- verkaskipting kynjanna bjóði upp á erfiðara hlutskipti fyrir konur og dempi upplag þeirra niður. Af þeim sökum verður hegðun karls og konu í merk- in oft á tíðum ólfk. GARPUR ALL/R ÓI//NIR H4RÐ7AXLS VHLKOMNHZ HÉR.APHA1. £N TRAUST/THTT t/£TZ&UR þÓAB 'AV/NNA é 1987. I by Mcttaught Synd. \ HVÍLA. HV££N/G(SET ZEyNDU A& I éo HV/LTVHH5EFT/R HV/La ÞKá ! ADHAFA KVNNST (4DAAA / /CONUE/NS 06 I/E£- öNU?i//e> g/?áskalla / Ba£A AÐ £G HEP&’ ' EKKI VERKAÐ V/NNA Héf?.' GRETTIR Heyrðu Kalli, ég þori að veðja að þú hefur ekki frétt... ... að ég kom til greina sem „Maídrottning" ... Hvernig finnst þér? Þú yrðir falleg drottning, Kata... ég vona að þú verðir valin ... SMÁFÓLK I NEEP 50METUIN6 S00P TOMAPPEN 500N, CHUCK.. I'M 6ETTIN6 OLP... Það verður eitthvað gott að koma fyrir fljótlega ... ég er að verða gömul... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Kristján Blöndal og Georg Sverrisson unnu Reykjavíkur- mótið í tvímenningi, sem fram fór um síðustu helgi í Sigtúni 9, húsakynnum Bridssambands íslands. Frábær tímasetning hjá þeim félögum. Þeir skutust upp fyrir Karl Sigurhjartarson og Sævar Þorbjömsson í síðustu umferð, en Karl og Sævar höfðu verið í forystunni fram að því. Fjörutíu pör tóku þátt í mótinu sem var barómeter með tveimur spilum milli para. Tímasetningin skipti líka miklu máli í eftirfar- andi spili, sem kom upp snemma móts. Vestur varð að finna góða vöm til að gefa ekki yfirslag í fjórum spöðum suðurs: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ K1032 V2 ♦ K942 ♦ Á762 Vestur Austur ♦64 ... ♦ 7 ♦ 8764 mil ♦KG10953 ♦ ÁD6 ♦ G53 ♦ 10954 ♦ KG3 Suður ♦ ÁDG985 ♦ ÁD ♦ 1087 ♦ D8 Vestur Norður Austur Suður — Pass 2 hjörtu 2 spaðar 3 hjörtu 4 spaðar Pass Pass Pass Á opnu borði er aðeins ein leið til að halda sagnhafa í tíu slögum, en það er að spila út tíguldrottningu! Ella hefur sagn- hafí tíma til að spila á lauf- drottninguna og losna við tígul niður í laufás. Skiljanlega fann enginn þetta baneitraða útspil. En með hjarta út á sagnhafi eftir að gera upp við sig hvort hann spilar laufi á drottningu eða reynir að fría tígulinn. Síðamefndi kosturinn er mun sveigjanlegri, enda völdu flestir sagnhafar að bytja á tíglinum. Tóku tvisvar tromp og hinna hjartaslaginn, og spiluðu siðan tígli að blindum. Ef vestur stingur upp ás-og spilar laufi gefur sagnhafi að- eins einn slag á tígul. Og láti vestur lítinn tígul, fær austur slaginn á gosann og neyðist til að spila tígli til baka eða laufí frá kóngnum. Svo hér er það sama uppi á teningnum: vestur verður að stinga tíguldrottning- unni á milli. Vömin hefur þá samgang og tíma til að bijóta laufið og taka tvo tígulslagi. Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Wildbad í V- Þýzkalandi í haust kom þeSsi staða upp í skák V-Þjóðverjanna Eickhoff, sem hafði hvítt og átti leik, og Schmidt. 17. Bxh7+! - Kxh7, 18. Dh5+ - Kg8, 19. Hg3 - Ha7, 20. Hxg7+! - Kxg7, 21. Bh6+ - Kg8, 22. Bf6 - Db5, 23. Dh8 mát.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.