Morgunblaðið - 15.12.1987, Side 85
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
85
BLESSUÐ JÓLIN
Oslóarjóla-
trén fara víða
að eru fleiri en við íslending-
ar sem njóta velvilda Oslóarbúa
um jólin. Stórt og myndarlegt
jólatré prýðir Trafalgartorg í
London og er það gjöf Oslóarbúa
til Breta í þakkætisskyni fyrir
veitta hjálp í seinni heimstyijöld-
inni. Það var borgarstjóri Oslóar,
Albert Nordengen, sem kveikti á
trénu í síðustu viku.
Reuter
Hitamælinga-
miðstöðvar
Fáanlegar fyrir sex, átta,
tíu, tólf, sextán, átján
eða tuttugu og sex
mælistaði.
Ein og sama miðstöðin
getur tekið við og sýnt
bæði frost og hita, t.d.
CelciusH-200+850 eða
0+1200 o.fl. Hitáþreifarar
af mismunandi lengdum
og með mismunandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Það er hægt að fylgjast með afgashita, kælivatns-
hita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, frystum,
lestum, sjó og fleira.
VESTURGÖTU 16 SIMAR 14680 ?1480
MIKKO PERKOILA
Tónlistin mín er
dálítið g'amaldags
Morgunblaðið/Bjami
Mikko Perkoila. með kantelehörpu sem hann smíðaði sjálfur.
að er ekki á hverjum degi sem
fmnskur vísnasöngvari sækir
okkur íslendinga heim, en í síðustu
viku var staddur hér á landi finnski
söngvarinn og lagasmiðurinn Mikko
Perkoila. Mikko er þekktur í heima-
landi sínu og nýtur töluverðra
vinsælda þar.Hann hefur gefið út
fímm sólópfötur auk barnaplötu sem
hann segir einnig vera fyrir full-
orðna. Auk þess sem hann semur
og kemur fram, rekur hann eigin
vinnustofu ásamt félögum sínum
þar sem hann smíðar hljóðfæri.
Blaðamaður hitti Perkoila í Norr-
æna húsinu þar sem hann dvaldist
en hann kom hingað í boði Finnsk
- íslenska félagsins.
Mikko lagði stund á þjóðfræði
áður en hann gerðist tónlistarmaður
og ber tónlist hans þess glöggt
vitni. Gömul þjóðleg stef skjóta
gjarna upp kollinum í lögum hans
auk engilsaxneskra og sænskra
áhrifa sem hann segir erfitt að
komast hjá. Textarnir eru um nú-
tímann, sumir myndu kalla þá
ádeilutexta. Hann hefur einnig
sungið Kalevalaljóð sem eru sam-
safn gamallra frásagnarljóða,
„Kalevala skiptir okkur Finna
miklu, því bakgrunnur okkar er svo
ólíkur bakgrunni hinna Norður-
landabúanna. í fínnskri tónlist má
greina bæði slavnesk áhrif og
skandinavísk. Á ferðalögum mínum
reyni ég að kynnast tónlist þess
lands sem ég dvelst í og notfæri
mér það þegar ég kem heim og fer
að semja.
Ég er lengi búinn að ætla mér
að koma hingað til Islands, svo að
þegar mér var boðið hingað var það
eins og að fá draum uppfylltan. Ég
hafði lesið töluvert af bókum eftir
Laxness og fornsögumar en vissi
ekkert um ísland samtímans. Nú
hef ég kynnst því aðeins og hef
ekki orðið fyrir vonbrigðum.
Mikko lék í Norræna húsinu á
þjóðhátíðardegi Finna og einnig í
Hafnarfirði. Þá lék hann á Gauk á
stöng eitt kvöld í vikunni. Hann
segir íslenska áhorfendur lítið frá-
brugðna þeim finnsku og sömu sögu
er að segja um þá tónlistarmenn
sem hann hefur heyrt í, „mér finnst
töluvert líkt með íslenskri og
fínnskri þjóðlagatónlist en það er
eitthvað sem ég get ekki útskýrt
hvað er, hún vekur svipaðar tilfinn-
ingar hjá mér,“ segir hann.
Hann hefur gefið út eina bama-
plötu og leikið töluvert á barna-
heimilum. „Mér finnst gaman að
leika fyrir böm, því þau skynja al-
veg hvort ég er að þykjast eða ekki.
Þegar ég er á tónleikaferðalögum
reyni ég alltaf að spila fyrir böm,
fullorðnir eru svo lokaðir en það em
börnin ekki, þau eru ekkert feimin
við að sýna tilfinningar sínar.“
Þegar blaðamaður spyr hann að
lokum hvort hann sé þekktur, þegir
hann svolitla stund og segir síðan,
„þekktur, ég er ef til vill þekktur,
en ekki mjög vinsæll. Tónlistin mín
er nefnilega dálítið gamaldags."
Blómastofa
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
OpSð öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamorex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
SKIPHOLTI 9, S 622455 & 24255
brother.
TÖLVUPRENTARAR
Prentari fyrir heimilistölvuna.
Hágæöa nálaprentari.
HR-40
Lcturhjól í versiunar- og Hraðvirkur skjalaprentari
skjalaprentun. me5 breiðum vals.
Allir Brother prentararnir eru með
serial og paralleitengi.
Verð frá 14.999 kr. stgr.
VISA vildarkjör - Engin útborgun.
Eitt mesta úrval af tölvuprenturum á landinu.
Prentari fyrir bókhaldstölvuna.
Laserprentari